Þið segið það!!! Já það er ekki mikið búið að gerast síðan ég skrifaði síðast, það markverðasta er líklega það að ég keyrði næstum á mink áðan. Gerði einmitt það sem ég átti ekki að gera og sveigði aðeins yfir á hina akreinina sem betur fer var enginn bíll þar. Maður á víst bara að bruna yfir þessi grey, ekki bremsa, ekki beygja, bara keyra.
Haustið er eiginlega komið hingað myndi ég segja. Ég er reyndar soddan kuldaskræfa að kannski er ekki að marka mig. Bjarna finnst ekkert kalt úti, en ég fór í vetrarúlpuna mína í gær.
Helgin verður bara róleg hjá okkur hjúum, leikur á sun hjá Bjarna. Þeir gerðu einmitt jafntefli í gær á móti Bröndby, gríðalega mikilvægt stig þar.
Bráðum koma svo gestir til okkar en 2 félagar hans Bjarna ætla að koma hingað. Það verður eflaust hrikalega skemmtilegt enda dæmalaust hressir gaurar þar á ferð.
Ég vona nú að ég skrifi eitthvað mun áhugaverðara og skemmtilegra næst :)

3 ummæli:
Já maður verður að passa sig á þessum minnkum :S Bara bruna yfir þá, kemur kannski smá splass á bílinn en þú getur látið Bjarna þrífa það þegar þú kemur heim :) hehe
Hæ engill! Hér á klakanum er orðið ansi kalt, en fallegt haustveður samt.. alveg að koma tími á húfu, vettlinga og trefil.
Hafið það gott og í guðanna bænum passið ykkur á minkunum..
Love
Hæ Anna já þessi minnkar eru stórhættulegir enda liggja þeir eins og hráviði hérna við vegina...haha já læt hann bjarna minn þrífa upp ógeðið :) knús og kossar Begga
Hæ yndið mitt :) Já það fer að koma svoleiðis veður hérna líka allavega fyrir svona kuldaskræfur eins og mig :) Hafðu það gott og knúsar til ykkar beggja luvja Berglind
Skrifa ummæli