Helgin byrjaði vel þar sem þjálfarinn gaf okkur þriggja daga frí, fös, lau og sun, það er náttla bara gaman því þá gat ég haft það gott og gert eitthvað skemmtilegt. Bjarni er líka í fríi á föstudögum þannig að ég, hann og Martha ákváðum að skella okkur til Århus til að kíkja í búðir. Það gekk mjög hjá okkur vel að versla og hafði Martha rosa góð áhrif á okkur haha :) Við fórum síðan sæl og glöð heim og borðuðum þar, slöppuðum síðan bara af það sem eftir var kvöldsins enda afvelta :)
Árný og Fannar ákváðu síðan að kíkja í heimsókn í gær, en þau búa í um klst fjarlægð frá okkur. Það var frábært að fá þau. Við röltum aðeins um í bænum og settumst á kaffihús, síðan tókum við smá göngutúr um Silkeborgina. Við elduðum síðan saman um kvöldið og kellan skellti í súkkulaðiköku sem smakkaðist bara ágætlega held ég, síðan eyddum við kvöldinu í spjall um allt og ekkert, Bjarni kenndi þeim á ebay og svona, þannig að það má búast við stórkaupum hjá þeim á næstunni :)
Við erum síðan eiginlega búin að plana hitting aftur næstu helgi, en þá er Bjarni í fríi og Fannar er að koma hingað til að keppa við Silkeborg. Þá verður kannski kíkt útá lífið og gert eitthvað skemmtileg.
Bjarni átti síðan að vera að keppa akkurat núna. Hann mætti kl.9.00 í morgun til að leggja af stað í 31/2 klst rútuferð til köben, þeir voru búnir að keyra alla leiðina til Köben, byrjaðir að hita upp, en nei þá ákváðu veðurguðirnir að láta demba aðeins á þá, þannig að völlurinn varð á floti, Bjarni sagðist aldrei hafa séð annað eins. Þannig að stemmingin er örugglega frekar súr núna hjá Silkeborgarmönnum að eyða heilum degi í gjörsamlega ekkert, þeir eru semsagt á leiðinni heim núna og leikurinn verður spilaður einhvern tíma í nóvember. Við vorum einmitt að ræða þetta í morgun því öðrum leik var frestað af sömu ástæðum í gær og ég sagði að ég yrði nú frekar pirruð að sitja í rútu í 4 klst til þess eins að fara aftur uppí hana og keyra aftur í 4 klst, Bjarni var sko sammála því :/ úff hann er örugglega ekkert að deyja úr hressleika...
Til hamingju valsstelpur með Rvík titilinn :)
Heyrðu síðan var Íslendingi hrint fyrir lest hérna í DK, en hann var svo "heppin" ef ég get sagt það að hann lenti á milli teinanna þannig að lestin lenti ekki beint á honum, hann lifði þetta semsagt af!!! Jiii spáið í því að lenda í svona, en það eru víst myndir af þessu í Extra blaðinu, það náði einhver þessu á vídeó.
Eitt en, Bjarni keypti DVD disk með Robbie um daginn, þetta eru geðveikir tónleikar, en á þeim þá tekur Robbie gellu uppá sviðið, kyssir hana (frönskum kossi) og dansar við hana, síðan sendir hann gelluna niður aftur og hún fer beint til kærastans, þá vaknaði upp sú umræða hjá okkur hvort að við myndum leyfa makanum að fara uppá svið til söngvara/sönkonu og kyssa hann/hana?? Bjarni sagði að hann myndi sko leyfa mér að fara upp á svið og kyssa Robbie, þannig að Robbie here I come :) hehehe Reyndar dáldið fjarlægur draumur ennnnnnnnn
Mér finndist nú bara dáldið kúl að vera kærasta stráksins sem fór uppá svið til Madonnu/Britney (eða hvaða gellu sem ykkur dettur í hug) og kyssti hana :) Já en hvað finnst ykkur um þetta??
Myndir koma seinna þegar bloggsíðan vill setja þær inn úfffffff pirr pirr
Skemmtilegar vangaveltur :) :) en Hafið það gott elskurnar
Sólskinskveðjur Begga