21 nóvember 2006

vitleysingurinn ég!!

Komin heim í snjóinn, það er fínt svo lengi sem ekki er geðveikt rok og ótrúlega kalt í leiðinni. Ég reyndar hef alltaf verið voða hrifinn af snjó hann lýsir svo upp þegar myrkrið er svona mikið, ég vona að það verði snjór um jólin.
Talandi um jólin þá er maðurinn við hliðiná okkur búinn að setja upp jólaljós. Yfirleitt hefur mér fundist þetta ALLT OF SNEMMT ekki einu sinni komin desember og mér finnst það reyndar að það mætti bíða fram í desember, en þar sem ég er ekki í prófum þessi jólin þá finnst mér þetta eiginlega bara dáldið skemmtilegt, en skil sko vel alla sem eru að fara að byrja í próflestri og prófum á næstu dögum að þá má helst ekkert jólalegt vera í kringum mann fyrr en maður hefur klárað prófin. Ég var allavega þannig að ég komst engan vegin í jólaskap fyrr en prófin voru búin.

en nóg um jólin...sufjan stevens er víst aðal málið í dag, eða það skynja ég allavega, ég verð þó bara að viðurkenna fávisku mína og segja "hver er það" ok ég er búin að kynna mér hann svoldið undanfarið, en vááá hvað ég er eftirá greinilega. Ég hef nú alltaf verið dáldið mikið eftir á hvað varðar tónlist og svona eða þannig séð, verður dáldið að mata mig með góðri tónlist. Ég vil nú samt líka kenna útvarpstöðvunum í DK um þetta því ég hlusta ansi mikið á þær og ALDREI hafa þær spilað tónlist eftir sufjan stevens. En hann er inn í dag og ég býð bara spennt eftir að heyra lögin frá honum.

jii þetta var hressandi blogg um ekki neitt nema fávisku mína
Ég er allavega heima á Íslandi þessa dagana í mömmumat og huggulegheitum
Hafið það gott
knúsBerglind

17 nóvember 2006

Hæ hó ég er að koma aftur !!!!

Fólk fer að fá leið á mér, bara alltaf á klakanum þessa stundina. Ég er búin að vera meira á Íslandi í nóvember en heima í DK, en það er bara gott og blessað því ég verð ekki mikið heima um jólin eða bara 5 daga. Jamm ég er semsagt að koma á mánudaginn og verð allavega fram á laugardag, hvert framhaldið verður eftir það kemur svo í ljós í vikunni.
Annars er bara allt fínt að frétta, gott að koma heim til Bjarna og líka að koma í góða veðrið sem er hérna. Hérna er ennþá 10 stiga hiti og Bjarni er ennþá að spila golf á sumarteigum eða grínum eða hvað þetta nú heitir. Hann er allavega rosa glaður með lífið og æfir sig óspart fyrir Spánarferðina okkar :) Jebb við ætlum að skella okkur í vikuferð til Spánar í des. Við erum bæði mjög spennt og verður gott að komast í smá frí því álagið er búið að vera svo mikið hérna ....hehe djóóókkkkk gætum ekki haft það náðugra :)
Bara spurning hvort ég verði komin með golf-bakteríuna eftir ferðina okkar - aldrei að vita!!
Helgin verður róleg enda leikur á sun hjá Bjarna, gríðarlega mikilvægur leikur eins og reyndar allir leikirnir það sem eftir er eiginlega !!!
setti inn myndir frá Íslandsförinni síðustu.
Meira var það ekki í bili
hafið það gott
knúsBegga

16 nóvember 2006

Ísland í máli og myndum

Erla og Lísa sætu í saumó
og þarna hinu megin er ég með Ísey krúsí sem er orðin 9 mánaða..váá hvað tíminn flýgur
Jæja ég skrapp til Íslands og var heima í 6 daga. Það var æði og auðvitað full dagskrá alla dagana. Ég nenni ekki að telja allt upp en mér tókst svona nokkurn vegin að gera flest sem mig langaði til nema að fara í sund, ég hefði eflaust frosið í hel ef ég hefði farið.

Jæja það koma nokkrar myndir úr ferðinni...enjoy...






Hérna eru tengdó (stolt amma og afi ) Elísabet og Adda.







Guðrún Drífa, Soffía, Hildigunnur og Gréta. Ég fór til Önnu pönnu á laugardagskvöldið og átti skemmtilegt kvöld með nokkrum valspíum.




Eva María og Begga í saumó og fyrir neðan Lilja, Heiður og Ágústa niðrí laugardalshöll eftir leikinn hjá stelpunum á laugardaginn.

Kristófer töffari er sko búinn að stækka :) váá hvað hann er orðinn stór strákur og svo mikið krútt. Hann er svo mikil dúlla gaf mér stubbaknús þegar ég kvaddi hann :)


Hérna er fallega Elísabet prinsessa og hetja. Það var alveg æðislegt að hitta hana og fjölskylduna hennar. Hún er algjört æði og ég gat ekki hætt að horfa á hana og dást að henni.


Familían mætti að sjálfsögðu til að segja Hæ við mig. Vantar reyndar helminginn á myndina en þau eru þarna e-rs staðar.





Hérna eru Hafrún, Arna, Lilja og Silla en við kíktum á kringlukránna í smá mat og tjatt










Ég náði að kíkja í saumó og fékk að smella mynd af elskunum mínum.


Svo er ég þarna fyrir neðan mynd af mér og Elísabetu æði, hún sofnaði bara hjá mér, algjört gull.






Svo að lokum Til hamingju elsku Martha og Heimir með prinsinn ykkar. Við hér í Silkeborg getum ekki beðið eftir að hitta ykkur og fá að sjá gullið ykkar.



Hafið það gott
LuvBerglind

13 nóvember 2006

óvænt óvænt óvænt

kellan mætt í óveðrið, hvað er að gerast með veðrið hérna á Íslandi, óveður og snjór, hálka, rok og rigning bara allar tegundir af veðri....en allavega ég er mætt til Íslands. Kom óvænt heim á fimmtudaginn en það munaði reyndar ekki miklu að ég hefði misst af fluginu þar sem þetta blessaða lestarkerfi í DK var alveg að fara að kostum. Þegar ég mætti til Skanderborgar til að taka lestina á Kastrup, var eins og vanalega strax komin seinkun 12 mín, ég bjóst nú alveg við því, en svo liðu þessar 12 mín en engin lest kom og þá byrjaði ballið, konan í hátalarakerfinu byrjar að tilkynna meiri seinkun og meiri og að lokum segir hún bara að ekki sé vitað hvenær eða bara hvort að lestin komi þar sem einhver motor vandamál eigi sér stað. Ég fer náttla í nett panik kast, yfirleitt ekki auðvelt að stressa mig upp (einmitt) en þarna kom smá stress. ÉG hringi í Bjarna og set hann í málið að kanna hvort ég geti tekið innanlandsflug eða í versta falli að taka flugið um kvöldið heim...í því
kemur önnur lest á svæðið sem er á leið til köben hún var notabene hálftíma of sein en ég ákvað að taka sénsinn og taka hana og vona það besta - þá var klukkan orðin 9.20 en ég ætlaði að taka lestina 8.15 semsagt klukkustund seinna er ég komin upp í lest, sem betur fer var þetta reyndar svona hraðlest, en allavega til að gera langa sögu stutta, er ég komin á hovedbanegarden kl.12.05 hleyp af stað með hlunkinn minn og í næstu lest og er komin á kastrup 12.30 til að innrita mig en vélin fór í loftið 13.20 mér semsagt tókst þetta vúhú og var ekkert smá glöð :)

Það er búið að vera æði að vera heima og mikið búið að gera.
Ég skrifa meira seinna
luv og Íslandskveðjur Begga

06 nóvember 2006

Fannst eins og ég hefði aldrei farið

Komin heim í heiðardalinn. Æði að hitta hann Bjarna minn aftur og notalegt að komast í sitt eigið rúm :)
Mótið í Hollandi gekk bara ágætlega svona í heildina, unnum 2 og töpuðum 3. Það var æði að hitta píurnar aftur og geta tjáð sig 100% og að sjálfsögðu aðallega að allir skildu hvað ég sagði:)
Það var geggjað að koma heim og hitta valspíurnar mínar, náði síðustu 15 mín af leiknum þeirra á móti Akureyri og gat því knúsað þær allar sveittar og æðislegar :) Ég hitti síðan skvísurnar um kvöldið og frábært að ná nokkrum klst með þeim. Ég náði líka að hitta hana Lísu mína, það var auðvitað æði þó stutt væri. Svo hitti ég alla familíuna mína nema systur mína sem stakk af til Glasgow og Bigga sem var á sjónum. Ég fékk að sjálfsögðu að stjórna matnum þessa 2 daga og fékk fisk báða dagana, já haldið kannski að ég sé skrítin en vááá hvað ég er búin að sakna þess að fá ýsu...ummmmmmmm.
Já ég náði að gera slatta á þessum 1 og 1/2 degi sem ég var heima, náði meira að segja að næla mér í einhverja magapest en hún gekk fljótt yfir sem betur fer.
Ég furðaði mig mest á því hvað mér fannst ekkert skrítið að koma heim, fannst bara eins og ég hefði skroppið í nokkra daga til útlanda, ekki mikið búið að breytast sem betur fer.
Annars ekkert nýtt, ekki nema þið hafið eitthvað til að segja mér
Hafið það gott
LuvBerglind