21 nóvember 2006

vitleysingurinn ég!!

Komin heim í snjóinn, það er fínt svo lengi sem ekki er geðveikt rok og ótrúlega kalt í leiðinni. Ég reyndar hef alltaf verið voða hrifinn af snjó hann lýsir svo upp þegar myrkrið er svona mikið, ég vona að það verði snjór um jólin.
Talandi um jólin þá er maðurinn við hliðiná okkur búinn að setja upp jólaljós. Yfirleitt hefur mér fundist þetta ALLT OF SNEMMT ekki einu sinni komin desember og mér finnst það reyndar að það mætti bíða fram í desember, en þar sem ég er ekki í prófum þessi jólin þá finnst mér þetta eiginlega bara dáldið skemmtilegt, en skil sko vel alla sem eru að fara að byrja í próflestri og prófum á næstu dögum að þá má helst ekkert jólalegt vera í kringum mann fyrr en maður hefur klárað prófin. Ég var allavega þannig að ég komst engan vegin í jólaskap fyrr en prófin voru búin.

en nóg um jólin...sufjan stevens er víst aðal málið í dag, eða það skynja ég allavega, ég verð þó bara að viðurkenna fávisku mína og segja "hver er það" ok ég er búin að kynna mér hann svoldið undanfarið, en vááá hvað ég er eftirá greinilega. Ég hef nú alltaf verið dáldið mikið eftir á hvað varðar tónlist og svona eða þannig séð, verður dáldið að mata mig með góðri tónlist. Ég vil nú samt líka kenna útvarpstöðvunum í DK um þetta því ég hlusta ansi mikið á þær og ALDREI hafa þær spilað tónlist eftir sufjan stevens. En hann er inn í dag og ég býð bara spennt eftir að heyra lögin frá honum.

jii þetta var hressandi blogg um ekki neitt nema fávisku mína
Ég er allavega heima á Íslandi þessa dagana í mömmumat og huggulegheitum
Hafið það gott
knúsBerglind

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Guð hvað ég öfunda þig að vera heima i snjónum...engin vetur hérna hjá okkur, búið að vera að rokka á milli 10 og 20 gráður síðustu daga. Bið að heilsa öllum

eibban í germany sem er með svolitla heimþrá :(

Einkamál sagði...

Já það eru alveg svona 6 tímar með því að villast aðeins. En ef þið akveðið að fara í langan bíltúr endilega láttu mig vita. kv.Thelma og njóttu þess nú að vera á íslandi í snjónum :d

Begga sagði...

já bara íslenskt sumarveður hjá ykkur í germany...það er alltaf gott að komast á klakann...hafðu það gott og skila kveðju frá þér knúsBegga

ja Thelma býst alveg við því að við myndum villast eitthvað :) ekki alveg sú besta í að rata hvað þá í útlöndum. En ef ske kynni að við förum læt ég þig vita..hafðu það gott með spanjolunum kv.begga

Einkamál sagði...

Takk og sömuleiðis, vertu bara dugleg að leiða Bjarna þarna úti svo þú sért ekkert að lenda í einhverju rugli. Fabioum þá sem eru æstir í þig :D