hef oft verið spurð að því hvernig ég þori að vera í marki..ertu ekki hrædd við boltann? er ekki vont að fá skot í hausinn eða lærin? o.sv.frv.
Auðvitað er ekkert spes að fá skot í hausinn, ennnnn hins vegar finnst mér frekar að fólk ætti að spyrja útileikmenn í handbolta hvernig í ósköpunum þeir fari að þessu æfingu eftir æfingu og leik eftir leik, þar sem andstæðingarnar nota ýmis konar brögð til að klekja á viðkomandi t.d. hrinda/ýta, slá, klóra, klípa, bíta, tosa í hár, tosa í peysu eða jafnvel stuttbuxurnar, stíga ofan á tærnar, rífa aftan í handlegg, snúa uppá geirurnar og ég veit ekki hvað og hvað. ok kannski ekki alltaf viljandi, en samt stór möguleiki á að þetta geti gerst.
Þetta er eitthvað sem ég hef aldrei komist í tæri við á mínum handboltaferli!!
Ég hef heyrt ansi margar sögur og séð ansi marga marbletti og klór eftir að stelpurnar hafa spilað leiki t.d var Elfa oft með svaðalega marbletti á ólíklegustu stöðum eftir harða baráttu við skvísu í gulri treyju. Aldrei er ég með marbletti eftir svoleiðis slagsmál. Hafrún er líka rosa oft með falleg blá merki út um allt - myndi aldrei fyrir mitt litla líf hætta mér inná línu jeminn....
Það er nú bara þannig að þegar maður er viðbúin skoti og veit hvar það kemur þá er ekkert vont að fá skot í sig og það er ekki oft sem ég fæ skot í hausinn (þó ég sé reyndar búin að fá 2 - 3 í viku undanfarið, en þau koma oft í svona bylgjum...en það er annað mál) auk þess þá geta útileikmenn líka fengið skot í hausinn í vörninni.
Þannig að þegar öllu er á botninn hvolft er bara best að vera markmaður :) ekki satt ??
Annars leikur á morgun á móti slagelse, Anja Andersen og co vilja fara taplausar í gegnum liguna í ár, vonandi að við náum að stríða þeim.
luvBÍH
p.s nýjar myndir undir janúar 2007 hér til hægri.