27 maí 2007

The end

Þá er ég komin heim til Íslandsins góða, byrjuð að vinna og reyna að venjast hinu venjubundna íslenska lífi þ.e. æfa,vinna,æfa,sofa :) Tók mig nokkurn tíma að aðlagst þessu, hef þurft að fara að sofa fyrir kl. 22 fyrstu vikurnar haha en þetta er allt að koma.

Bjarni minn er líka kominn heim þannig að ég þarf ekki að kvíða fyrir árs fjarbúð...ekkert nema gott um það að segja. Bjarni er reyndar ristarbrotinn og gengur um á hækjum þessa dagana, þannig að ég er hjúkka 24/7.

en allavega þetta er síðasta bloggið, ég opnaði bloggið þegar ég flutti út til að vinir og ættingjar ættu auðveldara með að fylgjast með okkur og kasta á okkur kveðju...núna erum við komin heim þannig að þið hringið bara ef þið viljið ná í mig :)

Hafið það best...takk fyrir öll commentin...
knúsBegga

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ
leiðinlegt að hafa ekki getað kvatt þig almennilega, bjóst ekki alveg við að sjá ykkur ekkert meir í Silkeborg =)Eigum eftir að sakna ykkar á spila og matarkvöldunum okkar í Silke
Vonandi eigum við nú samt eftir að hittast einhverntíman
kv Birna

Nafnlaus sagði...

Hey en hvað með okkur sem búum í útlöndum og viljum fylgjast með þér heima :( Mér finnst þú megir nú alveg skrifa annað slagið bara fyrir okkur Elfu.

Eibban

Nafnlaus sagði...

hæhæ skvís
ég tek undir með Eivor... :)
en hafðu það gott á Íslandi.

hilsen,
árný

Nafnlaus sagði...

Össs ég á eftir að sakna pistlanna þinna ;) kmnús Guðbjörg