11 september 2006

2 töp, 2 vondar kökur usss

jammogjæja við töpuðum leiknum á móti Esbjerg 29 - 22, alls ekki nógu góð úrslit. Kellan spilaði ekkert. Það er talað um leikinn á þessari síðu http://www.skaarhus.dk/ Við hefðum átt að vinna þennan leik að mínu mati, þegar um 7 - 8 mín voru eftir var staðan 21 - 20 fyrir Esbjerg...

Sunnudagurinn var öllu skemmtilegri (svona að mestu leiti) Dagný, Gunnar Berg og moli litli komu í heimsókn til okkar. Hrabba, Viktor, Hanna, Valný og Biggi komu líka, ætlunin var að fara á leikinn hjá Bjarna og vera HAPPA. Við fórum á leikinn - en við vorum ekki happa :( Bjarni og co töpuðu leiknum 2 - 0, dííí ekki gott.

En heimsóknin var skemmtileg, moli litli var látinn í æfingabúðir :) hann þurfti að æfa sig að labba og gekk vel sló metið :) komin held ég 7 skref - já hann er sko lang flottastur.

Ég ætlaði nú að sýna gestunum að kellan gæti nú verið smá húsmóðir...bakaði 2 kökur og hvað haldið þið júúú þær voru BÁÐAR VONDAR, djöööö - alltof þurrar og harðar, Viktor var nú kurteis og fékk sér eina sneið haha - hann er líka með sterka kjálka drengurinn.

Við slúttuðum síðan kvöldinu með Pizzu, sem rann sko ljúflega niður :)

Hérna eru síðan sætu "litlu" frænkur mínar :) já ég segi ennþá litlu frænkur en þær eru ekkert litlar lengur - orðnar jafnstórar og ég :) og sko orðnar 17. ára skvísurnar. Rakel átti afmæli 25.ágúst og Andrea á afmæli á morgun - semsagt báðar 17.ára (næstum) komnar á kagga og læti. Keyrið varlega elskurnar :)

Mamma fékk smá sjokk um daginn þegar Systir mín gerði henni grein fyrir að hún gæti bráðum orðið langamma :) hehe mamma bara jiiiii heldurðu að þær eignist barn á undan Berglindi - jaaaa mamma það gæti nú bara orðið svo :) kellan er ekki alveg í barnahugleiðingum núna. Þetta er nú samt orðið dáldið öfugsnúið það voru nú þær sem áttu að passa börnin mín en gæti allt eins orðið að ég passi þeirra. Nei held samt ekki þær eru ennþá svo ungar þessar skvísur. Ég sakna allra heima ofsa mikið, það var nefnilega afmælisveisla á laugardaginn en þá átti Hans Viktor afmæli og bráðum á Helga Kamilla afmæli eða 16.sept.

Já systkini mín voru voða sniðug og eignuðust börn nánast á sama tíma ALLTAF. Frekar fyndið það eru 18 dagar á milli elstu, 5 mánuðir á milli mið og 7 dagar á milli yngstu :) þannig að það er alltaf fjör þegar familían hittist enda alltaf einhver til að leika við eða spjalla við á sama aldri :)

Þau eru svo mikið æði, mamma og pabbi keyptu handa þeim búning svona eins og Bjarni spilar í og gáfu þeim þau eru náttla æði í búningnum...sakna ykkar krúslurnar mínar.

Elma Dögg og Steinunn Lind þið komið seinna ;) fáið alveg spes blogg, sakna ykkar rosa mikið luvBerglind

nóg í bili og segið nú hæ ef þið lesið bloggið :)

luvBerglind eða Berglund eins og Danir virðast halda að ég heiti ;)

8 ummæli:

skuladottir sagði...

Hæ hæ sæta og takk fyrir okkur. Það var ekkert smá næs að kíkja á ykkur.... Molinn þokkalega sáttur við að hafa slegið metið hjá Beggunni:) Nú er bara að plana ferð til Holstebro, gólf fyrir karlana og búðirnar fyrir okkur:)
Hafið það gott.
Dagný

Nafnlaus sagði...

sælar

uss ég er ósátt með að þú fekkst ekkert að spila.....þótt ég hafi ekki séð leikinn...við söknum þín....knús og kossar Soffía

Nafnlaus sagði...

Hæ Berglund mín...hehe :) Alltaf gaman að lesa fréttir frá ykkur..leiðinlegt með leikina að þeir skyldu ekki hafa endað betur..en valsmennirnir unnu alla vega grindavík í gær :) fór á leikinn og steinki nefbrotnaði :( greyið...og guðmar nýbúinn að viðbeinsbrotna í fótbolta...hættulegur þessi bolti..ha! :) Hafðu það ofsa gott sæta mín..knús og kossar frá Beggsunni

Begga sagði...

Hæ Dagfríður mín :) Hlakka til að kíkja til ykkar sem fyrst og lýst ljómandi vel á það að senda kallana í golf og kíkja svo aðeins í búðirnar ;) hafið það gott luvBegga

Hæ Soffía mín, sakna þín og ykkar aleg ofsalega mikið, skilaðu kveðju til allra knús og kossar luvBegga

Hæ Begga sæta mín, jiiii ég vona að það sé í lagi með bræður þína...þessi bolti er ekki hægt :) alltaf þegar ég slasa mig þá er það í upphitun í fótbolta hehe :) Ég vona að valsstrákarnir nái bara FH og landi titlinum þó að möguleikinn sé nú ekki rosalegur...vona að allt gott sé að frétta af ykkur skötuhjúum, sakna ykkar knús og kossar Begga

eyglo sagði...

Hæ hæ Begga mín :) Var bara að koma frá Portúgal áðan, búin að hafa það allt of gott í sól og sælu. Líka búin að borða yfir mig af yndislegum mat á hverju kvöldi :P Alla vegna komin með væna bjórbumbu híhí - En ég hristi hana nú af mér fljótlega ;) Sendi þér svo póst við fyrsta tækifæri. Luv Eygló

Begga sagði...

Hæ elsku yndislega Eygló mín...jiii hvað ég öfunda þig að hafa verið á portúgal þó svo að veðrið hér sé sko búið að vera frábært í miðjum september :) en samt svo gott að vera bara í fríi, liggja hele dagen, sötra drykki oooo dejligt ;) sakna þín sæta mín hafðu það gott luvja Begga

Nafnlaus sagði...

Hæ Kella. Gaman að lesa bloggið þitt skvísa. Þú þekkir mig ég er ekki mikil netmanneskja en fyndið akkurat þegar ég fer inn á síðuna þína er helmingurinn af systkinahópnum mínu í heimsókn. Sakna þín mikið, ekki eins á æfingum eftir að kellan fór.
Kveðja Drífa

Begga sagði...

Hæ Dríbban mín, hehe já það var ættarmót hérna í Danmörkunni verst að þú ert ekki hérna, helmingurinn af lígunni staddur í DK spurning hvort að hinn helmingurinn komi ekki í reunion til DK :) Hafðu það gott sæta mín knúsog kossar Begga