það er rólegt lífið þessa dagana hjá okkur í DK, Bjarni er á fullu að æfa og spila æfingaleiki og gengur alltaf betur og betur hjá þeim, vonandi að þeir toppi á réttum tíma en fyrsti leikurinn er 13.mars og fyrstu þrír leikirnir eru gríðarlega mikilvægir en þeir spilast á móti liðum sem eru í neðri hluta deildarinnar.
Óvissuferðin sem liðið hans fór í um daginn var engin skemmtiferð, engin bjór í annarri og afslöppun eða þess háttar, heldur var þetta eins konar survivor og því kom súkkulaðið sem ég stakk ofan í töskuna hans að VIRKILEGA GÓÐUM NOTUM :) hann og hópurinn hans voru ánægðir með kelluna :)
Vinnan var ekki eins og ég bjóst við en ég þetta er allt í vinnslu og skýrist vonandi sem fyrst, á meðan bíð ég bara róleg og nýt þess að hafa það huggulegt. Held reyndar að ég sé komin með netta svefnsýki...aftur já tók 1 ár hérna að forðum þar sem ég gerði ekkert annað en að sofa....en já allavega þá get ég sofið endalaust hérna alveg ferlegt.
Leikur á morgun hjá okkur århus píum á móti Kolding sem er með 13 stig 2 sætum fyrir ofan okkur, en við erum með heil 8 stig :) Árný pæja ætlar að kíkja á leikinn og verður gaman að fá að knúsa hana aðeins og spjalla við.
Það vantar sko mikið vinkonurnar hingað út, því á kvöldum eins og akkurat þessu væri maður alveg til í að slá á þráðinn og fá e-a í heimsókn eða kíkja í heimsókn, kaffihús, bíó eða bara hanga með skvísunum. Já það koma tímar sem manni langar heim :)
annars er ég komin með rosalega magaæfingu fyrir ykkur, getið fengið útrás í leiðinni en ég fór í ræktina áðan í e-n tíma og þar gerðum við furðulegustu magaæfingu sem ég hef nokkurn tíma gert...við áttum að vinna 2 og 2 saman þar sem önnur stóð með hendur fyrir aftan hnakka og spennti magann á meðan hin átti að kýla í hann hehehehe ....spes myndi ég segja :)
jæja nóg í bili
luvBÍH
5 ummæli:
hehe já þetta voru nettar magaæfingar. Hjúkket samt að ég var ekki ein í tímanum og þurft að berja einhverja ókunnuga danska =)
kv Birna
Hæ skvis, gaman ad sja tig i gær og til hamingju med sigurinn :) ekkert sma spennandi leikur.
Vonandi sjaumst vid a sunnudaginn!!
hilsen
arny
já Birna var einmitt að spá í því það hefði verið ferlegt :) hehe knúsBegga
Hæ sæta og æði að hitta þig í gær..ég hringi á morgun knúsBegga
Hæ sæta! Bara að kvitta fyrir heimsóknina og takk fyrir fallegu skilaboðin um daginn í símann ;-)
Sakna þín,
Það var lítið elsku Eva mín...hafðu það best sakna þín mikið lovja Berglind
Skrifa ummæli