28 október 2006

Ísland here I come

Jebbbbbbbbsí ég kem heim á morgun en fer reyndar aftur á þriðjudagsmorgun til Hollands en ég næ 1 og 1/2 degi heima og hlakka ekkert smá til. Verð með gamla íslenska númerið mitt heima og væri nú voðalega gaman að heyra allavega í ykkur því ég efast um að ég nái að hitta alla sem mig langar að hitta...

töpuðum á móti Randers áðan frekar fúlt þar sem við náðum að vinna upp 7 marka forskot þeirra en því miður náðum við ekki að landa stigum.

Benni og Jói eru mættir í hús, vorum að koma af Rib House þar sem Spareribs "all you can eat" pakki var tekinn. Metið er víst 3,5 kg, Heimir hefur nebbla farið með gestina sína þangað og metið hjá Baldvini er 3,5kg. Strákarnir voru held ég langt frá því, ég lagði nú ekki í þetta.

Ég veit ekki hvort ég bloggi eitthvað frá Hollandi efast um það því ég ætla mér að vera þar sem fjörið og sögurnar eru því hingað til hef ég verið með nefið ofan í bókum í þessum ferðum...EN nei ekki núna :)

Þangað til næst....Hafið það gott elskurnar mínar
luvBerglind

26 október 2006

Hún á afmæli í dag


Yndis vinkona mín hún Sara á afmæli í dag :) Skvísan er 25.ára. Til lukku með daginn sæta mín, hafðu það súper gott krúslan mín og skemmtu þér svo rosalega vel á laugardaginn væri svoooo til í að koma en það verður að bíða betri tíma að við fögnum saman :) Knús og þúsund kossar lovja.

Annars bara líf og fjör í Silkeborginni.
Ýmsar breytingar í vændum hjá Bjarna mínum og liðinu hans.
Svo mæta 2 stuðboltar í hús á morgun ég hlakka mikið til og ég á eflaust eftir að hlæja alla helgina.
hafið það gott elskurnar
knúsarBerglind

25 október 2006

Brostu þá mun lífið brosa við þér

Ef þið finnið enga ástæða til að brosa þá get ég lofað ykkur því að þið farið að skellihlæja þegar þið horfið á þetta http://www.youtube.com/watch?v=PPESam0yaOs allavega pottþétt brosið þið útí annað :)
Ég er búin að fá þetta sent 2 á emaili og hlæ alltaf jafn mikið. Þau eru svo mikil yndi þessi kríli.

Jæja eigið góðan dag varð bara að deila þessu með ykkur
hafið það gott
luvBerglind

24 október 2006

Spurning um að kíkja í ræktina.

Þó ég hafi nú vaknað ágætlega hress í morgun eftir góðan nætursvefn þá átti það fljótt eftir að breytast. Ég byrjaði nú að gera það sem ég geri alltaf fyrst þegar ég vakna en það er að rölta inná baðherbergi og pissa og þurrka stírurnar úr augunum og svona þetta helsta. Ég ákvað síðan í sakleysi mínu að stíga á vigtina fyrst hún var nú svona beint fyrir framan mig og hvað... JÚJÚ hún sýndi 147,2 kg TAKK fyrir. Ég náttla hleyp og næ í gleraugun en engin vitleysa. Nú bíð ég bara spennt eftir að hinn búandinn á Drebbanum vakni til að láta hann stíga á vigtina. Ég ákvað meira að segja að taka mynd af þessu - tærnar voru að sjálfsögðu krepptar enda ekki nethæfar jeminn.

Já finnst ykkur mig vanta eitthvað til að gera hehehehe :) spurning um að fara að sækja um vinnu :)

luvBegga

22 október 2006

Helgin, kompás og góðar fréttir.

Róleg en ljómandi góð helgi að baki, hún er búin að einkennast af þvílíkri leti, sjónvarpsglápi, þvo þvott og hafa það kósí með Bjarna. Það er nú alltaf rosa gott að taka svona helgar inná milli eða það finnst mér :)
Ég horfði einmitt á Kompás í gær þar sem verið var að ræða hversu auðvelt það er fyrir ungt fólk að nálgast fíkniefni á Íslandi. Það tók 16 ára tálbeitu Kompás einungis 20 mín að redda sér dópi !!! Svo voru tekin viðtöl við krakka (já ég kalla þetta krakka) sem voru á aldrinum 13 - 20 ára og ein af þeim var búin að vera edrú í 10 mánuði en hafði verið háð fíkniefnum í 5 ár, semsagt frá 14 ára aldri. Ég skil þetta ekki þegar ég var 12 - 14 ára gömul þá vissi ég varla hvað fíkniefni var, eða svona þannig séð, er virkilega allt búið að breytast svona ótrúlega mikið?http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=19002&progId=25532 hérna er kompás þátturinn ef þið hafið misst af þessu.
Við Bjarni erum síðan búin að vera að spá í að fara á námskeið hérna í Silkeborg. Bjarni ætlar að læra allt um digital myndavélar og allt um vinnslu á myndunum í tölvunni. ÉG hins vegar veit ekki alveg hvað mig langar að gera, en það er ýmislegt í boði t.d. Yoga, matargerð, nudd, dans, hljóðfæri og tungumál. Ég verð að finna mér e-d sniðugt.
Okkur bárust síðan góðar fréttir frá Boston í gær, en litla hetjan okkar er búin að vera svo dugleg. Við erum svo stolt af þeim öllum og okkur finnst þið vera algjörar hetjur elsku Adda, Fannar og Elísabet prinsessa. Við Bjarni erum svo spennt að komast heim til Íslands til að hitta þau að við hreinlega getum ekki beðið :)
Saknaðarkveðjur
Berglind
uppfært :) TIL HAMINGJU VALSSTELPUR með sigurinn á móti Haukum, frábært.

19 október 2006

Áhugavert ....niiiii

Þið segið það!!! Já það er ekki mikið búið að gerast síðan ég skrifaði síðast, það markverðasta er líklega það að ég keyrði næstum á mink áðan. Gerði einmitt það sem ég átti ekki að gera og sveigði aðeins yfir á hina akreinina sem betur fer var enginn bíll þar. Maður á víst bara að bruna yfir þessi grey, ekki bremsa, ekki beygja, bara keyra.
Haustið er eiginlega komið hingað myndi ég segja. Ég er reyndar soddan kuldaskræfa að kannski er ekki að marka mig. Bjarna finnst ekkert kalt úti, en ég fór í vetrarúlpuna mína í gær.
Helgin verður bara róleg hjá okkur hjúum, leikur á sun hjá Bjarna. Þeir gerðu einmitt jafntefli í gær á móti Bröndby, gríðalega mikilvægt stig þar.
Við Århus píur gerðum hins vegar ekki jafn góða ferð til Horsens og töpuðum með 11.
Bráðum koma svo gestir til okkar en 2 félagar hans Bjarna ætla að koma hingað. Það verður eflaust hrikalega skemmtilegt enda dæmalaust hressir gaurar þar á ferð.
Ég vona nú að ég skrifi eitthvað mun áhugaverðara og skemmtilegra næst :)

16 október 2006

Frábær helgi liðin


Helgin var æði í alla staði. Stelpurnar gjörsamlega versluðu frá sér allt vit :) og voru mjög sáttar við það. Það var ýmislegt brallað t.d. bakað, kjaftað, farið út að borða öll kvöldin, bíltúr, keila, þær skelltu sér í bíó, VERSLAÐ og ýmislegt fleira. Takk yndislegu frænkur fyrir mig og helgina.
Hér koma myndir frá helginni. Myndir segja meira en þúsund orð ekki satt.

Ég góð að láta gestina baka :) en sem betur fer því kökurnar voru rosalega góðar :) Hérna erum ég og Andrea með flottu keiluskóna.

(fyrir neðan)Við frænkurnar á Hard Rock í köben að gæða okkur á gómsætum burger.


Hérna eru skvísurnar að klára að pakka á bílastæðinu, já þær stóðu sig sko vel í búðarrápinu og voru í smá hættu á yfirvigt :) en það blessaðist allt saman. Frábær helgi með frábæru fólki.

Allar myndirnar eru komnar inná síðuna mína undir "Andrea og Rakel í heimsókn + dagur í köben".

Elsku sæta Elísabet prinsessa gangi þér vel á morgun, megi góður Guð vaka yfir þér og vernda litla prinsessa.

luvBerglind

14 október 2006

25

já það er það víst orðið staðreynd ég er orðin 25.ára !!! Það er semsagt jafn mörg ár síðan ég var 20 ára og þangað til ég verð 30, já ég virðist bara verða klárari eftir því sem ég verð eldri, það eru ekki allir sem fatta þessa staðreynd :) :) Mér finnst ég nú samt ennþá vera 20.ára í anda (sumum finnst ég meira að segja líta út fyrir að vera 18.ára) t.d. verð ég alltaf jafn hissa þegar e-r segir mér kannski að einhver stelpa sem er 5 árum yngri en ég sé ólétt þá hugsa ég alltaf " í alvöru jii svona ung bara 15.ára :) heheh


Ég veit ekki hvort ég sé svona svakalega spennt en ég er allavega vöknuð fyrir allar aldir þrátt fyrir að hafa vaknað ótrúlega snemma í gær og verið að allann daginn í köben. Átti hreint út sagt frábæran dag í gær, hitti Árný og Ingibjörgu í lestinni í gær og af stað héldum við til köben til að hitta þær Lísu og Ísey :) JIII það var svo gaman að hitta þær. Ísey orðin svo stór og alltaf jafn mikil rúsína. Dagurinn var frábær, við fengum okkur að borða á frábærum samlokustað, röltum strikið, settumst á kaffihús og fengum okkur köku,kaffi og smoothís. Fórum að sjálfsögðu aðeins í HM :)
En ekki nóg með það að ég hafi hitt þær allar en þá komu mínar yndislegu frænkur alla leið frá Íslandinu í heimsókn til okkar. Ég náði í þær útá Kastrup og svo var bara brunað beint á strikið og það má segja að þær hafi farið hamförum þar :) Þær stóðu sig með eindæmum vel og þurftu sko enga hjálp frá mér :)
Við frænkurnar vorum síðan orðnar ansi lúnar eftir annasaman dag og enduðum þetta á Hard Rock fengum okkur að borða og svo beint í lestina til Skandeborgar.
FRÁBÆR DAGUR, takk Árný, Ingibjörg, Lísa og Ísey fyrir frábæran hitting og helgin er sko ekki búin hjá okkur frænkum og ég veit að hún á eftir að vera æðisleg.

Myndir frá Helginni koma seinna, skiljanlega þar sem hún er ekki búin hehehe:)
Begga 25 ára beib kveður
Hafið það gott
luv

12 október 2006

Afhverju er ekki allt alveg eins og maður óskar

Unnum okkar fyrsta leik í deildinni í gær á móti Dagný og stöllum hennar í Holstebro. Við byrjuðum skelfilega og lentum 4 - 10 undir en staðan í hálfleik var 11 -13 í seinni hálfleik var eiginlega bara einstefna hjá okkur og lönduðum við 28 - 22 sigri.

Annars er hugur okkar á Íslandi þessa dagana. Sendum allann okkar styrk, alla okkar orku og allar okkar jákvæðu og góðu hugsanir þangað. Megi Guð vera með ykkur Elsku Aðalbjörg, Fannar og Elísabet prinsessa.

luvBerglind

10 október 2006

milli svefns og vöku

Hafið þið lent í því að leggja ykkur og eftir einhvern tíma teljið þið að þið séuð vöknuð... en raunin er að maður er bara ekkert vaknaður heldur svona á milli svefns og vöku, maður veit hvar maður er, heyrir kannski í umhverfishljóðum í kringum sig EN getur sig hvergi hreyft og ekki vaknað almennilega....úfff lenti í þessu áðan og þetta er svo óþægilegt, ég fann alveg hvernig hjartað fór á þúsund og ég fór að anda hraðar og ég hugsaði meira að segja róleg, slakaðu á þú vaknar eftir smá stund. Ég reyndi að hreyfa hendurnar, fæturnar, reyndi meira að segja að láta mig detta fram úr sófanum EN nei nei ég var bara lömuð....en sem betur fer vaknaði ég, sko svona alvöru vakandi, stuttu seinna...Þetta er ótrúlega skrítið og ekki fyrsta skipti sem ég lendi í þessu furðulegt
Styttist óðum í köbenferð, frænkuheimsókn og að kellan verði árinu eldri...já aldeilis spennandi tímar framundan. Fékk einmitt afmælispakka sendan frá m&p og mamma er spenntari en ég, spurði strax ertu búin að opna hann...ég ætla nú að reyna að þrauka fram að afmælisdeginum og opna hann þá :)
jæja þangað til næst
Hafið það gott öll sömul
luvBegga

08 október 2006

Haustið komið

eða svona eiginlega, það varð bara kalt 1,2 og bingó. Maður verður bara að taka því, enda sumarið búið að vera frábært og einhvern tíma varð haustið að koma....
en að öðru við spiluðum á móti Slagelse DT á föstudaginn. Anja Andersen þjálfar slagelse og er þetta lið stjörnum prítt. Við töpuðum 30 - 22, þetta var svona OK leikur hjá okkur, aðeins of mikið að tæknifeilum sem er afar slæmt að gera á móti jafn sterku liði og Slagelse. Gellurnar í slagelse byrjuðu frá fyrstu mínútu að skora fyrir aftan bak, gera sirkus mark og markmaðurinn hjá þeim "toppaði" þetta með því að standa á haus í víti...já og það gerði hún á 10 mín eða eitthvað....ÆJJJJ mér fannst tímasetningin frekar skrítin, en Hrabba skoraði úr vítinu, ég hefði nú örugglega bara frosið og skotið beint í markmanninn, kannski að maður ætti að fara að æfa þetta - hlýtur að vera svaka sniðugt fyrst besti markmaður í heimi gerir þetta !!!!! held samt ekki fimleikar hafa aldrei verið mín sterka hlið...
Ég fékk að spila í leiknum og það alveg slatta einhverjar 40 mín held ég, ég stóð mig OK, en þetta er allavega byrjunin, svo er það bara þolinmæði...
Við komum síðan seint heim eftir leikinn þannig að ég fékk að gista hjá Hröbbu í nýja flotta húsinu þeirra, ekkert smá glæsilegt. Við höfðum það síðan kósí á laugardaginn, Hrabba bakaði skonsur, fórum í Bazar vest sem er svona markaður með allskonar dóti og geðveikum ávaxtamarkaði og síðan var ég tekin í kennslustund í fótboltaspili usss, Viktoría og Hrabba rúlluðu mér upp.
Ég hef nú ekki góðar minningar af svona fótboltaspili (þetta er svona spil með köllum á stöng æjjj þið vitið svona handföng sem maður snýr köllunum í hringi!!) einu sinni fórum, ég, Elfa, Anna, Kolla og Árný niðrí bæ og á einhvern skemmtistað og einmitt í svona fótboltaspil og við byrjum að spila á móti einhverjum gaurum og leggjum einn bjór undir, að lokum vorum við semsagt búnar að tapa nokkrum sinnum og ákváðum að borga þeim einn (eða Elfa gerði það nú) og síðan bara koma okkur út....EN NEI NEI gaurinn hélt nú ekki, reif í mig alveg brjálaður og sagði að ég/við skulduðum þeim fleiri drykki, kellan með sína vöðva (einmitt) reif sig burt og ætlaði að fara af stað niður stigann, lít upp og þá bara skvasssss kjellinn hellti yfir mig bjórnum, sem Elfa gaf honum btw....djöfull var ég fyrst pirruð en svo bara í sjokki og fór heim til hans Bjarna míns - já það er klikkað þetta lið og allt útaf einu fótboltaspili.... usssssssss
Annars verður restin af helginni bara róleg, enda verður sú næsta alveg súper æðisleg, ég fæ nefnilega heimsókn hingað til Silkeborgar JIBBÍ fyrsta gistiheimsóknin frá Íslandi, mamma og pabbi komu náttla en þau gistu á hóteli, en frænkur mínar þær Andrea og Rakel ætla að fara á vit ævintýranna og kíkja í heimsókn til frænku, við ætlum að hittast í köben, þar sem ég verð einmitt að knúsa Lísu og Ísey og eyða deginum þar og síðan brunum við til Silkeborgar og gerum eitthvað fullt skemmtilegt :)
Jiii en spennandi
Hafið það gott
luvBerglind
p.s valsstúlkur til hamingju með sigurinn á móti Stjörnunni og HK - komnar á beinu brautina keep up the good work

03 október 2006

Já hvað þarf maður meira...

en góðan nætursvefn til að verða svona eldhress og tilbúin í eitt stykki blogg :) Já letin kom og fór sem betur fer og hressleikinn með eindæmum mikill í dag...
Ég og Bjarni ákváðum, þar sem við vöknuðum svo snemma, að taka smá túristaleik í dag og keyrðum stóran hring í nágrannabæi. Þetta var alveg ágætt við erum allavega búin að finna út hvert við förum EKKI með þá sem koma í heimsókn :)


Var að horfa á Oprah áðan ( já er gjörsamlega dottinn í pakkann...) og þar var Pink í heimsókn og var verið að ræða lagið "Stupid girl" og myndbandið við það lag. Mér finnst þetta myndband algjör snilld... Hafið þið séð þetta myndband? Hún þorir allavega að segja eitthvað um þetta!!!



Núna eru bara 10 dagar þangað til ég hitti hana Lísu mína og Ísey .... Ég og Árný ætlum að fara stelpuferð til köben og hitta þær stöllur, það verður náttla æði og líður mér bara eins og barni á jólunum:) Þessa mynd tók ég af Ísey bara rétt áður en ég fór út og er hún sko ansi mikið búin að stækka síðan þá skvísan :)


Já og svo fer að koma að því að kellan verði árinu eldri, efast um að ég haldi partý því til heiðurs en þó aldrei að vita nema maður haldi eitthvað smá, kannski bara kaffiboð hæfir það ekki svona þegar maður er orðin svona stór hehehe. Það er allavega nóg af fólki sem maður getur boðið það eru íslendingar út um allt :) Mér finnst ekkert gaman lengur að eldast það er alltof stutt í þrítugs afmælið úfffff tíminn líður bara hraðar og hraðar eftir því sem maður verður eldri - skil bara ekkert í þessu...

Svo ætlum ég og Bjarni að bjóða í mat í kvöld, það verða semsagt ÉG og 4 strákar, held einhvern vegin að ég verði ekki mikið inní umræðuefninu í kvöld, ég mun þó reyna hvað ég get að skjóta inn einhverju skemmtilegu t.d. sáuð þið melrose jiii svo spennandi - reyndar gæti Heimir fylgt mér eftir í því hann virðist laumast í þættina, komst upp um hann um daginn þegar ég var eitthvað að horfa á melrose og Heimir vissi meira um þetta en ég...hehehe

jæja eigum við ekki að segja þetta gott í bili
Hafið það gott elskurnar og ekki vera feimin að commenta ég bít ekki - LOFA
LuvBerglind

p.s Heimir spiluðuð þið ekki bara 17 holur telur það þá !!!!!

02 október 2006

Það er alveg..

fullt búið að gerast og margt að fara að gerast, en því miður nenni ég engann veginn að skrifa um það, einhver leti sem er að tröllríða íbúum á drebbanum, eða allavega öðrum, hvernig er hægt að vera svona... maður bara spyr sig.

annars bara hress og skrifa ennþá meira þegar ég verð orðin eiturhress...

luvBerglind