Komin heim frá Frakklandi og eins og Bjarni spurði mig "Hvernig er að koma heim úr fjögra daga ferð til Frakklands og spila samasem ekkert" Já það er ekki skemmtilegt get ég sagt ykkur, en þolinmæði þrautir vinnur allar ekki satt !!! Ja ég verð allavega að trúa því...Ferðin var samt fín þannig séð :) Við unnum mótið, töpuðum reyndar fyrsta leiknum, en unnum næstu 2.
Nú er lífið bara komið í sama farveg og venjulega. Ég er ekki byrjuð að vinna en er að fara að vinna í þeim málum núna í byrjun september. Ég ætla að sækja um starf/störf hérna í Silkeborg, auðvitað byrja ég á því að leita mér að vinnu sem hjúkka en ef það lukkast ekki þá reyni ég í Århus og ef það lukkast heldur ekki þá þarf ég að finna eitthvað annað. En það er sagt að það vanti alltaf hjúkkur þannig að ég krossa fingur. Þetta er nefnilega ekkert of auðvelt því ég get ekki unnið vaktavinnu, ekki um helgar og vil bara vinna um 20 tíma á viku - já ég er ekki auðveld :)
Fyrsti leikurinn okkar er á móti Álaborg 2 september þannig að deildin byrjar bara eftir rúma viku, trúi varla að þetta sé að byrja.
Reykjavíkurmótið að byrja heima og vil ég óska Valsstúlkum góðs gengis, við eigum nú titil að verja og um að gera að GERA ÞAÐ :) Ég sendi ykkur góða strauma.
Ég furða mig á hversu fáir(ENGINN) buðu í silfurskóna haaaaaa bara skil þetta EKKI.
Annars er mest lítið að frétta mæli reyndar með því að þið hlustið á hljómsveitina Jeff who, svaka góður diskur frá þeim. Ef þið hafið góðar uppástungur um skemmtilega/góða tónlist þá endilega láta mig vita því í 80 mín á dag geri ég ekkert annað en að hlusta á tónlist, syngja og keyra.
Hafið það gott elskurnar
Sakna ykkar
luvBerglind
8 ummæli:
Hae saeta...barad kasta a thig kvedju..vonandi faerdu ad spila meira fljotlega, thau eiga bara enn eftir ad komast ad thvi hversu otrulega god thu ert :)
Knus fra Beggu (G)
hæhæ..
datt inn á síðuna þína á einhverjum bloggrúnti!! :)
gaman að fylgjast með ykkur.
var að spá í sambandi við glosur fyrir veturinn.. þú varst búin að tala um að ég mætti fara til foreldra þinna og sækja..? stendur það ekki enn til boða? :)
kv kristín bergs
Hæ Flottust - gaman að fylgjast með ykkur skötuhjúum. Þeir eiga eftir að fatta að þú ert flottust í markinu það er bara svo langur þráðurinn hjá þeim. Gangi ykkur vel í öllu. Kveðja Ásta Björk
Hæ Begga mín, vonandi gengur allt vel hjá ykkur í skotlandi :) ég vona líka að ég fái nú að fara að spila eitthvað :) hafðu það ofsa gott sætust luvBegga
Hæ Kristín sæta jú þú mátt svo sannarlega fá allar þær glósur sem þig vantar, auk þess á ég nokkrar bækur ef þú vilt kaupa ódýrara en þú færð í verslun, sendu mér bara mail beggah@hotmail.com ef þú vilt einhverjar bækur, en annars geturðu bara komið við heima og skoðað í kassana mína og tekið það sem þig vantar :) knúsBegga
Hæ Ásta gaman að sjá að þú fylgist með ég vona að þú hafir rétt fyrir þér með að þráðurinn sé langur hjá þeim haha :) knús og kossar Begga
Hæ sæta mín, sama hversu mikið þú ert að spila þá efast ég ekki um að þú eigir eftir að læra heilmikið á að vera þarna og verðir miklu betri leikmaður fyrir vikið! Manstu söguna sem ég sagði um Eið Smára? Um alla samkeppnina sem hann hefur verið að fá í gegnum tíðina, en hann bara hélt alltaf sínu striki, Og sjáðu hvar hann er í dag;o)
Mæli sterklega með Gavin Degraw, ég hreinlega elska manninn! Þ.e.a.s tónlistina hans:o)
*knúúúúúúús* Bjarney
Hæ elsku yndislega Bjarney takk æðislega fyrir..og ég man :) Ég ætla að kíkja á þennan Gavin Degraw - ég er svo mikil steik að ég veit ekki hver hann er EN ef ég heyri lög með honum þá kveiki ég kannski ;) knús og kossar luvjaBegga
ég skal senda þér fullt af góðri tónlist.
frábært hafrún takk æðislega veitir ekki af :) luvbegga
Skrifa ummæli