Síðustu dagar hafa gjörsamlega flogið áfram og nú er maður bara komin til DK. Ferðin út gekk bara vel, ég náði að dröslast með 2 ótrúlega þungar og stórar töskur í lestina, var líka með 9 kg bakpoka á bakinu(sko alvöru ekki aukakíló á mér, þau tel ég ekki með hehe) og eina handtösku, eins gott ég er búin að vera að lyfta aðeins, díses ég svitnaði eins og ég veit ekki hvað við að drösla þessu dísess, en á leiðarenda komst ég :)Það var mjög erfitt að kveðja alla sérstaklega fjölskylduna mína.
Það var fullt af fólki í vélinni á leiðinni á Hróarskeldu og flestir voru vel í því, einn sem fór inná WC og reykti þannig að reykskynjarinn fór af stað og síðan voru 2 gaurar handteknir í DK, meiriháttar að byrja ferðina þannig. Ég hef ekki hugmynd um hvað þeir gerðu af sér, en annar þeirra var mjög æstur þegar lögreglan var að tala við hann, þannig að það endaði á því að snúið var uppá handlegginn á honum og hann tekinn burt - öskrandi, þetta var bara eins og í bíómyndunum - úúú er allt svo spennende í Danmörku :)
Nú er Bjarni bara á einhverjum Killer æfingum, fer á 2 æfingar á dag, þannig að hann kemur alltaf dauðþreyttur heim seinni partinn, ætli það sé ekki við hæfi að ég eldi fyrsta réttinn í kvöld hehe og eins gott að byrja snemma svo ég geti þá reddað einhverju öðru ef hann klikkar - valspíur ég læt ykkur vita hvað ég eldaði og hvort það heppnaðist.
Svo ætla ég að fara að opna myndasíðu, Hafrún sérstaklega fyrir þig :)
Eitt í lokinn mæli með bókinni Alkemistinn, las hana á leiðinni og finnst þetta virkilega góð bók, en samt svoldið spes.
Hafið það súper gott
Kveðja Begga
6 ummæli:
hæ sæta... úff er strax byrjuð að sakna þín! en vona að þú eigir eftir að hafa það gott í baunalandinu :) gangi þér vel sæta
knús lísa og ísey
hæhæ
skemmtileg ferð sem þú hefur átt út !!!
hafðu það rosa gott í DK og bið að heilsa Bjarna
kv. Anna og bumbi
Æði að þú skulir vera komin og spáð geðveiku veðri alla helgina.. Við þurfum að fara að hittast í grilli og gúmmulaði.
Knús knús
Hrabba
Hæ krúsí. Gaman að heyra frá þér frá Danmörkunni, oh ég væri alveg til í að koma núna í heimsókn til þín í góða veðrið og sólina. Dem hvað er asnalega leiðinlegt veður á þessu landi okkar, úff:( En hafðu það gott og gangi þér vel svona fyrstu dagana í bauna landinu. Bið að heilsa Bjarna.
Heyrumst um helgina.
knússs
Hæ hæ Begga og takk fyrir síðast. Kom sér vel að hitta þig svo ég gæti nú kvatt þig áður en þú fluttir :) Hafðu það rosa gott í Baunalandinu og gangi ykkur allt í haginn !!! Ég frétti af þessu flugi, vinkona mín var einmitt flugfreyja í þessu flugi og sagði að ástandið hafði verið frekar spes á mörgu fólki hehe
Humm... örugglega svolítið scary að vera innan um þessa glæpona í Danaveldi. Gaman að hitta þig um daginn og svo sendi ég myndir bráðum til þín.
Skrifa ummæli