
Aftur komin helgi, ég skil ekki í þessu hvað tíminn líður...en þessi helgi verður skemmtileg þar sem bæði ég og Bjarni erum í helgar fríi og ætlar hann og Hörður að halda smá gleðskap á morgun í tilefni þess að Hörður á afmæli á morgun og Bjarni á miðvikudaginn. Tinna kærastan hans Bóa á einnig afmæli á miðvikudaginn þannig að 3 Íslendingar af 6 hérna í Silkeborg eiga afmæli núna á næstu 5 dögum :)
Við vorum að keppa á miðvikudaginn á móti Viborg, en þær unnu t.d. Champions League í fyrra, leikurinn var fínn framan af en undir lokin keyrðu þær yfir okkur og unnu 21 - 30.
Nú er tímabilið hjá okkur næstum búið bara 2 umspilsleikir eftir og fara þeir fram 8. og 15. apríl og spilast á móti liðinu sem endar í 3. sæti í fyrstu deild.
Annars eru komnir nýjir leikmenn í Århus, byrja reyndar á næsta tímabili en það er Pólsk skytta og svo 2 leikmenn frá Suður Kóreu, línumaður og hægri skytta. Það má því segja að liðið sé ansi fjölþjóðlegt því það eru leikmenn frá 6 löndum í liðinu :) Aldrei að vita nema maður læri eitthvað meira en dönsku hehe :)
Bjarni og félagar náðu í þrjú stig á laugardaginn, hann bloggaði, aldrei þessu vant, og skrifaði um leikinn og setti meira að segja inn myndir, kíkið á það
hér. 5. apríl koma síðan foreldrar hans Bjarna, bróðir hans og kærasta í heimsókn og verður það ÆÐI. Þau vænta þess að við séum með dagskrá, en ég er allavega búin að skrifa lista þið getið svo bara valið :) Vonum bara að veðrið haldist eins og það er, búið að vera í kringum 10 °C og sól, þá getum við allavega spókað okkur um úti.
Svo afmælisbörn mánaðarins....til hamingju elsku Ágústa mín með afmælið 15.mars vonandi að þú sért búin að jafna þig á veikindunum. Hlakka til að knúsa þig þegar ég mæti heim...Hafðu það best skvísí
Annars bara líf og fjör þangað til næst verið endilega dugleg að segja HÆ mér þykir það svo ofsa gaman....