28 september 2006

Ergilegt....

Við töpuðum á móti FCK, ég fékk minn séns en náði ekki að nýta hann - frekar fúlt en það þýðir ekkert að grenja það bara bretta upp ermar, spýta í lófana og vera ready næst- ekki satt!!!
Þessi ferð til köben var samt alls ekki leiðinleg þar sem Sigrún sæta kom á leikinn og var frábært að hitta hana :) Við náðum að spjalla aðeins áður en ég þurfti að leggja af stað, en við vorum komnar heim kl.2.30 í nótt og þá átti ég eftir að keyra til Silkeborgar, en sem betur fer kom Bjarni og sótti mig.
Annars er það að frétta að ég lét loksins verða af því að kaupa mér nýjan síma og sá sem varð fyrir valinu var ódýr en rosalega flottur sími, ég er rosa ánægð með hann og loksins verð ég þá komin með síma sem hringir :) EN ég fékk líka nýtt símanúmer þannig að bráðum verður gamla númerið mitt óvirkt og því fer hver að verða síðastur að biðja um númerið :) http://www.lge.com/products/model/enlarge/kg800.jhtml hér er tólið.
Svo fer að líða að því að við fáum heimsókn....LOKSINS...alltof langt síðan einhver kíkti til okkar, en mamma hans Bjarna og bróðir hans ætla að koma hingað 20.okt og vera í viku það verður frábært að fá þau.
Svo er Lísa mín að fara að heimsækja mömmu sína til Svíþjóðar og ætlum við að hittast í Köben í einn dag og verður það alveg yndislegt að hitta hana og auðvitað Ísey mína og fá að knúsa þær aðeins og babbla við þær "live" :)
Eitt af því sem er erfitt við að búa í útlöndum er að missa af litlu krílunum sem vinkonur mínar eiga, þau stækka svo rosalega hratt þessar dúllur að áður en maður veit af eru þau byrjuð í skóla !!!
jæja farin að gera eitthvað af viti
hafið það gott
luvberglind

26 september 2006

Stutttttt í þetta skiptið

Hæ hæ stutt í þetta skiptið. Við kepptum leik á móti Ikast síðasta sunnudag, töpuðum með einu marki því miður, spiluðum fínan leik en smá meiri einbeiting í lokin og skynsamara spil þá hefðum við unnið leikinn. Ég kom inná í einu víti en tókst ekki að verða fyrir því. Bjarni og félagar gerðu hins vegar jafntefli á móti Randers og voru þeir ánægðir með það.
Það er svo leikur aftur á morgun hjá okkur Århus píum á móti FCK þannig að það er skemmtilegt ferðalag í vændum - en þá kemur ferða DVD spilarinn að góðum notum :)
Áfram Valur í kvöld - hugsa til ykkar stelpur og sendi góða strauma.
Ég, Bjarni og Heimir sitjum hérna að horfa á Americas next top model JÁ það er girl power í gangi þið sjáið hver ræður fjarstýringunni hér.....Niiii reyndar ekki alveg þeir eru 2 á móti mér einni og við skiptum yfir á fússara eftir smá :) :)
Fleiri fréttir seinna
Hafið það gott
Beggan kveður.......

23 september 2006

Gekk í barndóm


já það má búast við að Bjarni verði svona alla helgina það er nefnilega Ryder keppnin í golfi í sjónvarpinu :) Já já en ég náði nú samt að draga hann út í gær og við ákváðum að fara í svona dýragarð sem maður keyrir í gegnum á bílnum sínum, þannig að dýrin eru bara alveg upp við bílana. Það var ótrúlega gaman að fara þarna og við gengum bara í barndóm aftur. Það voru nánast öll dýr að finna þarna. Stundum þarf maður að fara út úr bílnum og ganga til að sjá ákveðin dýr eins og górillur, apa og svoleiðis, en maður keyrir meðfram, gíröfum, buffalóum og fullt af öðrum dýrum. Svo er sérstakt svæði með ljónum og að sjálfsögðu keyrðum við þar í gegn og karla ljónið var alveg við hliðina á okkur labbaði fyrir framan bílinn okkar og alles - úff ég var nú bara pínku hrædd :) En þetta var þræl gaman og þarf ekki að pína mig að fara þarna aftur þegar öll "börnin" koma í heimsókn hehehe

Á fimmtudaginn héldum við síðan okkar fyrsta danska matarboð þ.e. við buðum dönsku pari í mat og hvað haldið þið jú jú við töluðum bara dönsku reyndar eru þau extra dugleg að hlusta og reyna að skilja þannig að þetta gekk ágætlega, reyndar ekkert spes orðaforði sem ég er með og hreimurinn náttla ÍSLENSKUR hehe en þetta kemur hægt og rólega.

Síðan er leikur á morgun á móti Ikast og vonum við það besta í þeim leik. Liðið okkar er hreinlega að hrynja niður það meiðist bara hver á fætur annarri, ein með slitin krossbönd, brotinn ökkla, tognuð á ökkla, meidd á hendi, ein í leikbanni og ég veit ekki hvað og hvað. Ég fer að taka fram stuttbuxurnar og mæta sem skytta á næstu æfingu :) aldrei að vita...

Annars er bara allt það sama að frétta, það er ennþá massa gott veður hérna allavega miðað við að það er kominn 23.september, ég er ennþá bara í hlýrabol úti ljúft....

Hafið það súper gott

Begga monkey kveður

luv

p.s setti inn nýjar myndir á myndasíðuna mína heitir Dýragarður og fleira :) tjekkitát hérna niðri hægra megin :)

18 september 2006

4 stig á drebbann


Langar að byrja á að óska minni yndislegu bestu systur í heimi til hamingju með afmælið. Hún átti afmæli í gær skvísan og auðvitað alltaf jafn ungleg :) Hérna eru ég og hún á leið í Óvissuferð með Val í fyrra, hún var í kvennanefndinni, ég með "melludólgahattinn" eins og öllum fannst hehehe
Svo átti Stebbi hennar Sillu líka afmæli í gær, til lukku með það Stebbi minn - greinilega bara úrvalsfólk sem á afmæli 17.sept :)


Helgin er hins vegar búin að vera Æðisleg hérna í Danmörkunni. Við byrjuðum á að fara í fótboltagolf á fimmtudaginn og það var rosa stuð :) Þetta er nákvæmlega eins og golf nema maður notar fótbolta og fæturna að sjálfsögðu :)(segir sig nú kannski sjálft hehe) þetta var 18 holu völlur með allskonar brautum og mismunandi hindranir á hverri og einni. Bjarni var nú farin að stórefast um fótboltahæfileika mína og spurði mig ansi oft "bíddu æfðirðu ekki fótbolta" fusssss hann átti nú nokkur skrautleg "högg"/"spörk" og hann er atvinnumaður í FÓTBOLTA :) hehe
Síðan ákvað ég að bruna til Fredericia í smá heimsókn til Árný og Fannars. Ég stoppaði reyndar stutt, en fór á leik með Fannari - það var stuð og mikil stemming í höllinni. Árný og Fannar eru búin að koma sér ekkert smá vel fyrir og eru bara í klst fjarlægð frá okkur þannig að maður er enga stund að bruna til þeirra :)
Svo lá leiðin á Vejle völlinn en Bjarni og félagar kepptu á móti Vejle á laugardaginn og þeir UNNU víííí 4 -2 og Bjarni var góður. Það var auðvitað þungu fargi af þeim létt og þessu fagnað um kvöldið. Ég var hins vegar bara heima þar sem ég var að keppa í gær á móti GOG og við gerðum jafntefli :) Þannig að þetta var aldeilis frábær helgi fyrstu stig okkar Århus pía og gríðarlega mikilvægur sigur hjá Silkeborgar-mönnum.
Svo var ég vakin í morgun með frábærum hætti :) Pakki frá mömmu og pabba. Takk elsku mamma og pabbi þið eruð best.
Saknaðarkveðjur
luvBerglind

13 september 2006

Skotárás í Silkeborg

og það 800 metra frá okkur....já það gerist greinilega allt í Silkeborginni, það var semsagt skotið 6 - 9 skotum inn á löggustöðina hérna í Silkeborg á aðfaranótt miðvikudags, sem betur fer slasaðist enginn, skotin fóru inn um rúðu og enduðu í veggjum hér og þar á löggustöðinni. Það hefur ekki enn þá náðst til þessara vitleysinga en ég vona svo sannarlega að löggan finni þá.
Annars mætti bara halda að sumarið væri komið aftur, það er ekki eðlilegt að vera bara á hlýrabol og pilsi 13.september....en jú jú og ekki kvarta ég, ekkert smá notalegt að hafa svona gott veður og vona ég að það verði gott haust og góður vetur í ár :)
Hvet síðan alla til að kíkja á kastljósið í gær http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4298215 ef þetta er ekki forvörn fyrir alla sem hafa bílpróf og sérstaklega alla þá sem halda að það sé hipp og cool að keyra hratt þá veit ég ekki hvað. Segi eins og foreldrar þessa drengs sem fjallað var um í kastljósi í gær, látið ykkur þetta að kenningu verða, ekki hugsa "þetta kemur ekki fyrir mig" því þetta getur vel komið fyrir þig/mig + að við leggjum alla aðra í kringum okkur í hættu með svona fáranlegum akstri.
Ég hef það oft á tilfinningunni sérstaklega heima á Íslandi að þegar maður keyrir á löglegum hraða þá séu allir í kringum mann pirraðir því maður keyrir svo "hægt" ég segi nú bara leggið 5 mín fyrr af stað :)
jæja forvarnar Begga kveður
luv

11 september 2006

2 töp, 2 vondar kökur usss

jammogjæja við töpuðum leiknum á móti Esbjerg 29 - 22, alls ekki nógu góð úrslit. Kellan spilaði ekkert. Það er talað um leikinn á þessari síðu http://www.skaarhus.dk/ Við hefðum átt að vinna þennan leik að mínu mati, þegar um 7 - 8 mín voru eftir var staðan 21 - 20 fyrir Esbjerg...

Sunnudagurinn var öllu skemmtilegri (svona að mestu leiti) Dagný, Gunnar Berg og moli litli komu í heimsókn til okkar. Hrabba, Viktor, Hanna, Valný og Biggi komu líka, ætlunin var að fara á leikinn hjá Bjarna og vera HAPPA. Við fórum á leikinn - en við vorum ekki happa :( Bjarni og co töpuðu leiknum 2 - 0, dííí ekki gott.

En heimsóknin var skemmtileg, moli litli var látinn í æfingabúðir :) hann þurfti að æfa sig að labba og gekk vel sló metið :) komin held ég 7 skref - já hann er sko lang flottastur.

Ég ætlaði nú að sýna gestunum að kellan gæti nú verið smá húsmóðir...bakaði 2 kökur og hvað haldið þið júúú þær voru BÁÐAR VONDAR, djöööö - alltof þurrar og harðar, Viktor var nú kurteis og fékk sér eina sneið haha - hann er líka með sterka kjálka drengurinn.

Við slúttuðum síðan kvöldinu með Pizzu, sem rann sko ljúflega niður :)

Hérna eru síðan sætu "litlu" frænkur mínar :) já ég segi ennþá litlu frænkur en þær eru ekkert litlar lengur - orðnar jafnstórar og ég :) og sko orðnar 17. ára skvísurnar. Rakel átti afmæli 25.ágúst og Andrea á afmæli á morgun - semsagt báðar 17.ára (næstum) komnar á kagga og læti. Keyrið varlega elskurnar :)

Mamma fékk smá sjokk um daginn þegar Systir mín gerði henni grein fyrir að hún gæti bráðum orðið langamma :) hehe mamma bara jiiiii heldurðu að þær eignist barn á undan Berglindi - jaaaa mamma það gæti nú bara orðið svo :) kellan er ekki alveg í barnahugleiðingum núna. Þetta er nú samt orðið dáldið öfugsnúið það voru nú þær sem áttu að passa börnin mín en gæti allt eins orðið að ég passi þeirra. Nei held samt ekki þær eru ennþá svo ungar þessar skvísur. Ég sakna allra heima ofsa mikið, það var nefnilega afmælisveisla á laugardaginn en þá átti Hans Viktor afmæli og bráðum á Helga Kamilla afmæli eða 16.sept.

Já systkini mín voru voða sniðug og eignuðust börn nánast á sama tíma ALLTAF. Frekar fyndið það eru 18 dagar á milli elstu, 5 mánuðir á milli mið og 7 dagar á milli yngstu :) þannig að það er alltaf fjör þegar familían hittist enda alltaf einhver til að leika við eða spjalla við á sama aldri :)

Þau eru svo mikið æði, mamma og pabbi keyptu handa þeim búning svona eins og Bjarni spilar í og gáfu þeim þau eru náttla æði í búningnum...sakna ykkar krúslurnar mínar.

Elma Dögg og Steinunn Lind þið komið seinna ;) fáið alveg spes blogg, sakna ykkar rosa mikið luvBerglind

nóg í bili og segið nú hæ ef þið lesið bloggið :)

luvBerglind eða Berglund eins og Danir virðast halda að ég heiti ;)

07 september 2006

Danmörk 2 - Ísland 0

Það hefði verið gaman að vera Íslendingur í Danmörku...já ef þeir hefðu nú bara getað eitthvað í leiknum í gær....Ég var meira að segja búin að ákveða að mæta í Íslands treyju á æfingu í dag og monta mig aðeins :) en niiii ekkert verður af því, ekkert spes leikur hjá þeim í gær..
Næsti leikur hjá mér er á laugardaginn á móti Esbjerg og næsti leikur hjá Bjarna er á sun á móti FCM Midjylland og vonumst við að sjálfsögðu eftir sigri í báðum þessum leikjum. Gott fyrir okkur að rífa okkur upp eftir slæmt tap í fyrsta leiknum og já Bjarni og þeir þurfa bara nauðsynlega á stigum að halda. Ég kemst á leikinn og vonandi verð ég happa :)
Mál málanna á Íslandi þessa dagana er svo hann Magni - eða það hefur maður heyrt allavega, ég hef ekkert fylgst með þessu, fer reyndar stundum inná rockstar.msn.com en ég get aldrei séð dómana - en Magni er samt greinilega að standa sig rosa vel, ef þið getið bent mér á einhverjar síður þar sem maður getur séð þetta allt saman þ.e. líka dómana þá endilega láta mig vita.
Síðan setti ég inn myndir frá Ágúst mánuði hérna í DK, myndir frá því mamma og pabbi voru hérna í heimsókn, þegar Árný og Fannar kíktu til okkar og svo bara svona hitt og þetta - kíkið á það.
Hafið það gott
luvBerglind

03 september 2006

Sunnudagur til sælu

Fyrsti leikurinn okkar í deildinni var spilaður í gær á móti Álaborg og ekki riðum við feitum hesti í þeirri viðureign = við skíttöpuðum, Álaborg var bara 2 klössum betri en við á öllum vígstöðum. Ég spilaði síðustu 10 mín, kom inná í stöðunni 16 - 30 (stuð), en ég fékk allavega smá tíma, sem er nú bara gaman :)

Stemmingin var semsagt ekkert rosalega í gær og ég og Bjarni ákváðum bara að bruna til Silkeborgar og hugga okkur heima :) Ætluðum að vera í Århus að kíkja aðeins á næturlífið með Árný, Fannari, Stulla og Möttu, en nenntum því ekki - algjörir lúðar en við bættum það aðeins upp og kíktum aðeins downtown Silkeborg um kvöldið - já ég veit við erum svo crazy. Við tókum semsagt smá spil hérna heima, Bjarni kenndi mér póker og pókersvipurinn minn er greinilega svaka góður össss því ég rústaði Bjarna :) hann er greinilega svona svakalega heppinn í ástum strákurinn. Reyndar getur verið að þetta hafi verið svona byrjendaheppni eða neiiiiiii held ekki.

Dagurinn í dag verður svo bara notaður í afslöppun, já ég ákvað að breyta aðeins til og hafa það kósí heima :)

Svooo að allt öðru en ég hef alltaf talið mig vera svona frekar hávaxna (er 1,75) var t.d. með þeim stærstu í Val og allavega ekki með þeim minnstu í landsliðinu, en hérna úti er ég kölluð LITLI ÍSLENDINGURINN haaaaaaaaaa, jájá maður er alltaf að heyra eitthvað nýtt :) Ég hefði nú aldrei trúað því að ég færi að nota málsháttinn "margur er knár þótt hann sé smár" en ég þarf greinilega eitthvað að fara að endurskoða það :) hehe

Begga litla kveður, hafið það gott
luv