26 september 2006

Stutttttt í þetta skiptið

Hæ hæ stutt í þetta skiptið. Við kepptum leik á móti Ikast síðasta sunnudag, töpuðum með einu marki því miður, spiluðum fínan leik en smá meiri einbeiting í lokin og skynsamara spil þá hefðum við unnið leikinn. Ég kom inná í einu víti en tókst ekki að verða fyrir því. Bjarni og félagar gerðu hins vegar jafntefli á móti Randers og voru þeir ánægðir með það.
Það er svo leikur aftur á morgun hjá okkur Århus píum á móti FCK þannig að það er skemmtilegt ferðalag í vændum - en þá kemur ferða DVD spilarinn að góðum notum :)
Áfram Valur í kvöld - hugsa til ykkar stelpur og sendi góða strauma.
Ég, Bjarni og Heimir sitjum hérna að horfa á Americas next top model JÁ það er girl power í gangi þið sjáið hver ræður fjarstýringunni hér.....Niiii reyndar ekki alveg þeir eru 2 á móti mér einni og við skiptum yfir á fússara eftir smá :) :)
Fleiri fréttir seinna
Hafið það gott
Beggan kveður.......

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

sæl skan mín!
bara að kasta á þig einni laufléttri!
good luck í aften sæta mín! hilsen frá paris! luv tb

Begga sagði...

Takk Tinna mín :) Hafðu það gott í parís og bið að heilsa strákunum þínum :) knúsBegga