
FRÁBÆRT að sjá hvað margir áhorfendur komu á leikinn og að sjálfsögðu var sambatakturinn allsráðandi, magnað hvað við eigum góða stuðningsmenn :) Takk allir sem komu.
Svo er það deildarbikarinn næst á dagskrá og verður gaman að taka þátt í því...annars er það bara lokaverkefnið okkar Önnu, erum að reyna að leggja lokahönd á það...
hei ég fékk hiksta í gær kl.01.00, býst við að flestir hafi verið farnir að sofa þá og því ekki að tala illa um mig, vonandi ekki, gætu reyndar hafa verið að dreyma illa um mig hehe, hver veit :)...en var að spá kann einhver gott ráð til að losna við hiksta, ég hélt niðrí mér andanum og losnaði við hikstann í tilraun 20. Ég verð nefnilega alltaf dauðhrædd um að losna ekki við hikstann, því ég sá einu sinni Jay Leno þátt og þar var maður sem var búinn að vera með hiksta í 8 mánuði ca...örugglega ekkert spes
jæja nóg af bulli..hafið það gott
kveðjaBegga
6 ummæli:
Það virkar oft á mig ef einhver segir við mig: HIKSTAÐU! Hikstaðu núna! Þá bara hætti ég að hiksta ;)
Til lukku með sigurinn í gær - massa góðar! Alltaf gott að enda með stæl :)
Kyngja vatni á hvolfi virkar oft.. Það er bara pínu erfitt..
Frábær leikur hjá ykkur í gær.. Og alltaf stendur þú þig eins og hetja.. Við erum líka að fara að taka þessar stjörnur og planta þeim á bekkinn á næsta tímabili..
Knús
Hrabba
Já þetta var frábær leikur og þó að ég myndi á pappírum teljast hlutdræg þá finnst mér þið spila yfirburða skemmtilegasta boltann á Íslandi! Spiluðuð allar þvílíkt vel og getið verið mjög stoltar af árangrinum, ég er allavegna mjööööög stolt af ykkur! ;o)
Kann ekkert ráð við hiksta, held bara alltaf fyrir nefið og vona að hann fari, hann fer allavegna alltaf innan 8 mánaða..! ;oþ
hæ eygló ég var því miður ein þegar hikstinn kom en prufa þetta næst þegar einhver er hjá mér :)...já það var sko gott að enda með sigri en hefði náttla verið klassi að enda með 13 marka sigri ;) hehe
Hæ Hrabba mín ég veit ekki hvort ég legg í að drekka vatn á hvolfi hehe :) en já ég skal sko vera memm í því að setja stjörnurnar á bekkinn...knús
Hæ Bjarney takk fyrir hrósið okkur finnst við líka spila voða skemmtilegan bolta ;) hehe en við erum auðvitað ekkert hlutdrægar ;)
Ef maður er einn með hiksta þá virkar að hugsa stanslaust: ég ætla að hiksta!. Jafnvel hiksta viljandi - kannski er ég bara skrítin, en það virkar á mig híhí
Góðar að vinna Haukana með einu marki!!! :) Gó Valur!
hehe ok Eygló ég prufa það...allt til að vera ekki með hiksta forever :) eins og gaurinn í Jay leno :)knús sæta
Skrifa ummæli