19 maí 2006

Sól í hjarta

Ég er svo glöð akkurat núna :) ég og Anna vorum að klára áðan að flytja lokaverkefnið okkar og það gekk svona ljómandi vel. Þvílíkt þungu fargi af okkur létt. Ég er ekki beint mikið fyrir það að standa fyrir framan fólk og tala, en svei mér þá stelpan gat þetta :) Ég hélt reyndar fyrst þegar ég var að byrja að hjartað myndi springa það sló svo hratt og ég fann fyrir því í hálsinum hehe.....en bara HÆ HÓ OG JIBBÍ JEI VIÐ ERUM BÚNAR AÐ KYNNA VERKEFNIÐ

Við fórum síðan í sund til að slaka á og fengum okkur að borða á Vegamótum...ummmm ekkert smá gott.

Hef annars frá svo litlu að segja....Kepptum 2 leiki á móti Hollandi í vikunni, unnum einn en töpuðum hinum. Höfum ekki unnið Holland áður þannig að það var frábært að ná að vinna þær eftir að gullarmurinn hennar Jónu skoraði sigurmarkið á lokasekundunum....uss dýrari týpan

Erum að fara svo til Hollands núna á sunnudaginn að keppa 2 leiki aftur á móti Hollandi, hlakka dáldið til að fara loksins í ferð þar sem ég þarf ekki að taka þungar skólabækur með eða glósur til að læra...núna ætla ég bara að taka með mér tölvuna til að horfa á e-a skemmtilega þætti, vúhú :)

Jæja er að fara að hitta hana Lísu mína og yndislegu Ísey krúsí, ætlum að rölta niðrá austurvöll.

Hafið það öll rosalega gott

Beggan kveður að sinni með sól í hjarta :)

 Posted by Picasa

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju !!
Shit hvað er gott að vera búin að þessu og ég held við höfum bara staðið okkur með príði !! Nú verðum við óþolandi eftir þetta og viljum alltaf fá að halda ræðu því við erum orðnar svo sjóaðar... (je right;)
Heyri í þér skvís !!!
p.s. kíktu á www.orlish.blogspot.com komin mynd af okkur að flytja verkefnið :) híhí

Nafnlaus sagði...

meinti orvar.blogspot.com

Nafnlaus sagði...

Hæ begga mín
til hamingju með þetta allt saman....hlakka svo til að sjá þig í sumar...;)
kveðja frá óbærilega hitanum

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með lokaverkefnið ástin mín.
Þinn Bavou

Nafnlaus sagði...

Ég óska þér innilega til hamingju með lokaverkefnið ástin mín. Þú ert búin að standa þig rosalega vel. Hvað er eiginlega að þessum Bavou??? Ertu ekki bara ástin mín?
Kveðja Bjarni

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með áfangan!

Kveðjur frá Sviss
M&Ó