Jebb margt og mikið í gangi síðustu daga, mamma og pabbi eru nefnilega í heimsókn og við erum búin að bralla ýmislegt skemmtilegt :) t.d. fórum við til Århus að versla og út að borða, skelltum okkur síðan á Himmelbjarget og þó það sé lítið = minnsta fjall í heimi þá er útsýnið rosa flott. Við keyrðum þangað uppeftir og þá tekur bara nokkrar mín að ganga uppá "topp" :) Svo erum við búin að fara út að borða á nánast hverju kvöldi og alltaf einhver nýr veitingastaður sem verður fyrir valinu. Ég er að sjálfsögðu búin að taka þau í sightseeing um Silkeborg og þau eru algjörlega heilluð. Pabbi ætlar svo að skella sér í golf í dag með Bjarna en ég og mamma ætlum að rölta göngugötuna í Silkeborg. Það er búið að vera rosa fínt veður meðan þau eru búin að vera hjá okkur fyrir utan einn og hálfan rigningardag. Já það er alltaf stuð að hafa mömmu og pabba, mamma er alveg tryllt með sandalana sína að drepa pöddur og er orðin meira að segja svo æst að hún er farin að berja kusk af öllu afli hehe :) Verð samt að segja að það er ótrúlega mikið af kóngulóm hérna vááá það eru gjörsamlega kóngulóavefir út um ALLT ég má ekki leggja hjólinu mínu í einn dag þá er það allt orðið útí kóngulóavef :/

Það er líka mikið búið að vera að gera í boltanum erum búnar að keppa 2 æfingaleiki síðan síðast :) unnum 1 á móti þýska liðinu Buxtahude en töpuðum með einu marki á móti Kolding. Ég var með í báðum leikjunum spilaði hálfleik í hvorum leik.
Síðan var svona hópeflis dagur hjá liðinu og við fórum á sjó, já já áttum að sigla svona báti/ skútu eða hvað þetta heitir - >

Það er líka mikið búið að vera að gera í boltanum erum búnar að keppa 2 æfingaleiki síðan síðast :) unnum 1 á móti þýska liðinu Buxtahude en töpuðum með einu marki á móti Kolding. Ég var með í báðum leikjunum spilaði hálfleik í hvorum leik.
Síðan var svona hópeflis dagur hjá liðinu og við fórum á sjó, já já áttum að sigla svona báti/ skútu eða hvað þetta heitir - >
Það voru fjórar saman á báti/skútu og var hver og ein með sitt hlutverk, kellan var sett á stýrið jújú captain Begga :) Við vorum semsagt að keppa við strákana í Århus og gekk líka svona ljómandi vel VIÐ UNNUM :) það er síðan einhver siður að kasta sigurvegurunum út í sjóinn og fengu nokkrar úr liðinu að fjúka en ég var nú ekki í mikilli hættu, ný á svæðinu :) en Hrabba fékk að sjálfsögðu að fljúga útí og það meira að segja tvisvar. Svo er það æfingaferð til Ungverjalands á miðvikudaginn verðum þar í 5 daga, það verður örugglega rosa gaman.
Annars bara líf og fjör
Hafið það gott
KnúsBerglind
6 ummæli:
langaði bara að senda rigningarkveðjur frá íslandi.... ykkur veitir greinilega ekkert af smá rigningu.... spurning um að þú sendir okkur á klakanum sólskinskveðjur til baka :)
knús lísa og ísey
gangi þér vel í ungverjalandi, ekkert smá prógramm hjá ykkur.
Og hittingur þegar þú kemur til baka :D
kv. árný
frábært hvað allt gengur vel.. .. reyndar ekkert spes með þessar kóngulær :o) - sé mamms í anda með inniskóinn.. .. bið að heilsa öllu genginu.. .. og já ég fylgist að sjálsögðu með þér.. .. Luv Bryn
Hæ skvís!
Rosa gaman að fá að fylgjast svona vel með þér. Haltu áfram að vera svona dugleg að skrifa :) Fæ alveg fiðring þegar ég les lýsingarnar af danmörku hjá þér og Hröbbu. Kem í heimsókn bráðum :)
Luv bólfélaginn (ágústa)
Hæ skvís, vildi bara kvitta fyrir innlitið og þakka fyrir síðast. Það var rosa gaman að hitta þig og Hröbbu. Gangi ykkur vel og vonandi sjáumst við aftur fljótlega sæta min, kveðjur Guðbjörg G
Hæ Lísa mín ég held að m&p hafi tekið sólina með sér því það var grenjandi rignin í gær og rignin með köflum í dag :) vona allavega að skíni aðeins á ykkur luvbegga
Hæ Árný skvís :) takk fyrir lukkukveðjuna ég fer svo út á fös til frakklands en hittingur þegar ég kem heim þaðan :) er þaggi? luvBegga
Hæ Brynja mín gaman að vita að þú fylgist með :) hafðu það ofsa gott skvís kossar og knús Begga
Hæ elsku Roomy :) ég skal reyna að vera dugleg, sakna ykkar Valsstelpna mikið og endilega kysstu allar og knúsaðu frá mér :) Þú ert alltaf velkomin í heimsókn knús og kossar luvBegga
Hæ Guðbjörg skvís :) það var frábært að hitta þig og endilega þegar þú ert nálægt að hringja bara og kíkja í heimsókn :) Gangi þér vel sæta luvBegga
Skrifa ummæli