Heldur betur mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, byrja að sjálfsögðu á byrjuninni en við fórum til Makedóníu á fimmtudaginn fyrir rúmri viku síðan, það var rosa fín ferð, þrátt fyrir 3 marka tap. Við spiluðum mjög vel og ótrúlega svekkjandi að hugsa til þess að bara EF, já þetta stóra ef, við hefðum spilað betur heima og klárað leikinn þar þá værum við á leið á EM, en því miður. Það voru 4500 áhorfendur á leiknum og geggjuð stemming og áhorfendur voru með hrikaleg læti öskruðu allann leikinn en þeir voru líka alveg að láta okkur finna fyrir því púuðu á okkur þegar við vorum kynntar til leiks, svo var líka hrækt í hárið á Jónu, kastað tyggjói í mig, spýtu og hnetupoka kastað inná völlinn og eitthvað fleira.
Um kvöldið eftir leikinn var kíkt útá lífið og það var djók ódýrt þarna...ég skemmti mér konunglega og sem betur fer þurftum við ekki að fara snemma af stað heldur gátum við sofið út :)
Ég fór síðan til Bjarna eftir Makedóníu og var æði að hitta hann. Þar fórum við á lokahóf fótboltans en það var farið út að borða á Jensens buffhouse og síðan var farið í siglingu á vat
ninu þarna sem er hjá Silkeborg og við sigldum framhjá Himmelbjerget og það hefur oft verið sagt við mig að það væri mjög lítið en ertu að grínast þetta er náttla bara hóll
Eftir siglinguna fóru allir í partý til eins stráksins í liðinu en ég fór bara snemma heim, þar sem ég var að fara að spila æfingaleik með Århus daginn eftir. Æf.leikurinn gekk vel við unnum með ca 10 minnig mig, ég spilaði 30 mín og gekk ágætlega.
Þetta er mynd af himmelbjerget.
Svo kom ég heim á fimmtudaginn og í gær gæsuðum við Ágústu og vááá hvað var rosalega gaman :) við rændum henni, sendum hana í listflug, fórum í ratleik í öskjuhlíðinni, síðan fór hún á mótorhjól um allann bæinn, hittumst síðan aftur í baðhúsinu og fórum í pott þar og fengum síðan mat frá Austurlandahraðlestinni heim til Kollu, vá hvað það var góður matur ummmmmmm, enduðum síðan kvöldið á því að fara á lokahóf vals sem var haldið á pravda og síðan var bara tjúttað fram eftir nóttu...snilldar dagur :) 
Jæja held það sé komið nóg
Hafið það súper gott
Begga
3 ummæli:
hæ sætasta :)
vá hvað hefur verið gaman hjá þér undanfarið, við höfum það líka alveg yndislegt hérna í Svíþjóðinni
knús
lísa og ísey
Hæ skvísur :) Sakna ykkar og hlakka til að fá ykkur heim :) veit ekki hvort þú fékkst smsið frá mér en taktu frá 17.júní um kvöldið er búin að færa veisluna mína þá..vona að þið komist...hafðu það ofsa gott skvísa, knús til þín, snúllu og allra í sverige luvBegga
hejsan hej ;) jú ég fékk smsið (get ekki sent s,s í útlandinu...)og er búin að taka kvöldið frá, á bara eftir að redda barnapíu... í versta falli þá skil ég kallinn eftir heima ;)
hej då
lisan
Skrifa ummæli