02 maí 2007

sumar.is

Ég er sko búin að standa mig vel í dag...algjörlega eins og sönnum Íslendingi sæmir er ég búin að sleikja sólina eins og ég muni aldrei sjá hana aftur, er auðvitað rauðari en karfi núna...jamm veðrið er gjörsamlega yndislegt hérna í DK þessa dagana, ég trúi ekki að ég sé að yfirgefa þetta dásemdarveður og fara heim í rokið !!!! ég held samt ennþá að það verði rosa gott sumar heima á Íslandi því vetur og sumar frusu saman (eða eitthvað álíka) og það á að vera boð um gott sumar ÉG TRÚI ÞVÍ, hef reyndar alltaf verið auðtrúa en bíttar ekki.



Ég kem heim á sunnudaginn (að öllum líkindum) og verð heima í næstum allt sumar. Ég hlakka rosa til að byrja að vinna, hanga með vinkonunum, fara í útilegur, grilla, drekka íslenskt vatn, fara í sund, hafa bjart allan sólarhringinn og og og... allavega er mitt helsta markmið fyrir sumarið að ganga upp Esjuna, hef ekki ennþá gert það en talað um það í mörg ár núna - Ég veit alveg hvaða píur ég dreg með mér í það, Bjarney og Hafrún alvanar því að ganga þarna upp og Bjarney víst að hlaupa þar líka, en allavega upp skal hvernig svo sem ég fer að því.




Fór samt heim síðustu helgi í ferminguna hennar Elmu, það var æði og þvílíkt flott veisla með æðislegum mat og yndi að hitta ættingjana mína. Ferðin var hins vegar ansi stutt ég kom á laugardegi og fór aftur mánudagsmorgun. Ég fór m.a. að skoða íbúðina okkar Bjarna sem verður tilbúin í lok september og spennan magnast, gaman að spá í öllu sem þarf að spá í eða svona þangað til við þurfum að taka allar ákvarðanirnar, það er meira en að segja það!!!




annars var einhver golfpía sem fór holu í höggi um daginn og fékk dásemdar verðlaun fyrir það, nebbla ársbyrgðir af tyggjói...ég vildi að ég væri hún.




Begga

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Hæ

Takk fyrir síðast mín kæra og takk kærlega fyrir Elmu og alla hjálpina þetta var nú ansi skrautleg veisla sem endaði vel. Það var nú sofið mikið á mínu heimili eftir átökin en allir búnir að jafna sig og tilbúnir í aðra veislu haha.

Hlökkum til að hitta þig þetta var svo stutt stopp hjá þér og mikið að gera hjá mér að við bætum þetta upp þegar þú kemur á sunnudag.

Kveðja úr Grafarvogi ennþá bæjó þín yndislega systir.

Nafnlaus sagði...

Hæ elskan mín...verður gaman að fá þig heim :) Plönum hitting sem allra fyrst...Njóttu síðustu dagana í blíðunni með Bjarnanum þínum og góða ferð heim..
KNÚS frá Beggu

Nafnlaus sagði...

Já ég er sko klár í Esjuna whenever! Og ég er loksins búin að læra réttu leiðina upp þannig að ég dreg þig ekki í sömu svaðilför og ég og Habban lentum í, þegar við klöngruðumst upp snarbrattar hlíðar í snjósköflum og allt saman! Jájá svo bara merktur göngustígur ca.15 metra frá:-/

En ég ætla nú ekki að lofa að ég hlaupi upp Esjuna, hins vegar er geðveikt að hlaupa niður hana!! :oD

Ég er game fyrir 16.maí og eftir 13.júní;o)

Nafnlaus sagði...

Já betra að hafa nafnið sitt með, kv.Bjarney ;o)

Begga sagði...

Hæ elsku besta systir, veislan var frábær og maturinn ummmm ég var södd í 2 daga á eftir :) já tilbúin í aðra veislu segirðu ertu þá að meina heimkomuveisluna mína sem þið eruð eflaust að skipuleggja á fullu núna :) haha hlakka til að hitta ykkur knús og kossar á línuna luvBerglind

Takk elsku Begga mín við hittumst sko sem fyrst eftir að ég kem, hafðu það best honey luv

Haha sé ykkur alveg fyrir mér :) En frábært ég ætla að tékka á vaktaplaninu mínu og svo plönum við göngu kannski bara eina áður en þú ferð og eina eftir að þú kemur heim aftur ;) hafðu það best krúsí luvBegga

Nafnlaus sagði...

Hey, meira að segja Akureyringurinn ég hef labbað upp á Esjuna...!!! Gerði það að vísu þegar hitametið var slegið í Reykjavík í júlí 2004 og brann eins og kjúklingur... og gat ekki farið á handboltaæfingu um kvöldið... þjálfarinn mjööög sáttur ;o)

Begga sagði...

haha þú ert milljón Ásdís :) já ég er ferleg að hafa ekki farið upp Esjuna !!! en skal gera það í sumar :)

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís
Er mín bara í bloggpásu, komin í sumarfrí eða ??? Nú styttist í að við hittumst, ég kem heim eftir 2 daga, þá ert þú örugglega ekki á landinu :) hehe
Hlakka til að hitta þig og Kára hlakkar til að kynnast þér :)
Hilsen Anna

Nafnlaus sagði...

Ég er geim!

Hafrún