05 maí 2006

Við erum meistarar...


Við erum meistarar, við erum deildarbikarmeistarar...loksins fengum við titil og getum sungið þetta lag án þess að segja samskipameistarar eða eitthvað þvíumlíkt...Þetta var tær snilld í gær, þvílíkur karakter hjá okkur að ná að vinna upp 7 mörk og vinna svo leikinn..váááá hvað var hrikalega gaman...Það á samt að banna þessum fréttamönnum að taka viðtal við mig svona beint eftir leikinn...því eins og Óli sagði við mig þá er eins og ég hafi andað að mér helíum áður en ég fór í viðtalið hehe ég verð svo skræk í röddinni að það er ekki fyndið hehe:)

Áhorfendur voru tær snilld og sambatakurinn sló að sjálfsögðu í gegn eins og alltaf – þið eruð snillingar Baldur og Gestur og allir hinir sem hafa stutt okkur..ÞIÐ ERUÐ FRÁBÆR :)

Fórum svo eftir leikinn uppá kringlukrá þar sem allt liðið og stuðningsmenn voru saman komin og var meistaraflokksráð búið að skreyta allt með rauðum og hvítum blöðrum og borðum útum allt ekkert smá flott...þar reyndu kalli og gústi fyrir sér á trommunum og tóku sig bara vel út hehe þeir geta farið á trommurnar þegar þeir hætta að þjálfa :)
Eftir kránna fórum við til Ágústu þar sem tjúttað var fram eftir nóttu...Geggjaður dagur

En svo er annað kellan er ekki bara að lesa bók sem heitir blekkingaleikur heldur er ég búin að standa í einum slíkum undanfarna daga. Ég semsagt ákvað að ef við myndum ná að vinna ÍBV í tveimur leikjum þá myndi ég skella mér út til Bjarna án þess að hann vissi af sem og ég gerði og þið hefðuð átt að sjá hvernig hann brást við, það var svo hrikalega fyndið, en samt svona had to be there moment :)
Ég verð næstu daga í DK hjá honum Bjarna mínum og vá hvað það á eftir að vera ljúft...

Segi bara bæ í bili
Hafið það gott, kveðja Begga

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með sigurinn Begga mín, ekkert smá flottur leikur hjá ykkur og þið sönnuðu það svo sannarlega að þið eruð lang bestar og að sjálfsögðu þú líka, enginn smá leikir hjá þér. Skemmtu þér vel hjá Bjarna þínum og hafðu það rosa gott, sé þig eftir mánuð.
Koosar og knús frá Grossó

Nafnlaus sagði...

congrats begga mín! alveg meiriháttar hjá ykkur-þvílíkur karakter!!
bið að heilsa bóe og hafið það huggulegt saman í dk!
luv tinni

Nafnlaus sagði...

HÆ Begga og til hamingju með sigurinn :) ekkert smá flottur sigur hjá ykkur :)
hafðu það svo rosa gott í DK og njótið þess að vera saman í 3 daga ;)
kv. Anna

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með titilinn, þið áttuð hann nú skilið :-)

kv. Guðrún Drífa

skuladottir sagði...

Til lukku með titilinn dúllan mín. Frábært hjá ykkur! Við Moli (formaður Míní-líkunnar) vonum að þú hafir það rosa gott í Danaveldinu.
Knús og kossar Dagfred and Molfred.

Nafnlaus sagði...

Sæl skan, innilega til hamingju með titilinn :D alveg frábært ... hefði nú ekkert verið á móti því að landa þessu með ykkur ;)
en njóttu tímans í danaveldi þar sem er nú svo gott veður hjá okkur núna !! ekki leiðinlegt
knús
árný

Nafnlaus sagði...

USs ekkert smá ánægð .....til lykke....heyrðu begga mín þú varst nú mjög góð í viðtalinu...ekki tók ég eftir röddinni e-ð sérstaklega.....wf...skiptir þá bara engu...við erum langbestar....knús og kossar frá spáni hlakka til að hitta ykkur eftir ca mánuð ;)
kv sófý

skuladottir sagði...

Innilega til hamingju með titilinn og frábæra frammistöðu þína Begga mín.. Þú ert ROSALEG...
Knús
Hrabba

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju, auðvitað eruð þið bestar og eigið þetta 100% skilið :) Við hérna í útlöndunum bölvum Ruv þar sem við biðum allan daginn eftir leiknum og svo sýndu þeir bara 10 mín :) Á svona stundum er erfitt að vera ekki á klakanum en sólin og 30°C bæta það svo upp :) sjáumst eftir mánuð

eibba og co

Nafnlaus sagði...

aftur til hamingju essskan! rosa skemmtilegur leikur,það var ekkert smá gaman að koma;) trúi því að bjarna hafi brugðið þegar þú komst, alltaf gaman að gera eitthvað svona óvænt:)hvað ætlaru að vera lengi úti?en ertu búin að skila bjössa?
gerum svo eitthvað skemmtilegt fljótlega;)
knús

Begga sagði...

Hæ hæ skvísur Takk allar fyrir kveðjurnar :) Þetta var snilld... kveðja Begga

Nafnlaus sagði...

Hæ Begga mín :) Ég var fyrst að kíkja inn á síðuna núna...hélt að þú mundir ekki byrja fyrren úti og gleymdi alltaf að kíkja :) Það verður æði að geta fylgst með ykkur úti...
Til hamingju aftur með leikinn..ekkert smá gaman að koma og horfa á ykkur :)
En frábært hjá þér að skella þér óvænt til Bjarna..hann hefur aldeilis verið glaður :D
Hafðu það ofsa gott elskan...knúúús frá Beggu G.

Nafnlaus sagði...

Glæsó hjá ykkur öllum, ég er svo stolt af ykkur......

En Begga, ekki getur þú sagt mér leyniorðið inn á bloggið hennar soffíu??

Hafdís Hinriks.