01 júlí 2006

Myndir frá D.vej

Hérna koma nokkrar myndir af íbúðinni okkar hérna í Danmörku, hún er rosa fín og við erum búin að koma okkur nokkuð vel fyrir...jæja læt myndirnar tala sínu máli...en eitt það er sko nóg af plássi fyrir þig/ykkur sem langar að kíkja í heimsókn :)





Annars er bara allt gott að frétta, veðrið leikur við okkur bongó blíða. Við erum mest lítið samt búin að gera, skelltum okkur reyndar til Århus í dag í Ikea og keyptum okkur hitt og þetta. Svo er kellan búin að skella í fyrsta réttinn hérna í DK og það var mexíkóst lasagne sem smakkaðist líka svona ljómandi vel, kem sjálfri mér á óvart. Ég, Bjarni, Hörður og Birna skelltum okkur líka á ströndina sem er hérna í Silkeborg, maður á nú örugglega eftir að kíkja nokkrum sinnum þangað :)

hafið það súper gott alle sammen
luvBegga

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vá hvað íbúðin er sæt, ég hlakka ekkert smá til að koma í heimsókn! hérna er bara endalaus rigning þannig að þú verður að "wörka tanið" fyrir mig líka á ströndinni ;)
knús lísa og ísey

Nafnlaus sagði...

hæ sæta...jáh íbúðin er glæsileg, þið eruð greinilega búin að koma ykkur vel fyrir! einnig er ég ánægð með píuna í kökkenetinu! hver veit nema að við getum skipst á djúsí uppskriftum næsta vetur :)
bið að heilsa og heyrumst sem fyrst! luv tinna

Nafnlaus sagði...

Elsku Berglind og Bjarni.Þetta er mjög glæsilegt og fallegt hjá ykkur. Hlökkum til að koma í heimsókn,er farin að telja dagana 30 dagar þangað til við komum.Kær kveðja mamma og pabbi.

Nafnlaus sagði...

hæ skvís
Rosalega er orðið kósý hjá ykkur !!! Hlakka til þegar ég og lilli/lilla kíkjum á ykkur ;) allavega nóg pláss fyrir gesti sýnist mér... og váááá flott sjónvarp!!! (var það keypt fyrir HM ;)
Njótið þess að vera í góða veðrinu !!
kv. úr rigningunni

Begga sagði...

Hæ elsku Lísa og Ísey, úff var einum of dugleg að worka tanið í gær, er frekar rauð og það bara öðru megin ekki alveg komin inní sólarmenninguna og gleymdi að snúa mér með sólinni hahaha :) luvBegga

Hæ Tinna skvís, já alltaf til í að skiptast á uppskriftum er viss um að þú lumar á mörgum góðum :) knús Begga

Hæ elsku besta mamma og pabbi ég hlakka líka rosalega til að fá ykkur, get ekki beðið :)hafið það ofsa gott luvBerglind

Hæ Anna pæ já það er sko nóg pláss fyrir þig og litla krútt :) hehe Sjónvarpið var nú ekki keypt bara fyrir HM en hefur komið sér einkar vel meðan það er í gangi hehe :) luvBegga

Nafnlaus sagði...

Ekkert smá fín íbúðin:) hlakka til að koma í heimsókn. ætla reyna að koma í heimsókn einhvern tímann þegar kemur ódýrt flug til þín.. og í leiðinni til frænku minnar og vinar míns í Aarhus, þau voru að eignast litla stelpu..

hafðu það best.
knús frá íslandinu og ekki góða veðrinu

Nafnlaus sagði...

vá massa sjónvarp maður.... rosalega flott íbúð hafðu það gott í DK