30 desember 2006

púha kellan er þreytt....

Hæ og gleðileg jól allir saman. Já ég er búin að bralla alveg ótrúlega mikið síðustu 17 daga eða svo. Er meðal annars búin að fara til þriggja landa, geri aðrir betur. Var einmitt að koma heim fyrir 3 klst síðan úr 14 tíma rútuferðalagi frá Sviss afar hressandi eins og þið getið ímyndað ykkur. Ég ætla að skrifa e-d meira seinna og segja frá Spáni, Íslandi og Sviss :) Hafið það best...ælta að lúlla smá
luvBerglind

13 desember 2006

Vandpolo, rafmagnslaus og ferðalag

fórum í Vandpolo í gær, fengum að hafa svona sundhúfur eins og alvöru pró, en vá hvað þetta er erfitt, halda sér uppi, grípa, kasta og einhver að ýta í mann allan tímann, púff. En þetta var stórskemmtilegt að prufa, þó ég ætli nú ekki að leggja þetta sport fyrir mig, enda er ég ferleg get ekki fengið smá vatn framan í mig án þess að þurfa að þurrka það burt með höndunum og það gengur nú ekki alveg nema ég mætti hafa sundgleraugu þá kannski hugsa ég mig um!!!
Dagurinn í dag er búinn að vera ferlegt vesen, bíllinn tók uppá því að verða rafmagnslaus og það í Århus. Ég dró ekki meira né minna en 7 manns með mér í vesenið, kæmi mér ekki á óvart ef skúladætur og makar þeirra sendi mér ekki jólakort í ár hehe :) Niii þau voru frábær hjálpuðu mér þvílíkt og eru held ég búin að fyrirgefa mér allt stússeríið. Þau vita þá allavega hvert þau eiga að hringja ef þeim vantar greiða :)
Svo bara Spain tomorrow eða á eftir legg af stað eldsnemma í fyrramálið í lest og get ekki beðið eftir að hitta Bjarna minn. Vonandi verðum við heppin með veður, veitir ekki af smá lit þó það væri ekki nema smá roði í kinnarnar er orðin eins og vofa !
Þetta verður ekki nema 11. utanlandsferðin mín í ár, já og ég á ennþá 2 eftir áður en árið líður hressandi :)
Ég bið ykkur vel að lifa, hafið það gott, góða lærustrauma til allra sem þess þurfa og Gleðileg jól ef ég skrifa ekki aftur fyrir jólin.
luvBerglind

11 desember 2006

Rolling, rolling....

Frábær helgi :) Julefrokostið á laugardaginn heppnaðist alveg hreint æðislega, fengum góðan mat - ekki samt jólamat en súper góður og svo var partý langt fram á nótt. Ég lærði fullt af nýjum skemmtilegum partýleikjum, við fórum í singstar og ég og Hrabba tókum liðið í "það var lagið" leikinn, sama og við gerðum úti í Rúmeníu. Þær voru ekkert spes góðar í honum, ég get nú reyndar ekki sagt neitt er hrikaleg þegar kemur að lögum, EN nú detta allar dauðar lýs af ykkur þær þekktu ekki Pixies og lagið Hey, þær héldu að við værum að búa þetta til eða að þetta væri e-r hljómsveit frá Íslandi. Ég og Hrabba misstum andlitið og byrjuðum að syngja lagið fyrir þær og vorum vissar að þá myndi nú kveikna í e-rum sellum hjá þeim, en nei nei þær horfðu bara á okkur eins og við værum e-d skrítnar. En þar hafið þið það Pixies er ekki inn í DK, Noregi, Sviss, Hollandi né Ungverjalandi :)

Hápunktur kvöldsins var hins vegar þegar ég og Hrabba Turner tókum dansinn við Proud Mary lagið hennar Tinu Turner"and were rolling, rolling, rolling on the river" já spurning hvort þær líti sömu augum á mig eftir þennan svaka dans okkar. Því miður náðist dansinn ekki á filmu, en hann var rosalegur lofa því :) Spurning hvort Sigga Jóna taki mig ekki næst með sér í grúppíu þegar hún syngur lagið fyrir okkur valspíur :)
Ég gisti síðan hjá Hröbbu og fékk dýrindis morgunmat að venju hjá henni Hröbbu minni, skonsur og eggjasalat ummmmm, takk fyrir mig Hrabba og Viktor.
en nú þýðir ekkert að hanga uppí sófa og horfa á Despó, já nú þarf kellan að fara að gera e-d af viti því það styttist óðum í Spánarför og heimferð til Íslandsins góða. nóg að gera, alveg merkilegt mér fannst ég hafa nægan tíma meðan ég væri ein hérna í Danaveldi en tíminn er gjörsamlega búin að fljúga frá mér og núna eru bara 4 dagar þangað til ég fer.
Hafið það gott öll sömul og gangi ykkur vel hvort sem það er í próflestri eða jólaundirbúningi.
Hlakka til að hitta ykkur
luvBegga a.k.a dansing queen

08 desember 2006

Martröð

fékk martröð í nótt, eða mér fannst það martröð, mig dreymdi nefnilega að ég væri að fara í próf en væri ekkert búin að læra, ég varð svo stressuð og þurfti alveg smá tíma að átta mig þegar ég vaknaði, að ég væri nú búin með skólann og þyrfti ekki að hafa áhyggjur. Mjög eðlilegt, maður losnar ekki við prófstressið þó maður sé ekki einu sinni í skóla furðulegt :) Reyndar held ég að það sé bara ég sem er furðuleg en það er allt annar handleggur.


Búin að setja inn myndir frá Rúmeníu ferðinni, þær eru hérna vinstra megin fyrir ykkur sem hafið áhuga.




Annars er bara jólahlaðborð á morgun með Århus, hlakka ekkert smá til, held að þetta verði snilld eða vona það allavega.

Annars er bara lítið sem ekkert að frétta, bara 5 dagar í Spán og það verður æði :)

jiiiii er tóm, en þið gætuð kannski sagt mér eitthvað skemmtilegt

luvBerglind

06 desember 2006

er eðlilegt

að hafa þurft að strauja tölvuna mína 3 á einu ári og hún er bara árs gömul. Ég er meistari í að ná mér í einhverja fáranlega vírusa...arrggg hvað þetta getur verið pirrandi úffff. Sem betur fer var ég búin að taka copy af flestum myndunum mínum en það er mest svekkjandi í heimi að tapa öllum myndunum sínum sérstaklega þegar maður er ofvirkur á myndavélina eins og ég.
Ég er sko komin í jólaskap ætla á morgun til Århus að versla mér e-d jólaskraut. Er búin að setja upp eina seríu í gluggann, þannig að það er orðið smá jóló hjá mér. Þó að ég sé ein í kotinu verður nóg að gera hjá mér næstu daga, þrífa, skrifa jólakort, fara á jólahlaðborð með liðinu mínu, föndur og bökunardagur hjá Hröbbu og svo er náttla EM kvenna að byrja á morgun.
Já líf og fjör í baunalandi.
Ég er alltaf á leiðinni að skrifa ferðasöguna frá Rúmeníu hún kemur vonandi áður en árið er á enda.
sökum þess að commentakerfið mitt höndlar ekki álagið sem er við hverja færslu hef ég ákveðið að setja smá reglu en bara þið sem eruð í bleikum naríum megið commenta....
lifið heil
luvBegga

04 desember 2006

Home sweet home

Er komin heim í heiðardaglinn eftir ansi langt og strangt ferðalag frá Rúmeníu. Ferðasaga með myndum og fleira kemur seinna



Kellan er ein í kotinu þar sem Bjarni skellti sér til Íslands. Ég er nú í góðum höndum enda er Hrabba búin að lofa að passa mig voða vel, þannig að ég þarf engar áhyggjur að hafa :)



Annars var merkisdagur þann 25.nóv (reyndi að setja inn kveðju þá en að sjálfsögðu klikkaði bloggerinn) þar sem mín yndislega vinkona Anna átti afmæli. Anna er sko sú sem þraukaði með mér í gegnum hjúkkunámið og var svo "heppin" að vera með mér í hinum ýmsu verkefnum og svo lokaverkefninu!! Hún fékk ansi oft að heyra "hmmm heyrðu ég þarf að fara út í viku útaf boltanum" blabla en stúlkan fær sko þúsund plúsa í kladdann að hafa þolað mig og mitt vesen :) Ég hefði sko aldrei komist í gegnum námið án hennar.
Ég vona að þú hafir átt frábæran afmælisdag krúsí mín, ég hlakka endalaust til að hitta þig um jólin og fá að knúsa ykkur familíuna og sjá Kára sætasta - GET EKKI BEÐIÐ. Afmælisknús og kossar frá mér luvja. (Hérna til hægri eru Anna og Örvar og litli sæti Kári í mallakútnum :)
læt þetta duga í bili enda ansi þreytt kella sem kveður
luvBerglind