kellan mætt í óveðrið, hvað er að gerast með veðrið hérna á Íslandi, óveður og snjór, hálka, rok og rigning bara allar tegundir af veðri....en allavega ég er mætt til Íslands. Kom óvænt heim á fimmtudaginn en það munaði reyndar ekki miklu að ég hefði misst af fluginu þar sem þetta blessaða lestarkerfi í DK var alveg að fara að kostum. Þegar ég mætti til Skanderborgar til að taka lestina á Kastrup, var eins og vanalega strax komin seinkun 12 mín, ég bjóst nú alveg við því, en svo liðu þessar 12 mín en engin lest kom og þá byrjaði ballið, konan í hátalarakerfinu byrjar að tilkynna meiri seinkun og meiri og að lokum segir hún bara að ekki sé vitað hvenær eða bara hvort að lestin komi þar sem einhver motor vandamál eigi sér stað. Ég fer náttla í nett panik kast, yfirleitt ekki auðvelt að stressa mig upp (einmitt) en þarna kom smá stress. ÉG hringi í Bjarna og set hann í málið að kanna hvort ég geti tekið innanlandsflug eða í versta falli að taka flugið um kvöldið heim...í því
kemur önnur lest á svæðið sem er á leið til köben hún var notabene hálftíma of sein en ég ákvað að taka sénsinn og taka hana og vona það besta - þá var klukkan orðin 9.20 en ég ætlaði að taka lestina 8.15 semsagt klukkustund seinna er ég komin upp í lest, sem betur fer var þetta reyndar svona hraðlest, en allavega til að gera langa sögu stutta, er ég komin á hovedbanegarden kl.12.05 hleyp af stað með hlunkinn minn og í næstu lest og er komin á kastrup 12.30 til að innrita mig en vélin fór í loftið 13.20 mér semsagt tókst þetta vúhú og var ekkert smá glöð :)
Það er búið að vera æði að vera heima og mikið búið að gera.
Ég skrifa meira seinna
luv og Íslandskveðjur Begga
13 nóvember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Takk fyrir lunch hittinginn og slúðrið áðan sætasta:)
Hafðu það gott sem eftir er á klakanum.
Hlakka til að sjá þig næst..vonandi bara seinna í nóv og svo um jólin:)
Heyrumst hon.
Knús og kram
Vonumst til að sjá þig í kvöld sæta!
Takk sömuleiðis skvísan mín :) svo gaman að hitta þig hafðu það gott skvísí og gangi þér vel í öllu skólastússinu :)knúsBegga
hæ yndið mitt æði að fá að hitta ykkur á mánudaginn og vonandi hittumst við sem fyrst aftur knús og kossar Berglind
Skrifa ummæli