18 febrúar 2007

Bolla Bolla

Ég elska bolludaginn, þá borða ég BARA bollur og ég lýg ekki, borða þær í morgun-, hádegis- og kvöldmat og líka milli mála, það er kannski þess vegna sem mér finnst alveg nóg að fá þær 1 x á ári :) Bollur eru uppáhaldið mitt, af öllu gotteríi eru vatnsdeigsbollurnar hennar mömmu þær lang bestu. Þar sem mamma er því miður ekki hérna hjá mér nú eða ég hjá henni þá varð ég að gera það næst besta en það er að baka bollurnar sjálf með uppskriftinni hennar múttu. Þær voru jammmmmmíííí þó ég segi sjálf frá :) Ég bakaði þrefalda uppskrift og sem betur fer komu Hrabba og Viktor og hjálpuðu okkur að borða því annars hefði ég farið létt með að klára þetta sjálf :) Vigtinni til mikillar mæðu :)

Set inn myndir, fyrir þig mamma til að sýna hvað ég var myndó :) Þær líkjast þínum nú smá.


Annars var helgin hin fínasta, Bjarni bauð nokkrum úr liðinu heim á föstudaginn og var mikið stuð. Daginn eftir bankaði e-d fólk uppá og var ég VISS um að þau væru komin til að kvarta yfir hávaðanum kvöldið áður. Bjarni fór til dyra en ég reyndi að hlusta hvað færi fram, það sem ég heyrði "það ... truflun .... er með ... lista... hugsa um aðra" og svo auðvitað fyllti ég í eyðurnar og niðurstaðan var sú að þau væru komin hingað til að reka okkur út...en nei ekki alveg þau voru bara frá trúarsöfnuði með bækling til að kynna fyrir okkur. Djö.. get ég verið ímyndunarveik.
luvBÍH

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

elsku Berglind bollurnar þínar eru glæsilegar og örugglega mjög góðar.Kannski baka ég bollur á morgun, ef pabbi þinn verður hressari. Ástar og saknaðarkveðja til ykkar. mamma

Nafnlaus sagði...

Vááá hvað þú ert dugleg Begga! Hrikalega flottar bollur hjá þér.. endilega spurðu danina hvort að þeir vilji bolle??

(Ég var mjög misskilin þegar ég sagðist ætla "bolle" foreldrana mína þegar ég bjó 6 ára gömul í Danaveldinu.. huhumm...)

Knús og ást frá mér,

Begga sagði...

Hæ mamma takk þú ert bestust lojva Berglind

hahaha Eva María ég er búin að heyra aðra svona sögu þegar Íslendingur var að segja Dana frá bolluvendinum og "alle boller alle", börnin "boller" foreldana og ömmur og afar "boller" börnin hehehehe :) knúsBerglind