Frábær helgi að baki. Brúðkaupið hjá Ágústu og Birni var á föstudag og það var frábært í alla staði, takk æðislega fyrir mig. Eg skemmti mér rosalega vel og dansaði fæturna gjörsamlega af mér fékk blöðru og allt :)
Svo hélt ég kveðju og útskriftarpartý í gær, stemmingin hefði nú alveg mátt vera betri, ekki nógu ánægð með valspíurnar en se la ví ég skemmti mér allavega vel :)
Svo er það bara út eftir rúma viku, bara komið að því, mér hefur alltaf fundist vera nógur tími þangað til ég fer út en svo auðvitað flýgur tíminn áfram eins og ég veit ekki hvað og allt sem ég ætlaði að gera verð ég þá bara að gera seinna..
Verð samt að segja Takk fyrir mig allir sem komu og ég fékk rosa fallegar og flottar gjafir takk æðislega, fékk líka uppskriftarbók frá valspíunum :) rosa ánægð með það en skora núna bara á þær að koma í heimsókn til DK svo þær geti dæmt um hvort ég hafi nú eldað uppskriftina þeirra rétt :) hehe
bæjó
Begga
p.s næsta blogg kemur svo í Danaveldi, það er samt varla að maður þori að flytja þangað eftir allar sögurnar á blogginu hennar Hröbbu um EKKI danina, en Bjarni segir að glæpatíðnin sé með því lægsta í Silkeborg þannig að ekkert að óttast - vona það allavega !!
6 ummæli:
Takk fyrir kvöldið og fyrir okkur, þetta var geggjað! Sjaldan fengið svona góðar veitingar nammi namm - var ekki gott að fá sér afganginn í morgun? ;)
Heyri nú í þér áður en þú ferð - Luv Eygló
Hæ sæta mín :) alltaf svo gaman að hitta þig og kaupmanninn:) jú ég er sko búin að vera á beit í morgun hehe ekkert smá gott :) Ég hringi í þig í vikunni sæta mín tökum kannski kaffihús áður en ég fer luvja Begga
Takk fyrir mig !! Rosa fínt í gær og góður matur... nammi namm... hefði alveg verið til í að mæta í afganga til þín í dag ;) hehe
Sjáumst svo hressar 24.maí útskriftardaginn okkar :)
kv. Anna
iss piss.. ég flokkast undir "ekkiDani" í Danmörku og mér finnst ég hegða mér bara alveg ágætlega!!! til lukku aftur með útskriftina, við sjáumst kannski einhvern tímann ef/þegar þú átt leið um köb...
tataaaa
s.
Innilega til lukku með útskriftina fallega hjúkka.. Hlakka til að fá þig.. Held að þú sért alveg óhullt í Silkeborg.. Þú verður bara að koma til mín ef þú vilt buffa vitleysinga..
HÆ sigrún pæ já ég hringi sko pottþétt í þig þegar ég skrepp til Köben :)hafðu það gott skvís luvbegga
Skrifa ummæli