26 maí 2006

Komin heim og enn á lífi :)

Kom heim áðan eftir skemmtilega ferð til Hollands, alltaf gaman að vera með landsliðs-píunum og sérstaklega þegar þungar skólabækur og fartölva voru ekki í eftirdragi. Við kepptum 2 leiki við Holland, töpuðum báðum, en enga að síður góð æfing fyrir leikina á móti Makedóníu. Fyrri leikurinn er núna á Sunnudaginn í höllinni - skyldumæting, seinni leikurinn fer síðan fram í Makedóníu á laugardaginn eftir viku.

Í ferðinni setti Stebbi af stað leik sem heitir morðinginn. Allir leikmenn drógu miða sem á stóð nafn eins leikmanns, sjúkraþjálfara, þjálfara eða liðsstjóra og fyrir neðan var skrifað hvaða morðvopn ætti að nota á viðkomandi leikmann. T.d. var Clausen "drepin" með því að vera klipin í rassinn, Hanna með blautum sokk, Þór með koss á kinnina, Anna Úrsúla með varasalva og Jóna með súkkulaði. Reglurnar eru þannig að maður á að reyna að koma þeim einstakling sem maður fékk á miðanum fyrir kattarnef án þess að nokkurt vitni verði að glæpnum...hehe þannig að það var sjaldan sem einhver var ein í þessari ferð, maður límdi sig alltaf við einhverja 2 aðra svo að maður væri nú örugglega save. Ég er semsagt ennþá lifandi ótrúlegt en satt hehe já ég kem á óvart...solla, viðar og guðbjörg eru einnig eftir og ég segi bara PASSIÐ YKKUR múhahahahahaha :)

Kláraði að lesa bókina blekkingaleik eftir Dan Brown (sá sami og skrifaði Da Vinci lykilinn) í ferðinni og mæli með henni, ég var ótrúlega spennt allan tímann.

Erum að fara á morgun á fullkomið brúkaup og ég hlakka mikið til, það er langt síðan ég hef farið í leikhús og ætlum við valspíur að gera okkur glaðan dag og fara saman. Hef ekki heyrt neitt nema jákvætt um þetta leikrit, það á víst að vera alveg rosalega fyndið og skemmtilegt, allavega sagði Sara mér það, ég get allavega ekki beðið.
Síðan á laugardaginn ætlar Silla mín og Stebbi að halda innflutningspartý það verður örugglega æðislega gaman :) þau eiga ótrúlega flotta íbúð í hvarfahverfinu, alveg ótrúlega vel byggð blokk hehe (pabbi kom ekkert nálægt því) og líka svona
vel þrifin hahaha :)

Þessi mynd er af mér, Sillu og Örnu á HSÍ hófinu...ég virðist ekki geta bloggað nema þegar ég geri það gegnum myndasíðuna mína Picasa - díses afhverju ekki?? Þið verðið þá bara að sætta ykkur við blogg með mynd hér eftir !!

jæja nenni ekki að bulla meira...Gangi þér vel á morgun að keppa Bjarni minn-knús til DK
Hafið það gott
KveðjaBegga

 Posted by Picasa

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

velkomin heim aftur sæta!

oh gaman hjá ykkur að vera að fara í leikhús í kvöld..sko játs, mér fannst þetta brilliant leikrit..við hlógum allavega stanslaust..mega fyndið.ég fór á það á akureyri.
en skemmtu þér vel í kvöld og heyrumst á morgun. er að fara í sjúkrapróf á morgun..
svo ætla ég örugglega að koma á leikinn á sun;)
knús

Nafnlaus sagði...

Hvernig væri að setja link á myndasíðuna þína?

Nafnlaus sagði...

Ég er sko anonymous... kann ekki alveg á þetta. Hafrún

Begga sagði...

Hæ sara..gangi þér ofsa vel í prófinu á morgun ég sendi þér strauma :)knúsBegga

Hæ hafrún :) ég er að vinna í myndasíðunni minni og set inn link um leið og hún er orðin klár ;) kv.Begga