26 janúar 2007

Fréttir fréttir

Kellan fór í atvinnuviðtal í morgun sem tók einungis TVÆR KLUKKUSTUNDIR ég hélt að fyrsta viðtalið væri bara svona létt spjall aðeins að heyra í mér og svona, eða það talaði konan um í símann þegar hún hringdi í mig, en áður en ég vissi af átti ég að byrja á mánudaginn og ég veit ekki hvað og hvað...en ég stoppaði það nú af og byrja ekki fyrr en mánudaginn 5.feb þá fer ég í svona læri þ.e. fylgi hjúkku eftir. En já allavega þetta er starf í heimahjúkrun og ég fæ að starfa sem hjúkrunarfræðingur en er alltaf með annarri með mér sem mér finnst nauðsynlegt þar sem ég er nú ekki altalandi dönsku og hvað þá allt hjúkkumál á dönsku. Mér lýst bara nokkuð vel á þetta, þarf bara að fara að skrifa niður orðalista :) til að vera alveg viss um allt sem ég gæti þurft að segja...jiii sá listi verður eflaust mjög langur :) Þessi vinna er líka rosa góð fyrir mig vegna þess að þær hringja í mig þegar þeim vantar og ég get sagt já eða nei þannig að ég er ekki föst ákveðna daga, sem er algjör snilld uppá ef gestir koma og þess háttar.

Svo eru mamma og pabbi komin til okkar sem er æði og eru þau einmitt að koma og ætlum við að kíkja á útsölur áður en þær hætta.
Hafið það sem best elskurnar
luvBegga

23 janúar 2007

Upprisa....

Alfreð sagði í fréttablaðinu í gær að Íslenska liðið hefði framið sjálfsmorð nú þá segi ég að þeir hafi risið upp frá dauðum í gær í leiknum á móti Frökkum djö...snilld var þetta og enn meiri snilld að Hrabba snillingur reddaði því að við gátum horft á leikinn með tilheyrandi öskrum og látum. Ég er að reyna að redda mér og mor&far miða á milliriðlana veit ekki alveg hvernig það endar virðist vera uppselt í allt. Í versta falli þá getum við vonandi séð alla leikina í sjónvarpinu en það væri bara svo klikkað að vera á staðnum jiiiii ég fæ bara gæsahúð.
meira var það ekki
Áfram Ísland og plíííííísssssss að við fáum miða :)
luvBegga

22 janúar 2007

Ég hafði rangt fyrir mér..leikurinn var sko aldeilis ekkert sýndur á netinu í gær..allavega ekki erlendis, bara innlendis þ.e.a.s. á Íslandi...já púúúú ekki sátt því ég hélt einmitt að þeir sem horfðu mest á netsjónvarp væru þeir sem eru erlendis. En jæja nennum ekki að velta okkur uppúr því en vonandi að varaáætlunin reddist en Hrabba er að vinna í því :)


Það gekk ekki nógu vel hjá "strákunum okkar" í gær því miður en ég hef fulla trú að því að þeir nái að sigra í kvöld, sendum þeim öll góða strauma.





Ég er samt búin að ákveða með hvað liði ég held ef að Ísland kemst ekki áfram en það er Ungverjaland. Þeir eru með DK í riðli þannig að við höfum séð leikina með þeim. Ástæðan er ekki endilega sú að þeir vinni þetta eða að þeir séu sætir :) heldur er liðsstjórinn þeirra algjör snilld :) Ég er búin að reyna að leita að myndum af honum á netinu en finn ekki en þessi maður er snilld...hann er eiginlega sköllóttur, frekar lítill og með bumbu og svo er hann með hvítt svitaband á hausnum og best af öllu þá er hann með BLEIKAN BANGSA sem lukkudýr hehe ég trúði þessu ekki þegar ég sá þetta...en hann er alveg frábær..fer inní miðjuna á hringnum í leikhléum og er greinilega aðal maðurinn :)





Annars er snjórinn mættur til okkar með tilheyrandi frosti purrrrrr kuldi, en versta er þó að ég þarf að leggja af stað hálftíma fyrr á æfingar vegna þess að umferðin gengur svo hægt í svona frosti þannig að ferðin tekur um 75 mín fyrir mig í staðin fyrir 40 mín. Setti inn mynd sem ég tók út úm gluggann...reyndar er snjórinn nú ekki eins mikill og var heima:)

jæja nóg í bili og segið endilega HÆ ef þið lesið :)
luvBerglind

21 janúar 2007

HM veislan byrjuð

Jeii HM byrjað og sem betur fer verða leikirnir hjá Íslandi sýndir á netinu :) Okkur Drebba-hjúum til mikillar gleði.
Unnum í gær GOG með einu marki 26 - 25. Ég fékk ekkert að spila kom reyndar inná í einu víti varði það en því miður fór boltinn beint til vítaskyttunnar aftur og hún skoraði...en heiii 50% markvarsla :) hehe verður maður ekki að líta á björtu hliðarnar.
Jæja hvernig væri svo að fólk léti aðeins heyra í sér hérna á síðunni, mér þykir voða gaman þegar þið commentið.
luvBerglind

19 janúar 2007

mínar og þínar skoðanir og fjölbreytni

Það hafa allir sem lesa blogg skoðanir á því hvað fólk eigi að skrifa þar og fólk hefur líka skoðanir á því hvernig maður á að skrifa þ.e. ég á að vera góður penni, vera fyndin, ekki of ítarleg, hafa frá e-u merkilegu að segja, o.sv.frv. ég er því miður hvorki fyndin né góður penni og hef sjaldan frá e-u merkilegu að segja en samt er ég að þessu - skrítið. Ástæðan mín er sú að ég hélt það væri voða sniðug hugmynd að blogga svona þegar maður byggi ekki á Íslandinu góða, segja vinum og vandamönnum frá því hvað ég væri að bralla og hvernig boltinn gengi og þetta helsta. Nú vitið þið ástæðuna mína og vitið að hverju þið gangið "þetta verður bara áfram bullið í mér því þannig vil ég hafa það" :)


Um helgina verður leikur við GOG, en við gerðum jafntefli við þær í fyrri umferðinni. Leikurinn verður á lau og eru stjórnarmennirnir búnir að senda út tilkynningu að þeir sem borga sig inná leikinn geta fengið aðgangseyrinn greiddan til baka ef við töpum. Já eins gott að við stöndum okkur, höfum reyndar verið á góðri siglingu eftir áramót, töpuðum naumlega fyrir Álaborg og unnum svo Esbjerg í síðasta leik með 10 þannig að við ættum að geta gert góða hluti.


Ég er loksins komin inní þetta margumrædda "byrgismál". Horfði á kompás þáttinn sem fjallaði aldeilis mikið um þetta og ég verð að segja að ég var engan vegin að gera mér grein fyrir alvörunni, ég hélt að það væri eingöngu verið að ræða um e-a peninga, sem er nú slæmt en ekkert í líkingu við það sem hann er einnig ásakaður um. Bjarni sá myndbandið sem hefur gengið um netið en ég hef ekki áhuga á því læt mér duga það sem ég hef heyrt af því.

Annars finnst mér þessir kompás þættir rosa góðir, rosalegt þegar þeir notuðu tálbeitu til að lokka barnaníðinga fram en samt ömurlegt að ekki hafi verið hægt að nota þessar myndir og frétt til að ákæra þessa menn. Mig minnir að þessi þáttur hafi verið 19.febrúar 2006.



Það er mest lítið að frétta héðan úr silkeborginni, er búin að vera að fara í ræktina að undanförnu og það er merkilegt með danina maður þarf að panta allt fyrirfram hérna. T.d. ef maður ætlar í tíma í ræktinni þá þarf maður að panta það á netinu og aðsóknin undanfarna daga er búin að vera svo rosalega að ég er farin að panta mér tíma 2 vikur fram í tímann. Þeir eru skipulagnina óðir...Reyndar er þetta alveg fínt því þá mætir maður bara 15 mín fyrir tímann og er viss um að eiga pláss og ef maður skráir sig ekki úr tímanum 2 tímum fyrir hann þá fær maður sekt þannig að það hvetur mann líka til að mæta :) ok þetta er semsagt ekkert alslæmt bara fyndið hvað maður þarf að skipuleggja sig hérna, ég þarf í alvörunni að fara að kaupa mér fílófax.

Reyndar gæti verið að þessi aðsókn sem er búin að vera sé svokölluð "janúaraðsókn" þar sem allir ætla að taka sig á eftir átdesember :) en sjáum til.

Eitt meira gott við ræktina er að equinox stöðin hérna er að hluta til í eigu World Class heima þannig að þegar ég mæti heim í frí get ég fengið 14 daga kort í laugar :) ekki slæmt það.


Trúið þið að draumar merki eitthvað, held samt ómögulega að það sem mig dreymdi í nótt merki eitthvað, mig dreymdi að það hefði verið partý á efri hæðinni hérna í blokkinni og við vorum sofnuð en gleymdum að læsa útidyrahurðinni. Um nóttina byrjar síðan fólk að koma inní íbúðina og Bjarni stekkur upp og hleypur inní stofu til að fá það út en segir mér að fara inná bað þar sem ein stelpan er, ég geri það auðvitað og stekk inná bað sé stelpu þar og ákveð að bíta hana...um leið og ég geri það öskra ég sko í alvörunni ooooooooooooooo svona óperuöskri og vakna sjálf við það og Bjarni líka. Ef þið getið greint drauminn og mig þar með í leiðinni endalega látið mig vita.



Annars fengum við fréttir í gær að Elísabet prinsessa er komin með 2 tennur skvísan til lukku með það prinsessa mundu bara að láta mor og far vera dugleg að bursta :)


púff til lukku ef þú komst hingað í lestri

Hafið það gott um helgina

luvBÍH

15 janúar 2007

blabla

Helgin var að mestu mjög fín...Birna og Hörður komu til okkar á lau og borðuðu með okkur og svo spiluðum við party og co það var mjög fínt. Þau kíktu síðan niðrí bæ en við "letidýrin" vorum bara heima :)




Eitt sem ég er þó megaglöð yfir er að ég og Bjarni keyptum okkur allt friends safnið í dag :) það var á tilboði hérna þannig að við ákváðum bara að skella okkur á það enda er mig búið að langa í það í nokkur ár :)



Bloggandinn er ekki alveg að koma yfir mig þessa dagana, enda kannski margt annað sem er að fara í gegnum hausinn á mér þessa dagana.



Ég hef þó til eins að hlakka en það er að við erum að fá heimsókn núna í lok janúar..mor & far eru að koma og eru þau að reyna að plata mig með sér til Þýskalands á HM...það þarf nú reyndar ekkert að plata mig ég þyrfti bara að fá frí á æfingu...vonandi redda ég því.


Ég held það sé einhver janúar leiði í mér þessa dagana...


luvBegga

12 janúar 2007




Langt síðan síðast...ekki er ástæðan sú að það er of mikið að gera heldur kannski meira ekkert búið að gerast :) reyndar unnum við leik um daginn sem er að sjálfsögðu stórfrétt þar sem það gerist ekki oft og í þetta sinn var það stórsigur á Esbjerg, erum því komin með heil 5 stig í deildinni og nálgumst því liðin fyrir ofan okkur smá :)


Annars er það að frétta að Bjarni greyið er á hrikalega erfiðum æfingum þessa dagana, æfir semsagt tvisvar á dag og e-ar ógeðis æfingar, skógarhlaup, hlaup með lóð aftan í sér og e-r viðbjóður, það er einmitt á svona æfingum sem maður spyr sig "HVERS VEGNA Í ÓSKÖPUNUM ER ÉG AÐ ÞESSU" en alltaf lætur maður sig hafa það og þegar maður nær árangri þá er þetta auðvitað allt þess virði.


mér finnst alveg magnað hvað hugurinn skiptir miklu máli t.d. þegar maður er á erfiðum æfingum, maður getur hlaupið nokkrar ferðir í viðbót í píptesti bara ef maður sigrar stríðið við hausinn á sér. Maður hefur heyrt að þegar fólk sem hleypur t.d. maraþon hlaup það lendir á svokölluðum vegg þar sem einstaklingurinn er í stríði við sjálfan sig..."hvers vegna er ég að þessu, ætti ég ekki bara að hætta, ég get ekki meir" vs. " jú þú getur þetta, það er svo lítið eftir, þú er búin með 30km ferð ekki að hætta núna" Þess vegna hef ég einmitt alltaf dáðst að fólki sem getur þetta að hlaupa 42 km (eins og ég myndi hlaupa á æfingu) hvernig í ósköpunum getur það þetta ég gæti ekki byrjað því ég veit hvað er ótrúlega langt eftir :) hehe

en já maður kemst alveg ótrúlega langt á huganum einum saman!!!


ég setti inn nýjar myndir þær heita Spánn og ísland kíkið á það ef þið hafið áhuga.


Hafið það best

Saknaðarkveðjur Berglind


06 janúar 2007

Ég er skipulögð en ekki nógu greinilega!!

fyndið með Dani þeir ákveða greinilega allt mjög tímanlega, eða allavega miðað við mig..Ég og Bjarni vorum að spá í að skella okkur í bíó í kvöld kl.21.00 og vorum að velta þessu fyrir okkur um 17. ég fer á netið að tékka hvaða myndir eru í boði og sé þá bara að allt er uppselt...þá eru bara allir búnir að ákveða langt áður að skella sér í bíó og panta miða á netinu. Heima þá bara ákveð ég mig yfirleitt með stuttum fyrirvara (nema myndin sé eitthvað rosa ný og vinsæl) og skelli mér síðan hálftíma áður( í mesta lagi) á myndina. Nei greinilega ekki alveg að virka hérna í DK, við semsagt þurftum að panta okkur miða til að fara í bíó á morgun. Nú skil ég hvað allir eru að tala um að Danir eru búnir að skipuleggja allt langt fyrirfram og geti ekki ákveðið neitt nema hafa dagbókina hehehe ætli ég endi ekki svona :)
FRÁBÆR sigur hjá mínum dömum á móti stjörnunni áðan, geggjað, enda vel mótiveraðar hohohohoh :)
Síðan er það að frétta að við Århus píur fengum 2 nýja leikmenn á þriðjudaginn. Önnur kemur frá Austurríki og er mest hugsuð sem varnarmaður en hin kemur á lánssamning frá Viborg, en hún spilar líka með Danska landsliðinu, er miðjumaður en getur spilað vinstri bakk einnig. Held þær eigi eftir að styrkja okkur, eða það hlýtur að vera hugsunin á bak við þessi kaup. Næsti leikur hjá okkur er á móti Esbjerg á miðvikudaginn.
Annars er þessi helgi bara búin að einkennast af áti, er búin að fara í 2 afmælisveislur, fös og lau :) Já og það í bæði skiptin til Viktoríu og þið sem þekkið Hröbbu vitið að þegar hún og kræsingarnar hennar eiga í hlut þá er ekki annað hægt en að borða vel yfir sig, en má nú ekki gleyma að hrósa Dagný en brauðrétturinn þinn og brauðið voru einstaklega góð gæskan :) Bjarni hrósaði því sérstaklega hehe :)
Hafið það best og njótið helgarinnar
kveðja Begga

04 janúar 2007

Janúar

Afmælisbarn dagsins er Eva maría mín yndislega vinkona. Hafðu það alveg súper gott í dag elskan lovja.


svo eignuðust Tinna og Bjarni lítinn prins í gær, til hamingju með það elsku foreldrar. Hlakka til að fá að sjá kappann. knús og kossar til ykkar allra, hafið það best.
Annars mest lítið að frétta, kepptum í gær á móti Álaborg og töpuðum 33-32..skítt....full höll af áhorfendum eða 3200 mann mjög gaman að upplifa það, en auðvitað flest allir á bandi Álaborgar.
Lítið um að vera hjá okkur hjúum þessa stundina.
Bið ykkur vel að lifa
hilsenBegga

01 janúar 2007

Árið 2006 búið

Mér finnst árið 2006 búið að vera ótrúlega viðburðaríkt fyrir mig, ekkert smá mikið búið að gerast :
  • Ég varð 25.ára. Hélt enga stórveislu, en átti frábæran dag með frænkum mínum og Bjarna.
  • Útskrifaðist úr Háskólanum, ekkert smá fegin því, og var því að sjálfsögðu fagnað með viðeigandi veislu og partýi.
  • Varð deildarmeistari með Val, unnum ÍBV 2-0 í eftirminnilegum leikjum. Fyrsti titillinn (svona fyrir utan Rvík.meistarar)með Val síðan 2000, þannig að hann var kærkominn.
  • Tókum þátt í Evrópukeppninni með Val og stóðum okkur rosa vel, komumst í undanúrslit (eftir að hafa unnið lið frá Grikklandi og Sviss) þar sem við töpuðum fyrir Constanta frá Rúmeníu. Spiluðum rosalega góðan leik heima þar sem við unnum með 7 en töpuðum því miður leiknum úti með 12.
  • Flutti út til útlanda í fyrsta skipti á ævinni, Danmörk varð fyrir valinu þar sem ég og Bjarni ákváðum að reyna fyrir okkur, Bjarni minn með Silkeborg og ég með Århus - þ.a.l. skipti ég í fyrsta sinn um lið á ævinni.
  • Fór alveg ótrúlega oft til útlanda árið 2006, 2xRúmenía, Grikkland, Makedónía, 2xHolland, Frakkland, Ungverjaland, Sviss, Spánn, 3 x að heimsækja Bjarna minn í DK áður en ég flutti, svo auðvitað til Íslands eftir að ég flutti út.
  • Við vorum hársbreidd frá því í Landsliðinu að komast áfram á EM, spiluðum á móti Makedóníu en töpuðum. Fórum síðan til Rúmeníu í undankeppni HM, en komumst því miður ekki upp úr riðlinum.
  • 2 af mínum bestu vinkonum eignuðust lítil yndisleg kríli, Lísa og Heiðar eignuðust Ísey og Anna og Örvar eignuðust Kára. Svo eignaðist systir hans Bjarna og Fannar kærastinn hennar hana Elísabetu sem er algjör prinsessa og hetja.
  • Ég er auk þess búin að kynnast fullt af nýju fólki, farin að bulla dönsku, keyri 700 km á viku, elda eins og mér sé borgað fyrir það, byrjaði að blogga 2006. Auðvitað gerðist margt fleira, sumt rosa skemmtilegt annað minna skemmtilegt. Þetta eru samt svona hápunktarnir held ég.

Árið 2007 verður ekki síður viðburðaríkt, enda nóg búið að plana nú þegar. Allavega 3 brúðkaup í sumar og svo býður mín og Bjarna eitt skemmtilegt seinni hluta ársins.

Gleðilegt nýtt ár, takk fyrir gömlu góðu...hafið það sem best elskurnar

luvBerglind