15 maí 2006

Púúúúúú

Já ég segi púúú við kvefi, hósta, hálsbólgu, beinverkjum, magaverkjum, höfuðverk – púúúú á flensu...hvað er það að fá flensu þegar það er næstum komið sumar, ekki gaman get ég sagt ykkur. Öll vikan er búin að fara í það að snýta sér, drekka heitt te, sólhatt, taka inn hóstasaft og blabla en þetta versnaði bara og endaði með því að ég fékk hita í gær og var með hita í morgun og þurfti að sleppa æfingu...

En að öðru helgin var skemmtileg, fyrir utan flensuna, en HSÍ hófið var á laugardaginn og byrjuðum við valsstelpur daginn snemma og hittumst kl.13 og fórum í ratleik og enduðum í laugum. Hófið var bara fínt, reyndar er það alltaf eins, þ.e. sama dagskrá og meira að segja sami matur :) en samt alltaf gaman á svona samkomum.

Hérna er mynd af okkur valspíum í ratleiknum við vorum allar með kórónur og borða sem á stóð ýmislegt á mínum stóð miss mermaid það er sko saga á bak við það, en ekkert til að tala um hér :) og aftan á stóð “stelpur ekki skjóta í gólfið” hehe ég segi þessa setningu ansi oft :)

Eitt smá persónulegt - Anna vinkona og lokaverkefnis félagi ..takk fyrir að vera svona frábær :)

Svo er það landsleikur á morgun á móti Hollandi, allir í höllina...

Hei jú eitt í viðbót...ég náði báðum prófunum :) JIBBÍ KÓLA við því get ekki lýst því hversu ánægð ég er...nú er það bara að klára þetta lokaverkefni og reyna að gera það með stæl...

Þarf að fara að snýta mér...segi því bara bæjó í bili

Hafið það gott

Kveðja Begga

 Posted by Picasa

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hejsan hej
langaði bara að óska þér innilega til hamingju með að vera orðin hj´´ukrunarfræðingur krúsi, þú ert frábær :)
gangi þér vel í kvöld...
knús lísa og ísey

Nafnlaus sagði...

Til lukku krúsí..mín bara orðin hjúkka;)
En áfram Ísland! og áfram þú!:)
Ætla að reyna að koma á leikinn.
Good luck.
knús og kram, Sara Lee

Nafnlaus sagði...

Til hamingju elskan mín...glæsilegt hjá þér :D Ég var nú nokkuð vissum að þú næðir þessu þrátt fyrir að koma heim úr handboltaferð daginn fyrir próf! :)
Vonandi batnar þér fljótt...
Knús frá Beggu sem er á leiðinni til Spánar á morgun..jei :)

Nafnlaus sagði...

Til lukku bekkjasystir... já með okkur öll bara!! Æi, hvað ég skil þig með flensuna. Ég lenti í þessu og var með hita í viku og fékk eyrnabólgu líka svo ég segi bara við þig, farðu nú vel með þig svo þú náir þessu úr þér!!

Kveðja, Erna (enn með hellu í eyrunum)

Nafnlaus sagði...

hæ begga min, innilega til hamingju með hjúkkutitilinn, þu stendur þig alltaf svo vel sæta mín.
bý í Madrid nuna í góðu yfirlæti i 35 stiga hita...ekki leiðinlegt.
hafðu það gott. hlakka til að itta þig í hanboltasaumó næst.
love Matta

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Begga mín...ef ég þarf á hjúkku að halda einhvern daginn vona ég að það geti verið þú :)

knús frá útlöndunum
eivor

Begga sagði...

Hæ lísa og Ísey takk yndislegu fyrir kveðjuna knúsBegga

Hæ sara krúsí takk fyrir kveðjuna og heimta að fara að hitta þig sem fyrst :) luvBegga

HÆ begga mín takk fyrir það :)- góða ferð til spánar og skemmtu þér vel :) (smá öfund hehe) luvja all Begga

Hæ Erna til hamingju sömuleiðis - ótrúlegt en satt þá er þetta nám bara að klárast - ég trúi því varla..hafðu það gott krúsí og vona að hellan fari nú að hverfa :) luvbegga

Hæ matta mín gaman að heyra frá þér :) ooo Spánn er drauma landið mitt - öfunda þig ekkert smá :) hafðu það ofsa gott luvbegga

Hæ Eivor takk fyrir það :) knús til þín og Lúkas æði :) luvbegga