10 júlí 2006

Köben,christiania,HM

Helgin var rosa fín hjá okkur, við brunuðum til Köben á laugardaginn en það tekur ca 3 klst að keyra frá Silkeborg til Köben. Við byrjuðum á því að fara á Bröndby - AIK en Bjarni fór á leikinn fyrir Valsmenn til að skoða Bröndby en Valur er að fara að keppa á móti þeim núna á miðvikudaginn. Get ekki sagt að það hafi verið skemmtilegur leikur. Þetta var eingöngu æfingaleikur en samt voru rúmlega þúsund manns mættir til að horfa á, það kostaði inn og allt, aðeins öðruvísi en heima!! Völlurinn er hins vegar rosa flottur, stúka allann hringinn og örugglega geðveik stemming sem myndast þarna þegar nóg er af áhorfendum.
Eftir hann brunuðum við á hótelið okkar sem var alveg down town mjög fínt hótel. Við fórum út að borða á Hard Rock og röltum síðan strikið til að finna okkur pöbb til að horfa á leikinn um þriðja sætið á HM. Kvöldið fór síðan bara í að rölta um og hafa það huggulegt. Hótelið okkar var ekki langt frá Istedgade þannig að við ákváðum að ganga þar í gegnum á leiðinni heim...þetta er nú frekar subbó get ekki sagt annað.
Daginn eftir ákváðum við að skoða Christianju. Það er alltaf upplifun að fara þangað, Bjarni hafði aldrei farið þarna og hann skildi ekki hvernig fólk gat búið í sumum af þessum húsum. Eins og t.d. þetta,

"húsið" er ekki meira en 6 fermetrar en samt með svölum og gervihnattadisk:) en meðan fólki líður vel þá held ég það skipti nú ekki máli hvernig húsið manns er. En ég held samt sem áður að ef maður er í þessum fíling eins og fólkið þarna þá sé þetta rosa fínn staður til að vera á, en hvað veit ég svo sem.

Get síðan ekki hætt að blogga án þess að minnast á hann Zidane, hvað var hann eiginlega að spá þegar hann skallaði Materazzi, mér er alveg sama hvað gaurinn hefur sagt við hann, hann tekur sig ekki til í sínum síðasta leik og hvað þá úrslitaleik á HM að skalla bara einhvern gaur. Ég bara átti ekki til orð. Svo kom hann ekki einu sinni til að taka á móti verðlaununum með félögum sínum. Mjög spes. En þar sem ég er svo forvitin þá væri ég nú samt alveg til í að vita hvað Materazzi sagði sem var svona rosalegt að hann verðskuldaði skalla frá Zidane, það hlýtur að hafa verið eitthvað hræðilegt fyrst hann var tilbúinn að hætta á það að fá rautt spjald - en auðvitað hlýtur þetta að hafa verið stundabrjálæði en mér er sama - hann ætti að vera komin með smá reynslu eftir öll þessi ár í boltanum til að geta höndlað smá bögg.

Síðan var einhver íslensk gella sem er búsett hérna í DK sem gerði sér lítið fyrir og hösslaði Robbie Williams...og Robbie átti víst að hafa sagt á tónleikunum á fimmtudaginn við 47.000 manns, að þessi rauðhærða sem hann hitti á barnum væri rosa sæt - og átti þá víst við íslensku gelluna. Það kom rosa stór mynd af henni hérna í einu dönsku blaði, hún átti að hafa sagt að hún og Robbie hefðu talað um allt milli himins og jarðar og meira að segja brúðkaup :) Já ég veit ég er bara öfundsjúk hehe

Hafið það gott luvBerglind

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

díses... Ég hélt að Robbie væri að bíða eftir mér!

Nafnlaus sagði...

Vá en gaman hjá ykkur..í köben og fullt af sól og góðu veðri.Ég þarf að drífa mig bráðum aftur til köben að heimsækja vini mína og þig líka:)
En já sammála með Zidane, shit hvað þetta var leiðinlegt að sjá þetta, skil ekki hvað hann var að spá..samt kannski pínu skiljanlegt ef gaurinn var kannski búinn að vera segja fullt leiðinlegt við hann og klípa hann og fl. Oh missy forvita vill fá að vita hvað gerðist.Getum við ekki komist að því?hehe.
Já og dísús, hvað var Robbie að spá, hann er minn.
Bíddu, fóruð þið á tónleikana eða..ni..
Oh geturu ekki sýnt mér þessa gellu sem hann var með, nú er ég fotvitin að vita hver hún er. Er ekki hægt að finna þetta á netinu?;)
Anyways, gott að heyra að þú hafir það gott úti.
Knús og kram, þín sarasta

Nafnlaus sagði...

Gaman að fylgjast með þér Begga boltahjúkkan mín! Hafðu það bara áfram gott í sólinni. Ég er í fríi og bara grenja í yfirvaldinu um betra veður, en ekkert gengur!!

Knús,
Erna

Begga sagði...

Ég skil bara ekkert í honum Robbie fyrst þegar talað var um íslenska gellu var ég viss um það væri verið að tala um þig Hafrún :) knúsBegga

Hæ hæ Sara skvís já kemur á óvart ég forvitin hehe :)en myndin af stelpunni birtist í Extra bladet að mig minnir veit ekki hvort það er hægt að nálgast það á netinu? Við fórum ekki á tónleikana þetta stóð í blaðinu...KnúsBerglind

Hæ Erna pæ hafðu það nú rosa gott í fríinu þínu og ég er viss um að sólin fer að skína :) ef ekki komdu þá bara til mín :) knúsBegga