og það 800 metra frá okkur....já það gerist greinilega allt í Silkeborginni, það var semsagt skotið 6 - 9 skotum inn á löggustöðina hérna í Silkeborg á aðfaranótt miðvikudags, sem betur fer slasaðist enginn, skotin fóru inn um rúðu og enduðu í veggjum hér og þar á löggustöðinni. Það hefur ekki enn þá náðst til þessara vitleysinga en ég vona svo sannarlega að löggan finni þá.
Annars mætti bara halda að sumarið væri komið aftur, það er ekki eðlilegt að vera bara á hlýrabol og pilsi 13.september....en jú jú og ekki kvarta ég, ekkert smá notalegt að hafa svona gott veður og vona ég að það verði gott haust og góður vetur í ár :)
Hvet síðan alla til að kíkja á kastljósið í gær http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4298215 ef þetta er ekki forvörn fyrir alla sem hafa bílpróf og sérstaklega alla þá sem halda að það sé hipp og cool að keyra hratt þá veit ég ekki hvað. Segi eins og foreldrar þessa drengs sem fjallað var um í kastljósi í gær, látið ykkur þetta að kenningu verða, ekki hugsa "þetta kemur ekki fyrir mig" því þetta getur vel komið fyrir þig/mig + að við leggjum alla aðra í kringum okkur í hættu með svona fáranlegum akstri.
Ég hef það oft á tilfinningunni sérstaklega heima á Íslandi að þegar maður keyrir á löglegum hraða þá séu allir í kringum mann pirraðir því maður keyrir svo "hægt" ég segi nú bara leggið 5 mín fyrr af stað :)
jæja forvarnar Begga kveður
luv
2 ummæli:
hæ sæta.. úff.. þið eruð bara í stórhættu þarna!! Já og ég er mjög sammála með hraðaksturinn.. það eru núna 20 búnir að deyja í umferðinni hérna heima. Kíktu endilega á síðuna www.stopp.is og skrifaðu undir...
Lov ya
hæ sæta mín ég kíki á síðuna...vonandi að þessi átök fari að skila árangri knús lovjaBegga
Skrifa ummæli