04 desember 2006

Home sweet home

Er komin heim í heiðardaglinn eftir ansi langt og strangt ferðalag frá Rúmeníu. Ferðasaga með myndum og fleira kemur seinna



Kellan er ein í kotinu þar sem Bjarni skellti sér til Íslands. Ég er nú í góðum höndum enda er Hrabba búin að lofa að passa mig voða vel, þannig að ég þarf engar áhyggjur að hafa :)



Annars var merkisdagur þann 25.nóv (reyndi að setja inn kveðju þá en að sjálfsögðu klikkaði bloggerinn) þar sem mín yndislega vinkona Anna átti afmæli. Anna er sko sú sem þraukaði með mér í gegnum hjúkkunámið og var svo "heppin" að vera með mér í hinum ýmsu verkefnum og svo lokaverkefninu!! Hún fékk ansi oft að heyra "hmmm heyrðu ég þarf að fara út í viku útaf boltanum" blabla en stúlkan fær sko þúsund plúsa í kladdann að hafa þolað mig og mitt vesen :) Ég hefði sko aldrei komist í gegnum námið án hennar.
Ég vona að þú hafir átt frábæran afmælisdag krúsí mín, ég hlakka endalaust til að hitta þig um jólin og fá að knúsa ykkur familíuna og sjá Kára sætasta - GET EKKI BEÐIÐ. Afmælisknús og kossar frá mér luvja. (Hérna til hægri eru Anna og Örvar og litli sæti Kári í mallakútnum :)
læt þetta duga í bili enda ansi þreytt kella sem kveður
luvBerglind

1 ummæli:

Anna sagði...

Takk fyrir fallegt blogg Begga mín, gaman að lesa svona :) En þú varst nú ekkert svo erfið.... :) Bara gaman af þér og þínum ferðalögum !!! Hefði samt alveg verið til í að koma með í eitt þeirra....
En okkur Kára hlakkar líka rosa til að hitta þig um jólin, á morgun erum við að koma heim á morgun !!!
Sjáumst eskan
kv. Anna og Kári