27 maí 2007

The end

Þá er ég komin heim til Íslandsins góða, byrjuð að vinna og reyna að venjast hinu venjubundna íslenska lífi þ.e. æfa,vinna,æfa,sofa :) Tók mig nokkurn tíma að aðlagst þessu, hef þurft að fara að sofa fyrir kl. 22 fyrstu vikurnar haha en þetta er allt að koma.

Bjarni minn er líka kominn heim þannig að ég þarf ekki að kvíða fyrir árs fjarbúð...ekkert nema gott um það að segja. Bjarni er reyndar ristarbrotinn og gengur um á hækjum þessa dagana, þannig að ég er hjúkka 24/7.

en allavega þetta er síðasta bloggið, ég opnaði bloggið þegar ég flutti út til að vinir og ættingjar ættu auðveldara með að fylgjast með okkur og kasta á okkur kveðju...núna erum við komin heim þannig að þið hringið bara ef þið viljið ná í mig :)

Hafið það best...takk fyrir öll commentin...
knúsBegga

02 maí 2007

sumar.is

Ég er sko búin að standa mig vel í dag...algjörlega eins og sönnum Íslendingi sæmir er ég búin að sleikja sólina eins og ég muni aldrei sjá hana aftur, er auðvitað rauðari en karfi núna...jamm veðrið er gjörsamlega yndislegt hérna í DK þessa dagana, ég trúi ekki að ég sé að yfirgefa þetta dásemdarveður og fara heim í rokið !!!! ég held samt ennþá að það verði rosa gott sumar heima á Íslandi því vetur og sumar frusu saman (eða eitthvað álíka) og það á að vera boð um gott sumar ÉG TRÚI ÞVÍ, hef reyndar alltaf verið auðtrúa en bíttar ekki.



Ég kem heim á sunnudaginn (að öllum líkindum) og verð heima í næstum allt sumar. Ég hlakka rosa til að byrja að vinna, hanga með vinkonunum, fara í útilegur, grilla, drekka íslenskt vatn, fara í sund, hafa bjart allan sólarhringinn og og og... allavega er mitt helsta markmið fyrir sumarið að ganga upp Esjuna, hef ekki ennþá gert það en talað um það í mörg ár núna - Ég veit alveg hvaða píur ég dreg með mér í það, Bjarney og Hafrún alvanar því að ganga þarna upp og Bjarney víst að hlaupa þar líka, en allavega upp skal hvernig svo sem ég fer að því.




Fór samt heim síðustu helgi í ferminguna hennar Elmu, það var æði og þvílíkt flott veisla með æðislegum mat og yndi að hitta ættingjana mína. Ferðin var hins vegar ansi stutt ég kom á laugardegi og fór aftur mánudagsmorgun. Ég fór m.a. að skoða íbúðina okkar Bjarna sem verður tilbúin í lok september og spennan magnast, gaman að spá í öllu sem þarf að spá í eða svona þangað til við þurfum að taka allar ákvarðanirnar, það er meira en að segja það!!!




annars var einhver golfpía sem fór holu í höggi um daginn og fékk dásemdar verðlaun fyrir það, nebbla ársbyrgðir af tyggjói...ég vildi að ég væri hún.




Begga