31 maí 2006

Helgin

Helgin byrjaði vel, fór á fullkomið brúðkaup á föstudaginn, þetta er frábært leikrit mæli sko með því, ég allavega skemmti mér rosalega vel. Fór svo á laugardaginn fyrst í útskriftarveislu til Öddu systur hans Bjarna, hún var að útskrifast úr MH gellan, til hamingju skvís..svo lá leiðin til Sillu og Stebba í útskriftar og innflutningspartý, ég var nú ekki lengi en alltaf gaman að vera með valsstelpunum og mikið á ég eftir að sakna þeirra :/

Svo var það aðal atburður helgarinnar, eitthvað sem við vorum allar búnar að bíða eftir síðan ég veit ekki hvenær, já Makedóníuleikurinn. Þetta byrjaði nú ansi vel hjá okkur og þegar 35 mín voru búnar þá vorum við 16 – 12 yfir, en þá bara gerðist eitthvað og við spiluðum hrikalega þær 25 mín sem voru eftir af leiknum og töpuðum með 5, 23 - 28, fyrri og seinni hálfleikur voru gjörsamlega eins og svart og hvítt....en ekki er öll nótt úti enn, þurfum bara að girða í brók og bretta upp ermar og vinna leikinn með 6 mörkum útí Makedóníu.

Síðan fer að styttast í að ég hitti hann Bjarna minn, en ég verð eftir í DK eftir Makedóníu og síðan komum við saman heim 8.júní :) þá eru bara þessir fjórir mánuðir liðnir sem við erum búin að vera í sundur, hefur nú bara liðið frekar hratt, veit ekki hvort að Bjarni er sammála þar sem þetta er örugglega búið að vera aðeins erfiðara fyrir hann að vera svona aleinn úti á meðan ég hef alla vinina og fjölskylduna hér.

Síðan er bara bráðum að koma “sumarfrí” þ.e. frí frá boltanum og eru allar helgar þangað til við förum út til DK, fullbókaðar, eins og reyndar flestar helgar eru á sumrin...Ég hlakka mikið til sumarsins og hef á tilfinningunni að þetta verði brilliant sumar

Hafið það gott
Beggsí

26 maí 2006

Kreista bólur

Var að fara í gegnum myndaalbúmin mín og rakst á þessa mynd. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þessi gaur var að gera....
sko þannig er mál með vexti að þessi mynd er tekin á hótelinu í Grikklandi þar sem við vorum að keppa í evrópukeppninni, gluggarnir á hótelinu voru svona speglagluggar að utan, en samt sást alveg smá inn, en þessi gaur á greinilega ekki spegil heima hjá sér því hann stoppaði bara þarna fyrir framan "spegilinn" (gluggann) og byrjaði að kreista bólur og við vorum allar fyrir innan að horfa á hann og gjörsamlega grenja úr hlátri..já ég er ekki að grínast...þetta var svo ógeðslega fyndið





Þessi mynd er dáldið óskýr en það sést samt hvar hann er að kreista eina væna á enninu :)









Jæja hendi inn fleiri skemmtilegum myndum seinna varð bara að setja þetta inn því þessi gaur er náttla alveg milljón….

Hafið það gott

Beggsí



 Posted by Picasa

Komin heim og enn á lífi :)

Kom heim áðan eftir skemmtilega ferð til Hollands, alltaf gaman að vera með landsliðs-píunum og sérstaklega þegar þungar skólabækur og fartölva voru ekki í eftirdragi. Við kepptum 2 leiki við Holland, töpuðum báðum, en enga að síður góð æfing fyrir leikina á móti Makedóníu. Fyrri leikurinn er núna á Sunnudaginn í höllinni - skyldumæting, seinni leikurinn fer síðan fram í Makedóníu á laugardaginn eftir viku.

Í ferðinni setti Stebbi af stað leik sem heitir morðinginn. Allir leikmenn drógu miða sem á stóð nafn eins leikmanns, sjúkraþjálfara, þjálfara eða liðsstjóra og fyrir neðan var skrifað hvaða morðvopn ætti að nota á viðkomandi leikmann. T.d. var Clausen "drepin" með því að vera klipin í rassinn, Hanna með blautum sokk, Þór með koss á kinnina, Anna Úrsúla með varasalva og Jóna með súkkulaði. Reglurnar eru þannig að maður á að reyna að koma þeim einstakling sem maður fékk á miðanum fyrir kattarnef án þess að nokkurt vitni verði að glæpnum...hehe þannig að það var sjaldan sem einhver var ein í þessari ferð, maður límdi sig alltaf við einhverja 2 aðra svo að maður væri nú örugglega save. Ég er semsagt ennþá lifandi ótrúlegt en satt hehe já ég kem á óvart...solla, viðar og guðbjörg eru einnig eftir og ég segi bara PASSIÐ YKKUR múhahahahahaha :)

Kláraði að lesa bókina blekkingaleik eftir Dan Brown (sá sami og skrifaði Da Vinci lykilinn) í ferðinni og mæli með henni, ég var ótrúlega spennt allan tímann.

Erum að fara á morgun á fullkomið brúkaup og ég hlakka mikið til, það er langt síðan ég hef farið í leikhús og ætlum við valspíur að gera okkur glaðan dag og fara saman. Hef ekki heyrt neitt nema jákvætt um þetta leikrit, það á víst að vera alveg rosalega fyndið og skemmtilegt, allavega sagði Sara mér það, ég get allavega ekki beðið.
Síðan á laugardaginn ætlar Silla mín og Stebbi að halda innflutningspartý það verður örugglega æðislega gaman :) þau eiga ótrúlega flotta íbúð í hvarfahverfinu, alveg ótrúlega vel byggð blokk hehe (pabbi kom ekkert nálægt því) og líka svona
vel þrifin hahaha :)

Þessi mynd er af mér, Sillu og Örnu á HSÍ hófinu...ég virðist ekki geta bloggað nema þegar ég geri það gegnum myndasíðuna mína Picasa - díses afhverju ekki?? Þið verðið þá bara að sætta ykkur við blogg með mynd hér eftir !!

jæja nenni ekki að bulla meira...Gangi þér vel á morgun að keppa Bjarni minn-knús til DK
Hafið það gott
KveðjaBegga

 Posted by Picasa

19 maí 2006

Sól í hjarta

Ég er svo glöð akkurat núna :) ég og Anna vorum að klára áðan að flytja lokaverkefnið okkar og það gekk svona ljómandi vel. Þvílíkt þungu fargi af okkur létt. Ég er ekki beint mikið fyrir það að standa fyrir framan fólk og tala, en svei mér þá stelpan gat þetta :) Ég hélt reyndar fyrst þegar ég var að byrja að hjartað myndi springa það sló svo hratt og ég fann fyrir því í hálsinum hehe.....en bara HÆ HÓ OG JIBBÍ JEI VIÐ ERUM BÚNAR AÐ KYNNA VERKEFNIÐ

Við fórum síðan í sund til að slaka á og fengum okkur að borða á Vegamótum...ummmm ekkert smá gott.

Hef annars frá svo litlu að segja....Kepptum 2 leiki á móti Hollandi í vikunni, unnum einn en töpuðum hinum. Höfum ekki unnið Holland áður þannig að það var frábært að ná að vinna þær eftir að gullarmurinn hennar Jónu skoraði sigurmarkið á lokasekundunum....uss dýrari týpan

Erum að fara svo til Hollands núna á sunnudaginn að keppa 2 leiki aftur á móti Hollandi, hlakka dáldið til að fara loksins í ferð þar sem ég þarf ekki að taka þungar skólabækur með eða glósur til að læra...núna ætla ég bara að taka með mér tölvuna til að horfa á e-a skemmtilega þætti, vúhú :)

Jæja er að fara að hitta hana Lísu mína og yndislegu Ísey krúsí, ætlum að rölta niðrá austurvöll.

Hafið það öll rosalega gott

Beggan kveður að sinni með sól í hjarta :)

 Posted by Picasa

15 maí 2006

Púúúúúú

Já ég segi púúú við kvefi, hósta, hálsbólgu, beinverkjum, magaverkjum, höfuðverk – púúúú á flensu...hvað er það að fá flensu þegar það er næstum komið sumar, ekki gaman get ég sagt ykkur. Öll vikan er búin að fara í það að snýta sér, drekka heitt te, sólhatt, taka inn hóstasaft og blabla en þetta versnaði bara og endaði með því að ég fékk hita í gær og var með hita í morgun og þurfti að sleppa æfingu...

En að öðru helgin var skemmtileg, fyrir utan flensuna, en HSÍ hófið var á laugardaginn og byrjuðum við valsstelpur daginn snemma og hittumst kl.13 og fórum í ratleik og enduðum í laugum. Hófið var bara fínt, reyndar er það alltaf eins, þ.e. sama dagskrá og meira að segja sami matur :) en samt alltaf gaman á svona samkomum.

Hérna er mynd af okkur valspíum í ratleiknum við vorum allar með kórónur og borða sem á stóð ýmislegt á mínum stóð miss mermaid það er sko saga á bak við það, en ekkert til að tala um hér :) og aftan á stóð “stelpur ekki skjóta í gólfið” hehe ég segi þessa setningu ansi oft :)

Eitt smá persónulegt - Anna vinkona og lokaverkefnis félagi ..takk fyrir að vera svona frábær :)

Svo er það landsleikur á morgun á móti Hollandi, allir í höllina...

Hei jú eitt í viðbót...ég náði báðum prófunum :) JIBBÍ KÓLA við því get ekki lýst því hversu ánægð ég er...nú er það bara að klára þetta lokaverkefni og reyna að gera það með stæl...

Þarf að fara að snýta mér...segi því bara bæjó í bili

Hafið það gott

Kveðja Begga

 Posted by Picasa

10 maí 2006

Komin heim

Þá er ég komin heim eftir frábæra ferð til silkeborgar, eins gott að þetta heppnaðist vel þar sem flugmiðinn kostaði slatta, mér finnst að maður eigi að geta fengið hoppfargjald eða eitthvað þess háttar, en ég pantaði miðan kl. 22.00 ca. um kvöldið á fimmtudegi og var mætt útá Leifsstöð kl. 05.45 föstudagsmorgun...en skiptir ekki öllu

Þessi óvænta heimsókn heppnaðist eins og best verður á kosið, Bjarna grunaði ekki neitt, skil samt ekki í því, því hann hringdi í mig þegar ég var í lestinni og þá byrjaði konan að segja hvaða stoppistöð væri næst, en Bjarni er greinilega ekkert að spá í umhverfishljóðunum í kringum mig..hehe

Ég fór m.a. á leik með Bjarna og þeir unnu 2 -0 og Bjarni gerði sér lítið fyrir og lagði upp eitt mark..með HÆGRI í þokkabót (hann er örvfættur - segir maður það !) en fyrir þá sem ekki vita þá er hann frekar einfættur :)..Þannig að þessi helgi var toppuð með sigri Silkeborgarmanna á heimavelli, ekki leiðinlegt það...

En nú er ég komin heim í alvöruna, klára lokaverkefnið og svo æfa, æfa, æfa

Ákvað síðan svona í lokin að setja inn mynd af Bjarna og flúðunum sem eru þarna í Silkeborg city og eins og þið sjáið líka ef þið skoðið myndina betur þá er fólk á bátum þarna, þannig að það er ýmislegt hægt að bralla í Silkeborg og ef þetta trekkir ekki fólk að þá veit ég ekki hvað :) hehe, auk þess sem ég og Bjarni erum yfirleitt mjög skemmtileg…legg til að þið farið að skipuleggja fríið – Silkeborg er heitasti staðurinn í ár…össss

Jæja nóg í bili

Hafið það sem allra best

Kveðja Begga

 Posted by Picasa

05 maí 2006

Við erum meistarar...


Við erum meistarar, við erum deildarbikarmeistarar...loksins fengum við titil og getum sungið þetta lag án þess að segja samskipameistarar eða eitthvað þvíumlíkt...Þetta var tær snilld í gær, þvílíkur karakter hjá okkur að ná að vinna upp 7 mörk og vinna svo leikinn..váááá hvað var hrikalega gaman...Það á samt að banna þessum fréttamönnum að taka viðtal við mig svona beint eftir leikinn...því eins og Óli sagði við mig þá er eins og ég hafi andað að mér helíum áður en ég fór í viðtalið hehe ég verð svo skræk í röddinni að það er ekki fyndið hehe:)

Áhorfendur voru tær snilld og sambatakurinn sló að sjálfsögðu í gegn eins og alltaf – þið eruð snillingar Baldur og Gestur og allir hinir sem hafa stutt okkur..ÞIÐ ERUÐ FRÁBÆR :)

Fórum svo eftir leikinn uppá kringlukrá þar sem allt liðið og stuðningsmenn voru saman komin og var meistaraflokksráð búið að skreyta allt með rauðum og hvítum blöðrum og borðum útum allt ekkert smá flott...þar reyndu kalli og gústi fyrir sér á trommunum og tóku sig bara vel út hehe þeir geta farið á trommurnar þegar þeir hætta að þjálfa :)
Eftir kránna fórum við til Ágústu þar sem tjúttað var fram eftir nóttu...Geggjaður dagur

En svo er annað kellan er ekki bara að lesa bók sem heitir blekkingaleikur heldur er ég búin að standa í einum slíkum undanfarna daga. Ég semsagt ákvað að ef við myndum ná að vinna ÍBV í tveimur leikjum þá myndi ég skella mér út til Bjarna án þess að hann vissi af sem og ég gerði og þið hefðuð átt að sjá hvernig hann brást við, það var svo hrikalega fyndið, en samt svona had to be there moment :)
Ég verð næstu daga í DK hjá honum Bjarna mínum og vá hvað það á eftir að vera ljúft...

Segi bara bæ í bili
Hafið það gott, kveðja Begga

03 maí 2006

Loksins..

Já loksins loksins tókst okkur að vinna í eyjum, höfum ekki beint gert góða hluti þar í vetur, en það tókst núna...en aðeins hálfur sigur unninn - leikur aftur á fimmtudag og hvet ALLA valsara til að koma í höllina.
Annars mest lítið að frétta, helgin fór mest í handbolta. Horfði á 2.flokks strákana vinna Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð, glæsilegt hjá þeim - til hamingju strákar.
Svo bara hafði ég það gott með múttu og pabbsa en þau voru að koma heim frá Spáni og mamma gerði sér lítið fyrir og kom heim með 20 pör af skóm með sér, haha ég hélt ég myndi andast þegar hún dró hvert skóparið á fætur öðru uppúr töskunni og svo bara útdeildi hún skóm á liðið, mamma og pabbi klikka ekki :)
Horfði á Kompás þáttinn á Sunnudaginn þar sem þeir fylgja eftir tveimur fíklum. Ekki spennandi líf og vonandi að þetta sé forvörn fyrir unglingana - hver vill lifa svona lífi.
Nennekki meir
hafið það gott kveðja Begga