13 júlí 2006

Silkeborg


Já er ekki kominn tími til að skrifa smá pistill um bæinn sem við búum í, ég veit nú ekkert svaka mikið um Silkeborg en það hlýtur að koma smátt og smátt, ég læt allavega það sem ég veit flakka.
Fyrst af öllu þá er Silkeborg ca á miðju Jótlandi rétt hjá Århus. Það tekur um 3 klst að keyra til Köben og 3.30 í lest ca. Það er líka hægt að fljúga til Billund frá Íslandi og þá tekur um klst að komast til okkar frá Billund þ.e.a.s. en örugglega 3 tíma ca að fljúga til Billund.
Það búa um 50.000 manns ca í Silkeborg og finnst mér það ágætt stærð á bæ til að búa í, fann það bara þegar ég fór til Köben um daginn að svona "stórborgir" eru ekki alveg fyrir mig, held ég. Skógurinn sem umlykur Silkeborg er sá stærsti í Danmörku, þannig að umhverfið kringum Silkeborg er mjög fallegt og sérstakt.
Himmelbjerget eða frægasta "fjall" (alveg heilir 147 metrar) Danmerkur er hérna rétt hjá og maður kemst þangað á bíl, hjóli, gangandi eða með bát sem heitir Hjejlen en hann er frá árinu 1861. Höfnin hérna í Silkeborg er rétt hjá okkur Bjarna, það tekur ca. 7 - 10 mín að ganga þangað og þar er mjög fallegt og nóg af lífi, sérstaklega núna á sumrin en þá eru útikaffihús þar. Við fórum í bátsferð á vatninu sem umlykur Silkeborg og það er voða gaman því flottustu húsin hérna liggja einmitt við vatnið, einhver kall hérna sagði okkur að húsin við vatnið kostuðu allt að 140 milljónir takk fyrir túkall
Um 3 km frá íbúðinni okkar er Ströndin Almindso, þar er voða næs að vera, nóg af fólki og gott að kæla sig í vatninu.
Það er líka rosa flottur golfvöllur hérna rétt hjá 6,5 km nákvæmlega :) Ég hef farið þangað 1x með Bjarna, ég spila ekki golf en Bjarni er sjúkur í golf, hefði ekki trúað því að einn maður gæti verið jafn forfallinn golfsjúklingur og hann er - hann bara titrar ef hann fer ekki í gólf allavega annanhvern dag myndi ég segja - þetta er fíknin hans. Þannig að endilega takið golfkylfurnar ykkar með og Bjarni pínir sig í golf með ykkur :)
Ok svo þið áttið ykkur á staðsetningunni minni hérna þá búum við rétt hjá lestarstöðinni, það tekur 2 mín að ganga þangað, það tekur ca 8 - 10 mín að ganga niðrá göngugötu, 10 mín að ganga í ræktina, 6 mín í næsta bakarí, búð og pylsuvagninn, 7 - 10 mín niðrá höfn, það eru 3 km á æfingasvæðið hans Bjarna, en æfingasvæðið þeirra er ekki á sama stað og leikvangurinn þeirra en hann er nær okkur, æfingasvæðið mitt er hins vegar í 42 km fjarlægð og ég hef ekki hugsað mér að labba þangað hehe :) en það tekur ca 30 - 40 mín að keyra þangað fer eftir umferð.
Það er sérstök síða til á netinu sem segir afhverju göturnar hérna í Silkeborg heita það sem þær heita, Gatan sem við búum í heitir eftir einhverjum gaur sem er sagður vera upphafsmaður/stofnandi Silkeborgar!!! Gatan er 1072m löng hehe mikilvægar upplýsingar og varð til árið 1871. Já rosa merkileg gata :)
Það er líka nóg skemmtilegt hérna í kring, t.d. Legoland í Billund http://www.legoland.dk/, tekur ca klst að keyra þangað og svo tívolíið í Århushttp://www.friheden.dk/, tekur 45 mín að keyra þangað og svo er svona vatnsrennibrauta og tívolí garður aðeins lengra en Århus sem heitir Djurs sommerland http://www.djurssommerland.dk/2005/Default.asp?PageID=800&Country=DK. Jebb nóg hægt að gera :)
Hérna eru 2 síður sem segja frá því helsta hér í Silkeborg http://www.silkeborg.dk/ og http://www.silkeborg.com/sw153.asp.
Það er auðvitað líka hægt að gera ýmislegt menningarlegt hérna t.d. fara í ýmis konar söfn, leikhús, bíó og fleira og alltaf hægt að fá sér leiðsögumann.
jæja nóg í bili
hafið það gott dúllurnar mínar
luvBerglind

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Held maður þurfi bara engan leiðsögumenn ef maður hefur bara þig með í för!! Gott að allt gengur vel hjá ykkur og maður öfundar ykkur bara ekkert af veðrinu ;) Vertu svo bara dugleg að blogga svo maður geti fylgst með þér og sakni þín ekki eins mikið...
Kv. Lilja

Nafnlaus sagði...

Hæhæ, Svanhvít hérna, var nú bara að pæla í því hvort þú hafir verið með klukkuna uppi við þegar þetta var skrifað;) Ert alveg ágætist efni í leiðsögumann:)

Kveðja úr Eikjuvoginum

Begga sagði...

Hæ Lilja mín, ég reyni að henda einhverju inn á bloggið mitt :) Hafðu það súper gott skvísan mín luvBegga

Hæ Svanhvít ég var nánast á skeiðklukkunni :) hehe knúsBegga