Hæ ég komst til himna eða svona næstum því :) fórum til Þýskalands um daginn í svona verslun sem selur fullt af ódýrum drykkjum og þess háttar og þar fann ég líka tyggjó, vááá hvað ég var glöð og keypi mér fullt en samt ekki nóg. Núna ligg ég uppí sófa á kvöldin með nóg af gummi - sæl og glöð. Keyptum líka ótrúlega mikið af drykkjum :) hehe heila 24 kassa af sódavatni, faxe, pepsi, 7up, appelsín, pepsi max :) Hvað haldið þið svo að þetta hafi kostað??
Annars bara sama blíðan - nennum ekki að tala meira um það.
Fyrsta matarboðið okkar í kvöld - ekkert formlegt en vonum samt að það sem við bjóðum upp á verði OK.
Fór í spinning um daginn, þetta er voða pró maður þarf sérstaka spinning skó sem maður leigir, flestir sem stunda þessa tíma eiga samt svona skó þeir eru seldir á 5000 kr og uppúr - held ég láti mér nægja að leigja þá. Ég er voða ánægð með spinning tímana hér fíla þá bara nokkuð vel þetta eru svona interval tímar, ekki bara keyra hratt út þetta lag eins og tímarnir heima eru svoldið oft...
Bjarni spilaði sinn fyrsta leik í gær á móti Esjberg þeir töpuðu 2-1 eftir að hafa komist 1-0 yfir - frekar fúlt. Ég fór ekki að horfa á því það tekur alveg rúma 2 tíma að keyra þangað og kellan er ekki sú öruggasta í að rata.
Annars bara lifið heil, hafið það gott
Hlakka til að heyra í ykkur
luvBerglind

7 ummæli:
Jæja Begga bjútí, sé þú ert strax farin að svindla og bera á þig fullt af brúnkukremi fyrir myndatökur!!
Ertu byrjuð að æfa? En leita að vinnu? Ertu búin að opna sjoppu?? Á meðan þú snakkar dönsku berjumst við Frónarar við máva og kríur. Fór í Húsdýra- og fjölskyldugarðinn um daginn og ég dauðsá eftir að hafa ekki farið í Ninjabúningnum mínum og tækla þessa fugla.
Men jeg tænker ad jeg skulle nu holde kjæft og syng med :)
Hafðu það rosalega gott og taktu 10 armbeygjur fyrir mig, þá þarf ég þess ekki (efast um að ég næði 2)
hulda the hag
Hæ hæ Hulda babe :) Ég er ekki byrjuð að æfa með liðinu byrja ekki fyrr en á mánudaginn en kvíði dáldið mikið fyrir því. Ég ætla að sækja um vinnu bráðlega (liðið ætlar að hjálpa mér með það )og byrja e-n tíma í október ca. en það á eftir að koma betur í ljós. Hehehe ég er ekki búin að opna sjoppu :) en á nóg af dóti til að gera það - góð hugmynd ég gæti kannski farið útí sjoppubransann og opnað alvöru íslenska sjoppu það vantar doldið hér ;) Ég er að vinna í armbeygjunum tek 1 á 10 mín fresti maður má nú ekki reyna of mikið á sig ;)hérna í hitanum gæti fengið aðsvif... knús og kram luvBerglind
Hæ skvíz, var að spá hvort þú værir komin með danskt númer, það var einhver að spyrja mig að því!! Nennirðu kannski að senda mér sms með númerinu þínu ef þú átt soleis nýtt :) Við vorum annars að byrja að æfa í gær. Það var "létt" æfing - sprettir og bláu boltarnir og skemmtilegheit og svo verður byrjað af alvöru eftir helgi!! Og þá að sjálfsögðu eitt kúper strax á mánudag, gleði gleði :) kv. Lilja
HÆ lilja pæ, já létt æfing segirðu :) hehe þekki Gústa og hans léttu æfingar...einmitt...þessi blessuðu kúper test geta nú gert mann gráhærðan haaaa..Ég er ekki komin með fast dansk númer en er með gamla númerið hans Bjarna ég sendi þér það og síðan skal ég senda þér nýja númerið mitt um leið og ég fæ svoleiðis :) hafðu það gott og góða skemmtun í gleðinni sem er framundan ;) knúsBegga
eru að koma harðindi í danmörku? Af hverju að byrgja sig svona upp af gosi og tyggjói?
fyrst þið keyptuð svona mikið þá hefur þetta ekki kostað mikið myndi ég halda.
go Begga tyggjó
Þetta hefur kostað 500 danskar. Tekur þig vel út ofan á ölinu - er þetta hvítvín efst? ;) Þú ert orðin alveg slatta brún, ég er svona líkari veggnum :þ
Hæ hæ Anna pæ nei held nú að það séu engin harðindi að koma EN allur er varinn góður...við allavega lifum þá lengst :)knús sæta
Hæ Eygló sæta, þetta er hvítvín efst bíður þín skvísí á meira en nóg ;) Já ég verð nú að fá smá lit hérna í góða veðrinu...Hafðu það gott sæta mín luvBegga
Skrifa ummæli