30 mars 2007

Vorið er komið....


Vá hvað allt verður mikið skemmtilegra þegar veðrið er gott, en hér er búið að vera kringum 10 - 15°C og sól alla vikuna og á víst að vera allavega næstu 10 - 14 daga. Við vonum að það standist því við fáum gesti næsta fimmtudag, en fjölskyldan hans Bjarna kemur þá. Það er samt ekki allt gott við að góða veðrið sé komið þar sem helv...stóru hnulla flugurnar eru mættar á svæðið ásamt köngulónum ojjjjj úff þoli ekki þessi dýr, en samt lætur maður sig hafa það að rölta um úti á bolnum og smella sér á kaffihús til að njóta góða veðursins. Verður vonandi stutt í að maður mæti á ströndina til að worka tanið, ekki veitir af...

Helgin verður eflaust róleg þar sem Bjarni á leik á sunnudaginn á móti Randers. Við förum reyndar í mat í kvöld til eins stráks í liðinu hans Bjarna og kærustunnar hans þannig að eitthvað verður nú brallað um helgina :)

Langaði bara að segja hæ og eigið góða helgi

luvBÍH

2 ummæli:

Anna sagði...

vá æðislegt veður, hér erum við að hugsa hvort við eigum að skella okkur á skíði á morgun eða ekki og við erum ekkert sérlega langt frá ykkur!! Vorum að koma heim frá Íslandi í dag, gott að koma heim, en líka gott að koma aftur til Noregs. Ísland hefur lítið breyst ;)
kv. frá Norge

Begga sagði...

já fyndið að þetta sé svona rosa ólíkt veðurfar en samt svo stutt frá hvort öðru..væri til í að sumrin á Íslandi væru eins og hér í DK og veturnir eins og í Norge þá kæmist maður á skíði þá og ströndina á sumrin algjör snilld :) Já það kemur manni á óvart hvað allt er eins þegar maður kemur heim eftir langan tíma, en samt saknar maður alltaf Íslands :) luvBegga