Ég skal viðurkenna að núna er smá snjór komin til Danmerkur, en það er ekki "snestorm" úti eins og danirnir segja. Það þarf nú að vera smá vindur til að hægt sé að kalla það storm hehe :) Æfingu var frestað í dag vegna veðurs, nokkrar búðir niðrí bæ voru lokaðar vegna veðurs og já það liggur bara ýmislegt niðri vegna veðurs.Ég tók þessa mynd í morgun og eins og þið sjáið þá er enginn stormur úti :) ok allavega er enginn stormur hjá okkur í Silkeborg...var einmitt að horfa á fréttirnar og það er víst slæmt annars staðar hehe :) alltaf logn í silkeborginni greinilega
Spiluðum í gær á móti Holstebro unnum 21 - 34 í mjög svo sérstökum leik. Holstebro spilaði meirihluta leiksins með 7 útileikmenn, tóku sem sagt markmanninn útaf, þetta gekk ekkert allt of vel hjá þeim en heldur ekkert spes fyrir okkur því í hvert skipti sem við unnum boltann skutu leikmenn strax á tómt markið og fóru all mörg skot framhjá eða í stöng, greinilega ekki eitthvað sem hefur verið æft nóg þ.e. að skjóta yfir endilangann völlinn hehe :)
Bjarni er síðan á leið í æfingaferð á laugardaginn til Spánar og verður í viku, fer bara úr snjónum í sólina. Vonandi að hópurinn nái að þjappa sér saman því fyrsti leikurinn er síðan 13.mars eða viku eftir að þeir koma heim.
nóg í bili
Begga
3 ummæli:
hæ skvís, ég las að kellan hafi verið með 5 mörk er það ekki bara met hjá Beggs ;) ég hélt kannski að það væri prentvilla en nú þegar maður les gang leiksins þá er spurning hvort að Beggan hafi bara verið næstum því markahæst :) hehe knússs Guðbjörg
Hæ hæ sætasta
Við söknum þín ekkert smá, myndum sko vilja vera hjá ykkur núna í snjónum;)
en risaknús
Martha og Dagur Árni
híhí blöðin ljúga ekki er það nokkuð :) knús
hææææ já það hefði verið frábært að hafa ykkur hjá okkur...saknaðarkveðjur Begga
Skrifa ummæli