Já loksins loksins tókst okkur að vinna í eyjum, höfum ekki beint gert góða hluti þar í vetur, en það tókst núna...en aðeins hálfur sigur unninn - leikur aftur á fimmtudag og hvet ALLA valsara til að koma í höllina.
Annars mest lítið að frétta, helgin fór mest í handbolta. Horfði á 2.flokks strákana vinna Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð, glæsilegt hjá þeim - til hamingju strákar.
Svo bara hafði ég það gott með múttu og pabbsa en þau voru að koma heim frá Spáni og mamma gerði sér lítið fyrir og kom heim með 20 pör af skóm með sér, haha ég hélt ég myndi andast þegar hún dró hvert skóparið á fætur öðru uppúr töskunni og svo bara útdeildi hún skóm á liðið, mamma og pabbi klikka ekki :)
Horfði á Kompás þáttinn á Sunnudaginn þar sem þeir fylgja eftir tveimur fíklum. Ekki spennandi líf og vonandi að þetta sé forvörn fyrir unglingana - hver vill lifa svona lífi.
Nennekki meir
hafið það gott kveðja Begga
14 ummæli:
Hæ sæta ætlaði bara að kasta á þig kveðju. Váá hvað þetta var flottur sigur hjá ykkur, djö langaði mig að vera með ykkur, stolt af ykkur og svo er bara að taka þetta á fimmtudaginn og ekkert múður, þið eruð lang bestar. Kossar og knús frá valsaranum í Grossó
Hæ Elfa mín takk skvísa og ég vildi sko líka að þú værir með okkur sakna þín ekkert smá...gangi þér ofsa vel í prófunum skvísí og hlakka til að hitta þig í sumar luvBegga
Til hamingju með sigurinn í gær !!! Góður endasprettur hjá ykkur :) Þið takið svo þessar eyjastelpur á morgun í höllinni (kannski maður mæti á leikinn, þó maður sé ekki valsari) !!! ÁFRAM VALUR !!
kv. Anna lokaverkefnisfélagi ;)
hæ krúsí ;) tii hamingju með frábæran leik í gær og síðan verður þetta bara klárað á fimmtudaginn ;)
knús frá lísu og íseyju
hæ sæta mín, djö varstu góð í leiknum, til hamingju með sigurinn!
svo bara massa hinn leikinn á morgun!!:)ég ætla að reyna að mæta í höllina;) sjáumst kannski..heyrumst allavega. good luck. knúsar frá mér.
Til lukku með sigurinn! Ekki leiðinlegt að sjá ykkur í TV vinna út í Eyjum! Ég sofnaði sko ekki núna ;)
Ég ætla nú að draga rassgatið mitt á leikinn á fimmtudaginn - þýðir ekkert annað :)
Hæ allar Anna, Lísa og Ísey, Sara og Eygló :) Takk...og endilega mætið í höllina það er ókeypis fyrir þá sem mæta í valsbúning, ég get lánað ykkur ef ykkur vantar Hahaha knúsar og kossar luvBegga
Rautt er alveg nóg, engin afsökun að mæta ekki kv Thelma
hæ sæta mín, til lukku með sigurinn og að hafa lokað rammanum á lokasprettinum!
gangi þér vel í aften, hugsa til ykkar!
kv. tinni
Hæ sæta, ætlaði bara að senda baráttu kveðjur fyrir leikinn í kvöld, ég verð með ykkur í anda og vona að þetta verði sýnt í tv svo ég geti fylgst með og koma svo og svo....
Kossar og knús frá Grossó
blessaðar.....nú er bara hálfleikur og þið takið þann seinni líka, bið spennt í tölvunni minni í kvöld ætla sko ekki að missa af þessu (elfa er sýnt á rúv).....gangi ykkur vel ;)
knús og kossar frá CR
Til hamingju með titilinn, als ekki slæmt að kveðja svona:)
Gangi þér vel í Dk
Kv. Svanhvít Helga
Til hamingju með titilinn Begga mín :)
Kveðja,
Erna bekkjarsystir
Takk fyrir það Svanhvít og Erna :) knúsBegga
Skrifa ummæli