16 febrúar 2007

Ekkert nýtt

Tap á móti slagelse 22 - 30, engin stóð á höndum í þessum leik eins og síðasta á móti þeim. En markmaðurinn hjá þeim Cecilie Leganger, besti kvenmarkmaður í heimi að mínu mati, var ótrúlega góð í leiknum, það var einmitt hún sem stóð á höndum í víti í síðasta leik!!!


Ég er búin að opna nýja myndasíðu þar sem ég set inn fullt af myndum, nú þegar eru komin 4 albúm. Þessi síða er læst en þið sem hafið áhuga á lykilorði getið sent mér mail beggah@hotmail.com. Það eru mest eldri myndir þar núna og ætla ég mér að setja inn flest allar myndirnar mínar þannig að nóg er að skoða.
Svo ákvað ég að taka saman afmælisbörn febrúarmánaðar en :

Bjarney sæta vinkona átti afmæli 10.feb. Ég vona að þú hafir átt góðan dag skvísí. Ég gæti sagt endalaust af sögum af Bjarney t.d. þegar ég kynntist henni fyrst af alvöru var þegar við fórum saman til Costa del Sol þar fór Bjarney hreinlega á kostum...gleymi aldrei þeirri ferð.
Svo átti Ísey skvís afmæli 14.feb á sjálfan valentínusardaginn og það var stórafmæli því hún varð eins árs :) mikið ótrúlega líður tíminn hrikalega hratt. Sakna þess ekkert smá að geta ekki heimsókn öll litlu krílin sem vinkonur mínar eiga, þau stækka svo rosalega hratt og maður missir af öllu t.d. þegar þau fá tönnslur, byrja að sitja, skríða, labba, tala og svo get ég ekkert spillt þeim og innprenntað inní þau að ég "begga" er lang best og skemmtilegust og ég hef það e-rn vegin á tilfinningunni að foreldrar þeirra eru ekki nægilega dugleg í því :)


Annars mest lítið að frétta, en ég kem eflaust með fullt af fréttum í lok næstu viku þegar allt fer að skýrast betur.


Eigið góða helgi

luvBÍH

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta! Já það er satt.. tíminn líður hratt ...

Kvitta hér fyrir heimsóknina.. en ætti nú svo að kíkja í heimsókn fyrir alvöru!

Knús

Nafnlaus sagði...

hæ mín kæra....langaði bara að kasta á þig einni laufléttri....
ég skal gera mitt besta að "begguspilla" barninu....
saaaaakn, t

Begga sagði...

þú ert alltaf velkomin Eva mín:) en þangað til þá er æði að fá comment frá þér lovja Berglind

Ég vissi ég gæti treyst á þig Tinna mín í spilleríinu :) hafðu það súper gott og knús til ykkar allra saknaðarkveðjur Begga