Ég veit ekki hvort ég sé svona svakalega spennt en ég er allavega vöknuð fyrir allar aldir þrátt fyrir að hafa vaknað ótrúlega snemma í gær og verið að allann daginn í köben. Átti hreint út sagt
frábæran dag í gær, hitti Árný og Ingibjörgu í lestinni í gær og af
stað héldum við til köben til að hitta þær Lísu og Ísey :) JIII það var svo gaman að hitta þær. Ísey orðin svo stór og alltaf jafn mikil rúsína. Dagurinn var frábær, við fengum okkur að borða á frábærum samlokustað, röltum strikið, settumst á kaffihús og fengum okkur köku,kaffi og smoothís. Fórum að sjálfsögðu aðeins í HM :)En ekki nóg með það að ég hafi hitt þær allar en þá komu mínar yndislegu frænkur alla leið frá Íslandinu í heimsókn til okkar. Ég náði í þær útá Kastrup og svo var bara brunað beint á strikið og það má segja að þær hafi farið hamförum þar :) Þær stóðu sig með eindæmum vel og þurftu sko enga hjálp frá mér :)
Við frænkurnar vorum síðan orðnar ansi lúnar eftir annasaman dag og enduðum þetta á Hard Rock fengum okkur að borða og svo beint í lestina til Skandeborgar.
FRÁBÆR DAGUR, takk Árný, Ingibjörg, Lísa og Ísey fyrir frábæran hitting og helgin er sko ekki búin hjá okkur frænkum og ég veit að hún á eftir að vera æðisleg.
Myndir frá Helginni koma seinna, skiljanlega þar sem hún er ekki búin hehehe:)
Begga 25 ára beib kveður
Hafið það gott
luv
17 ummæli:
Hæ hæ elsku Begga
Það mætti halda að þú værir með ungabarn þú vaknar alltaf svo snemma ;) híhí
En HJARTANLEGA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN. Mér finnst ég svo ung miðað við þig ;) hehehehehe
Hafðu það rosa gott í dag og láttu Bjarna dekra við þig !!!
luv frá Norge
Anna og Kári
Til hamingju með afmælið elsku Begga bjútíbollan okkar!! Megirðu eiga rooooooooosalega góðan dag og borðaðu eins og górilla og ropaðu eins og hvalur og dansaðu eins og pabbi þinn á diskótímabilinu :)
kv
Hulda frænka
Til hamingju með daginn elsku Begga mín, njóttu dagsins og áranna fram að 30, því þá á víst allt að fara niður á við :)
Kossar og knús frá Grossó
Elsku fallega vinkona! Hjartanlega til hamingju með afmælið! Takk fyrir fallegt bréf (las það í gærkvöldi þegar ég kom heim).. ég svara þér seinna í dag.
Oh en gaman að fá alla þessa gesti! Hafðu það alveg hrikalega gott í dag! Við söknum þín mikið!
Knús,
Til hamingju með daginn elsku Berglind mín:) Vona að þú eigir frábæran dag og hafir það gott..sé þig svo kannski næst í Dene:) mikið knús og mikið kram...luv Marín
Hæ hæ elsku systir
Til hamingju með daginn. Reyndi að hringja áðan en þið voruð ekki heima, örugglega verið að fylgja frænkunum í búðir. Ég held þær ætli að taka þetta með þvílíku trompi. Eigðu nú góðan dag láttu nú Bjarna,Andreu og Rakel stjana við þig. Ætlið þið ekki að baka eitthvað? Æ skemmtið ykkur allavega vel væri alveg til í að vera þarna með ykkur.
Elsku Berglind eigðu yndislegan dag, njóttu hans vel, láttu stjana við þig,vertu prinsessa einn dag og það er ekkert hræðilegt að verða þrítug hvað þá fertug það eru frábærir tímar framundan hjá þér njóttu þess. Þín eina sanna systir Elín Rós
Biggi, Elma og Helga senda kossa og knús og hamingjuóskir með daginn.
Kveðja
Til hamingju með afmælið sætust:o* (og ein kynþokkafyllsta íþróttakona Íslands skv. helgarblaði DV, og eins og allir vita lýgur það sko ekki! ;oþ en það gerir það nú reyndar ekki í þínu tilviki, átt sko alveg skilið að vera á listanum;o))
Hafðu það rosa gott, knúúúúúús og kossar;o*
Til hamingju með daginn sæta mín :)Vonandi áttu hefurðu átt frábæran dag. Knús og kossar, Guðbjörg Guðm.
elsku vinkona, innilega til lukku með daginn!
twentyfive er ekkert slor skal ég segja þér!
ástarkveðja frá paris, tinna+bjarni+gullmolinn!
Já Anna það mætti sko halda að ég væri með ungabarn :) mamma segir að þetta sé sökum hækkandi aldurs - ég er nú ekki alveg tilbúin að taka í það :)Takk fyrir kveðjuna hafið það súper gott í Norge skvís og knúsaðu nú Kára bjútí frá mér luvBegga
hehehe Hulda ég á e-d erfitt með að ímynda mér pabba :) en takk æðislega ég borðaði sko eins og górilla en ekki alveg við hæfi að láta hvalaropið gossa á veitingahúsi :)knús og kossar til ykkar allra luvBerglind
Takk elsku Elfa mín...knúsar til Grossó
Takk yndislega Eva María mín ég sakna ykkar mikið, sendi þúsund kossa og fullt af knúsum til ykkar luvBerglind
Já elsku Marín mín það væri nú frábært að undirbúa einn hitting í Dene :) Væri frábært að fá að hitta þig krúsí, Takk fyrir kveðjuna hafðu það gott sæta, knúsar til ykkar luvBerglind
Takk elsku besta systir í heimi, stúlkunum finnst ekki leiðinlegt að rölta í búðir og bíða spenntar eftir Århus á morgun ég er farin að hafa áhyggjur að þær geti ekki lyft töskunum inní lestina haha, en dagurinn var góður í gær :) Knúsar á ykkur öll heima hafið það súper gott og takk alveg æðislega fyrir mig elska ykkur luvBerglind
hahaha nei Bjarney DV lýgur aldrei :)Takk skvísan mín, hafðu það gott krúsí lotofluve Begga
Takk elsku Guðbjörg mín :) Dagurinn var mjög fínn :) Hafðu það gott skvísí luvBegga
Takk elsku sæta Tinna mín, nei það að vera 25 er sko alvöru :) Bið að heilsa Bjarna þínum og auðvitað gullmolanum, hafið það yndislegt luvBegga
Elsku Begga mín... til hamingju með afmælið í gær :) Þú ferð alveg að ná mér!!
Kveðja,
Erna ERnurse
Til hamingju með afmælið elskan mín, vonandi áttir þú góðann dag. Og takk sömuleiðis fyrir skemmtilegann dag í köben.... var einmitt að koma heim rosa góð helgi.
Heyri í þér fljótlega
kv
árný
Innilega til hamingju með daginn elsku sæti bólfélaginn minn ;) Vona að þú hafir átt yndislegan afmælisdag :) Knús frá Ágústu og Sindra Degi
Hæhæ
Til hamingju með afmælið:)
Kveðja
Svanhvít Helga
Ógeðslega mikið til hamingju aftur með big 25 afmælið elsku bestasta Berglind mín:) Gott að heyra aðeins í þér og gott að þú áttir góðan dag. Miss you!
Ég hringi í þig á miðvikudaginn hon!
Hafðu það best, þín sassajohns
Takk Árný mín :) frábært að helgin hafi heppnast vel hjá ykkur skvísum :) knús Begga
Hæ elsku sætu Ágústa og Sindri Dagur :) Takk kærlega fyrir ég átti mjög góðan afmælisdag :) knúsarBegga
Hæ Svanhvít og takk kærlega :)kveðjaBegga
Takk elsku besta Sara mín :) Já átti góðan dag, hlakka til að heyra í þér sæta mín, knús og kossar Berglind
Skrifa ummæli