10 október 2006

milli svefns og vöku

Hafið þið lent í því að leggja ykkur og eftir einhvern tíma teljið þið að þið séuð vöknuð... en raunin er að maður er bara ekkert vaknaður heldur svona á milli svefns og vöku, maður veit hvar maður er, heyrir kannski í umhverfishljóðum í kringum sig EN getur sig hvergi hreyft og ekki vaknað almennilega....úfff lenti í þessu áðan og þetta er svo óþægilegt, ég fann alveg hvernig hjartað fór á þúsund og ég fór að anda hraðar og ég hugsaði meira að segja róleg, slakaðu á þú vaknar eftir smá stund. Ég reyndi að hreyfa hendurnar, fæturnar, reyndi meira að segja að láta mig detta fram úr sófanum EN nei nei ég var bara lömuð....en sem betur fer vaknaði ég, sko svona alvöru vakandi, stuttu seinna...Þetta er ótrúlega skrítið og ekki fyrsta skipti sem ég lendi í þessu furðulegt
Styttist óðum í köbenferð, frænkuheimsókn og að kellan verði árinu eldri...já aldeilis spennandi tímar framundan. Fékk einmitt afmælispakka sendan frá m&p og mamma er spenntari en ég, spurði strax ertu búin að opna hann...ég ætla nú að reyna að þrauka fram að afmælisdeginum og opna hann þá :)
jæja þangað til næst
Hafið það gott öll sömul
luvBegga

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta! Þú veist nú hvað við kellingarnarí ættinni getum verið taugaveiklaðar og ég á metið held ég en svona í alvöru hefurðu verið athuguð fyrir flogaveiki? Ég er ekki að grínast, þetta minnir dálítið á flogaköst. Annars er bara allt gott að frétta, kisurnar ofdekraðar, MJJ í uppreisn og gelgjurnar skilja ekki hvað móðir þeirra getur verið ósanngjörn, hef greinilega aldrei verið unglingur, hafðu það sem allra best og njóttu lífsins extra mikið þann 14.okt :)
kv
Hulda frænka

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta...nei hef aldrei lent í svona...hljómar furðulega..
En hvað mamma þín og pabbi eru sæt að vera búin að senda þér gjöf..:)
Hafðu það gott dúllan mín..knús frá Beggu G

Begga sagði...

Já ég get verið stressuð yfir ótrúlegustu hlutum, Bjarni furðar sig á hverjum degi hvernig ég geti nú verið stressuð yfir þessu sem kannski, hugsanlega, mögulega gæti einhvern tíma gerst :) hehe...hef ekki tekkað á flogaveiki en læt sko gera það næst, það er nefnilega ókeypis að fara til læknis hérna í Danmörku og maður verður að láta tékka sig bak og fyrir á meðan :) Kisurnar ykkar eru náttla æði :)Takk elsku Hulda mín ég reyni að láta dekra við mig þann 14. knús og kossar Berglind

Hæ skvísan mín, já m&p hugsa sko fyrir litlu dúllunni sinni :) Hafðu það súper gott skvís luvBegga

Nafnlaus sagði...

hæ snúlla, átti að skila til þín að mamma og mamma þín fengu oft svona "köst" og þá lærði mamma að reyna að byrja á því að hreyfa tærnar og þá kemur restin, mamma biður voða vel að heilsa og er rosalega stolt af þér :)
kv
HM

Begga sagði...

Takk elsku Hulda og Elín fyrir þetta :) ég prufa það næst...skilaðu kveðju til Elínar frá mér og segðu við hana frá mér: Góða ferð til Spánar og njótið nú lífsins í góða veðrinu þar :) knús og kossar Berglind

Nafnlaus sagði...

Þú vaknar í draumsvefni þ.e. svefnstigið sem við dreymum í. Þegar við dreymum þá lömumst við. Semsagt við lömumst á hverri nóttu. Ástæðan fyrir því að við lömumst er sú að ef við myndum ekki gera það myndum við "leika" drauminn okkar og vera út um allt. yfirleitt vöknum við á svefnstigi 1 (held ég alveg örugglega) Ef við vöknum í draumsvefni þá getum við okkur ekki hreyft.