Þegar maður klárar skólann er maður mest fegin (yfirleitt) að losna við allt sem heitir verkefni + próf og stressið sem fylgir því.. en neiiiii ég er búin að vera stressuð í 2 vikur núna, þetta er bara orðið svona skilyrt viðbragð hjá mér (eða er ég að fara með e-a vitleysu Hafrún þú kannt þetta nú út í gegn) því þegar apríl/maí og nóvember/desember koma þá bara verð ég ósjálfrátt stressuð. Hvaða rugl er það!!! Þannig að þegar ég segi að ég finni til með ykkur sem eruð í próflestri og prófum núna, ÞÁ VIRKILEGA MEINA ÉG ÞAÐ hehehe :)
en jæja nú er 10 daga handbolta fríi að ljúka. Æfingar byrja aftur í dag og standa til 30. júní þá fáum við sumarfrí í 3. vikur. Þessi tími er ekki minn uppáhalds, enda oftast mikið um þrek og lyftingar, en þetta fylgir sportinu víst og yfirleitt gleymir maður því fljótt þegar upp er staðið, sérstaklega þegar vel gengur þá er það þess virði :)
annars eru stuðningsmenn Brøndby að gera allt vitlaust, en Brøndby hefur ekki unnið leik á Jótlandi núna í næstum ár og dropinn sem fyllti mælinn var 3-0 tap á móti neðsta liði deildarinnar Vejle en eftir þann leik tóku hörðustu stuðningsmennirnir sig til og brutu hurð og rúðu á leikmannarútunni. jamm þeir gera kröfur, getið lesið um þetta hér.
já þetta var hressandi blogg þar sem ég fer úr einu í annað...Svona fer stressið með mann maður heldur engri einbeitingu.
Begga
25 apríl 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Begga mín þú verður nú að fara og láta tékka á þér !! Vorkenni þér að vera með prófstress og vera ekki í prófum (því ég veit hvað þú ert stressuð í prófum eskan;)
Vonandi gengur þér bara vel í ,,prófunu,,
hilsen fra Norge
haha já þetta er nú meiri vitleysan :) þetta er samt allt að lagast enda er ég að fatta að það eru engin próf :) LJÚFT...hilsBegga
Skrifa ummæli