18 september 2006

4 stig á drebbann


Langar að byrja á að óska minni yndislegu bestu systur í heimi til hamingju með afmælið. Hún átti afmæli í gær skvísan og auðvitað alltaf jafn ungleg :) Hérna eru ég og hún á leið í Óvissuferð með Val í fyrra, hún var í kvennanefndinni, ég með "melludólgahattinn" eins og öllum fannst hehehe
Svo átti Stebbi hennar Sillu líka afmæli í gær, til lukku með það Stebbi minn - greinilega bara úrvalsfólk sem á afmæli 17.sept :)


Helgin er hins vegar búin að vera Æðisleg hérna í Danmörkunni. Við byrjuðum á að fara í fótboltagolf á fimmtudaginn og það var rosa stuð :) Þetta er nákvæmlega eins og golf nema maður notar fótbolta og fæturna að sjálfsögðu :)(segir sig nú kannski sjálft hehe) þetta var 18 holu völlur með allskonar brautum og mismunandi hindranir á hverri og einni. Bjarni var nú farin að stórefast um fótboltahæfileika mína og spurði mig ansi oft "bíddu æfðirðu ekki fótbolta" fusssss hann átti nú nokkur skrautleg "högg"/"spörk" og hann er atvinnumaður í FÓTBOLTA :) hehe
Síðan ákvað ég að bruna til Fredericia í smá heimsókn til Árný og Fannars. Ég stoppaði reyndar stutt, en fór á leik með Fannari - það var stuð og mikil stemming í höllinni. Árný og Fannar eru búin að koma sér ekkert smá vel fyrir og eru bara í klst fjarlægð frá okkur þannig að maður er enga stund að bruna til þeirra :)
Svo lá leiðin á Vejle völlinn en Bjarni og félagar kepptu á móti Vejle á laugardaginn og þeir UNNU víííí 4 -2 og Bjarni var góður. Það var auðvitað þungu fargi af þeim létt og þessu fagnað um kvöldið. Ég var hins vegar bara heima þar sem ég var að keppa í gær á móti GOG og við gerðum jafntefli :) Þannig að þetta var aldeilis frábær helgi fyrstu stig okkar Århus pía og gríðarlega mikilvægur sigur hjá Silkeborgar-mönnum.
Svo var ég vakin í morgun með frábærum hætti :) Pakki frá mömmu og pabba. Takk elsku mamma og pabbi þið eruð best.
Saknaðarkveðjur
luvBerglind

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ skvís
Gaman að heyra hvað helgin var skemmtileg, ég átti líka frábæra helgi í Noregi, enda er enn sumar hér... annað en heima á klakanum ... :S
Væri sko alveg til í að prufa fótboltagolf.. kannski maður sé eitthvað skárri í því en venjulegu golfi...
Heyrumst
kv. Anna og litli kútur

Nafnlaus sagði...

Hæ, rakst á síðuna hjá þér. Gaman að það gengur vel hjá ykkur, til hamingju með fyrstu stigin... nú er seasonið að byrja hér heima með öllu tilheyrandi, þannig að bongotrommurnar eru farnar að volgna. Sjáumst hress.

Begga sagði...

Já Anna mín þú kemur bara í heimsókn hingað til Silkeborgar og við skellum okkur í Fótboltagolfið...ég er sko 1000x betri í þessu heldur en venjulegu golfi dííí enda engin leið að hitta svona lítinn bolta með kylfu hehe :) hafðu það gott skvísan mín knúsar og kossar til ykkar luvBegga

Hæ hæ Baldur gaman að heyra frá þér, ég held ég verði bara að fara splæsa í ykkur hingað út til að mynda alvöru stemmingu, sakna þess ekkert smá mikið...þið eruð langflottastir vis ses Begga

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ til hamingju með stigið:) vildi bara kasta á þig kveðju mar fylgist nú með ykkur..væri nú gaman ef að við píurnar hér í DK myndum mæla okkur mót einhvern daginn og hittast ég veit að ég og Guðbjörg vorum aðeins búnar að tala um það.
Kveðja Ragnhildur í Skive

Begga sagði...

Hæ Ragnhildur Takk fyrir það og sömuleiðis til hamingju með sigurinn á móti Silkeborg - ég hefði mætt á leikinn ef að við hefðum ekki verið í rútuferð :( úff ekki gaman öll þessi ferðalög...ennnn já endilega ég er sko til :) við þurfum bara að finna okkur tíma og stað og svo framkvæma knúsBegga

Nafnlaus sagði...

hæ sæta, þú rúllar náttúrulega þessum baunum bara upp og ég vona að foreldrar þínir hafi verið að senda þér íslenskt nammi og kannski skotvesti? :) Hafðu það gott elskan kv. Hulda

Begga sagði...

Hæ hæ elsku Hulda, já mamma og pabbi sendu mér sko gotterí :) jógúrt rúsínur hehe knúsar og kossar luvBerglind

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta mín:* það er gott að það er stuð hjá þér í útlandinu. Benidormferðin var geðveikt skemmtileg eins og í fyrra en það vanntaði þig alveg klárlega í stuðið. Sakknaðarkveðja Kata:*:*

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku systir
Takk fyrir fallega afmæliskveðju. ´
nú er verið að ganga frá eftir afmælið hennar Helgu og síðan bara að pakka fyrir Spánarferðina á morgun. Allir biðja að heilsa
kossar og knús
þín besta og eina systir.

Begga sagði...

Hæ Kata mín já alltaf stuð...oooo trúi því að ferðin hafi verið æðisleg, enda ekki annað hægt þegar jafn frábær hópur fer saman luvBegga

Hæ besta systir, góða ferð til Spánar og njótið þess nú að eiga smá frí saman kossar og knús til allra lovja Berglind