28 apríl 2006

Sól sól skín á mig...

Já það er bara sól og blíða úti, spurning hvort ég fari að taka fram hlýrabolina og sandalana, æ held ekki veðráttan hérna á íslandi er svo óútreiknanleg að maður fer kannski út í sól og blíðu en eftir klst er komin rigning og rok. Ætli það séu samt ekki einhverjir sem eru komnir í stuttbuxur og farnir niðrá Austurvöll á sóla sig, það þarf nú yfirleitt ekki meira til en að hitastigið fari yfir 5°C og þá er maður næstum komin útá sólbekk :)
Bjarni sagði við mig um daginn ca. 10 x í einu símtali, hvað það væri geggjað veður í DK, 15°C hiti og sól og svo var ég að lesa það á blogginu hennar Hröbbu að kellan væri búin að draga fram sólbekkina...uss við skulum vona að sólin skíni svona þegar ég kem út..

Unnum hauka í gær í hörkueik 27 - 30 og erum því komnar í úrslit deildarbikarsins og mætum annað hvort stjörnunni eða íbv, kemur í ljós um helgina. Það var mjög ljúft að ná að klára leikinn í gær, fáum núna smá pásu sem er kærkomin, erum búnar að keppa 3 leiki á 5 dögum, þannig að dagurinn í dag fer í afslöppun, eða lokaverkefni öllu heldur - spurning hversu mikil afslöppun það er :)
vildi óska að þetta væri ég þarna á myndinni, það væri ljúúúúffftt, en ég verð að láta Ísland og Nauthólsvíkina duga í bili
hafið það gott kveðja Begga

24 apríl 2006

Evrópuævintýrið á enda..

Jæja þá er víst draumurinn á enda, enginn úrslitaleikur í Evrópukeppninni þetta árið. Það var möguleiki, við hefðum getað komist 10 mörk yfir og þá held ég að við hefðum náð þessu, en það tókst ekki og leiknum lauk með 7 marka sigri okkar. Það var ótrúlega gaman að spila þennan leik og af því sem ég hef heyrt úr pöllunum þá var hann líka rosalega skemmtilegur á að horfa.

FRÁBÆRT að sjá hvað margir áhorfendur komu á leikinn og að sjálfsögðu var sambatakturinn allsráðandi, magnað hvað við eigum góða stuðningsmenn :) Takk allir sem komu.
Svo er það deildarbikarinn næst á dagskrá og verður gaman að taka þátt í því...annars er það bara lokaverkefnið okkar Önnu, erum að reyna að leggja lokahönd á það...

hei ég fékk hiksta í gær kl.01.00, býst við að flestir hafi verið farnir að sofa þá og því ekki að tala illa um mig, vonandi ekki, gætu reyndar hafa verið að dreyma illa um mig hehe, hver veit :)...en var að spá kann einhver gott ráð til að losna við hiksta, ég hélt niðrí mér andanum og losnaði við hikstann í tilraun 20. Ég verð nefnilega alltaf dauðhrædd um að losna ekki við hikstann, því ég sá einu sinni Jay Leno þátt og þar var maður sem var búinn að vera með hiksta í 8 mánuði ca...örugglega ekkert spes

jæja nóg af bulli..hafið það gott
kveðjaBegga

23 apríl 2006

Hulduslóð

Hafið þið lesið hana? Ég var að enda við að klára hana, en þetta er ótrúleg saga, sönn saga. Ég gat ekki lagt frá mér bókina og ég trúi ekki að til sé fólk sem getur verið svona hræðilegt. Ef þið hafið ekki lesið þessa bók þá mæli ég með því að þið gerið það.
Þá er það bara næsta bók, ef þið hafið einhverjar góðar uppástungur þá endilega látið mig vita :) er reyndar með eina í sigtinu en veitir ekki af fleirum..

Svo er það aðal málið í dag, Evrópuleikurinn við Constanta. Hann byrjar kl.20 en það verður víst rosalega flott umgjörð, VIP herbergi, söngatriði og Hemmi Gunn verður held ég kynnir þannig að : ALLIR AÐ FJÖLMENNA.

vildi síðan að lokum óska honum Bjarna mínum góðs gengis í leiknum á eftir..hafið það gott kveðja Begga

21 apríl 2006

Ef það er einhvern tíma þörf...

fyrir að krossleggja fingur og biðja til Guðs þá er það núna...ég var að klára próf nr. 2 af 2 en svo er bara spurning hvort að ég hafi náð þeim...jiii hvað ég vona það innilega...
Fór í próf á þriðjudaginn eftir að hafa verið í Rúmeníu með Val, það gekk ekki alveg eins vel og ég hafði vonast eftir þannig að allir að krossleggja fingur

En ef allt gengur að óskum þá er kellan orðin Hjúkka..plís plís plís
Þessi mynd er einmitt úr vísindaferð, þessi eina sem ég fór í :) haha alveg sú virkasta í félagslífinu
núna er það bara lokaritgerðin að leggja lokahönd á hana og svo boltinn auðvitað, Evrópukeppnin á Sunnudaginn vonandi að fólk fjölmenni í höllina og svo tekur deildarbikarinn við í framhaldi af því..
jæja er farin að hanga því það er einmitt það sem maður þráir svo að gera þegar maður er í próflestri ég er stundum meira tilbúin að stara á vegg heldur en að lesa fyrir próf..
Kveðja Begga

Hei sá Bjarney í sjónvarpinu að sýna Húðflúrin sín :) þú ert langflottust Posted by Picasa