03 apríl 2007

Hæ allir

Fyrsta stig SIF á heimavelli kom á sunnudaginn þegar þeir gerðu 0 - 0 jafntefli á móti Randers, mikilvægt stig en hefði auðvitað verið best að fá öll þrjú en þeir segja ekki nei við einu stigi. Sólin skein skært meðan á leiknum stóð og náði kellan sér meira að segja í rauðar kinnar :) ekki amalegt. Næsti leikur B og co er síðan á fimmtudaginn í Köben á móti FCK. Ég ætla að fara til köben að hitta familíuna hans Bjarna og ætlum við síðan að sjálfsögðu að kíkja á parken á leikinn. Því miður er allt lokað í köben á fimmtudag þar sem þetta er skærtorsdag en það hefði verið gaman að geta skellt sér í tívolíið eða á strikið í eins og 1 - 2 búðir.
Fyrsti umspilsleikurinn okkar er síðan á sunnudaginn, á sjálfan páskadag, furðuleg tímasetning, en við keppum á móti Sonderjyske sem lenti í 3.sæti í 1.deildinni.

Annars eiga held ég allir afmæli í apríl og því ekki seinna vænna en að byrja að drita niður afmæliskveðjum en Arna og Hera áttu afmæli á Sunnudaginn, til hamingju með það skvísur knús og kossar til ykkar og svo á Árný afmæli í dag :) Jibbí til lukku mín kæra knús og kremjur til þín.
Skrifa síðan eftir helgina þegar við erum búin að bralla fullt og vonandi fljóta e-ar myndir með.
Hafið það gott um páskana og borðið eins og 1 ekta Íslenskt páskaegg fyrir mig...
luvBegga

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir afmæliskvedjuna :)
Er einmitt nuna ad gæda mer a einu islensku paskaeggi, minnstu stærdinni. Baud upp a tad i vinnunni i stadin fyrir ad baka køku.....

Vid sjaumst svo fljotlega,
hils
arny

Nafnlaus sagði...

Hæ elskan! Kvitta hér fyrir komuna.. maður er svo mikill myspace fíkill að bloggið hefur aðeins verið á "hold"..

Fylgist samt alltaf með þér sæta.

knús, EM

Nafnlaus sagði...

Merkilegt hvað Árný og umhverfið bjarga þessari mynd. Fannar og enginn annar með diplómatabrosið er alveg hrikalegt.

Pardus

Begga sagði...

ummm Árný tekur bara forskot á sæluna og færð þér páskaegg :) hafðu það gott skvís, heyrumst sem fyrst...

Takk elsku Eva mín, já kannast við hvað myspacið getur verið mikill tímaþjófur :)
knús til þín