28 júlí 2006

Allt komið í eðlilegan farveg

Hæ hó, hvað segiði gott. Allt fínt að frétta af okkur, ég er byrjuð að æfa á fullu og það er rosa fínt, gott að vera aftur komin með smá rútínu yfir daginn, ég er náttúrulega búin að vera í fríi í 3 vikur, þar sem ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af neinu, ekki mæta neitt, fór að æfa þegar mig langaði, stillti t.d. ekki vekjaraklukku einu sinni þessar þrjár vikur :) ljúft en samt fínt að vera aftur komin í eðlilega rútínu :)
Stelpurnar í liðinu eru rosa fínar, allar mjög næs - sakna nú samt valsstelpnanna minna ofsa mikið, kemur sko ekkert í staðin fyrir ykkur :) Við erum búnar að spila einn æfingaleik á móti Ikast og við unnum með einu marki 26 - 27. Ég spilaði 30 mín og gekk sæmilega - alveg allt í lagi byrjun, það tekur auðvitað smá tíma að venjast að spila með öðrum stelpum, læra inná þær og læra inná hvernig handboltinn er hérna, en það hlýtur að koma.
Æfingarnar eru mjög fínar, erum alltaf með bolta bara allskonar æfingar með þá. Um helgina er æfingahelgi 4 æfingar á 2 dögum - það verður spennandi að sjá hvernig kroppurinn verður eftir það :) en Bjarni hlýtur nú að taka fram nuddolínu og redda þreyttum vöðvum hjá kellunni.
Í dag var meira að segja fótbolti, ég held bara að við ( valsstelpur) myndum smóka liðið mitt í fússara, sambataktarnir okkar ussss say no more :) Reyndar eru 2 í liðinu sem eru ótrúlega góðar, bara sóla mann og annan þegar þeim sýnist en við erum nú með nokkrar þannig heima Habba kriss er þekkt fyrir góða takta og svo auðvitað Gulltáin klikkar seint :) Heyrðu ég setti meira segja eitt mark í dag, við ungar ( Já ég er ennþá ung ég held ég verði eilífðar-ung en það er nú kannski í lagi) unnum eldri 5 - 3 held ég og kellan með eitt vúhú
Annars mest lítið að frétta, það var einhver hjólreiðakeppni hérna í Silkeborg í gær þar sem sigurvegarinn í Tour de France átti að koma, en kom ekki vegna lyfjahneikslisins - reyndar er ekki komið útúr B sýninu hjá honum (saklaus þangað til sekt er sönnuð) en usss ekki gott þegar þessir strákar eru að dæla í sig sterum eða einhverjum fjanda.
Ég er að vinna í myndaalbúminu Soffía skvís - stundum þegar maður hefur of mikinn tíma þá einhvern veginn verður manni aldrei neitt úr verki.
Svo koma elsku yndislegu mamma og pabbi á þriðjudaginn og það verður æðislegt.
Hafið það gott öll sömul
LuvBerglind

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ! vildi bara kvitta fyrir mig. Frábært hvað þú ert dugleg að blogga.
Saknaðarkveðjur frá Íslandinu kalda.