08 október 2006

Haustið komið

eða svona eiginlega, það varð bara kalt 1,2 og bingó. Maður verður bara að taka því, enda sumarið búið að vera frábært og einhvern tíma varð haustið að koma....
en að öðru við spiluðum á móti Slagelse DT á föstudaginn. Anja Andersen þjálfar slagelse og er þetta lið stjörnum prítt. Við töpuðum 30 - 22, þetta var svona OK leikur hjá okkur, aðeins of mikið að tæknifeilum sem er afar slæmt að gera á móti jafn sterku liði og Slagelse. Gellurnar í slagelse byrjuðu frá fyrstu mínútu að skora fyrir aftan bak, gera sirkus mark og markmaðurinn hjá þeim "toppaði" þetta með því að standa á haus í víti...já og það gerði hún á 10 mín eða eitthvað....ÆJJJJ mér fannst tímasetningin frekar skrítin, en Hrabba skoraði úr vítinu, ég hefði nú örugglega bara frosið og skotið beint í markmanninn, kannski að maður ætti að fara að æfa þetta - hlýtur að vera svaka sniðugt fyrst besti markmaður í heimi gerir þetta !!!!! held samt ekki fimleikar hafa aldrei verið mín sterka hlið...
Ég fékk að spila í leiknum og það alveg slatta einhverjar 40 mín held ég, ég stóð mig OK, en þetta er allavega byrjunin, svo er það bara þolinmæði...
Við komum síðan seint heim eftir leikinn þannig að ég fékk að gista hjá Hröbbu í nýja flotta húsinu þeirra, ekkert smá glæsilegt. Við höfðum það síðan kósí á laugardaginn, Hrabba bakaði skonsur, fórum í Bazar vest sem er svona markaður með allskonar dóti og geðveikum ávaxtamarkaði og síðan var ég tekin í kennslustund í fótboltaspili usss, Viktoría og Hrabba rúlluðu mér upp.
Ég hef nú ekki góðar minningar af svona fótboltaspili (þetta er svona spil með köllum á stöng æjjj þið vitið svona handföng sem maður snýr köllunum í hringi!!) einu sinni fórum, ég, Elfa, Anna, Kolla og Árný niðrí bæ og á einhvern skemmtistað og einmitt í svona fótboltaspil og við byrjum að spila á móti einhverjum gaurum og leggjum einn bjór undir, að lokum vorum við semsagt búnar að tapa nokkrum sinnum og ákváðum að borga þeim einn (eða Elfa gerði það nú) og síðan bara koma okkur út....EN NEI NEI gaurinn hélt nú ekki, reif í mig alveg brjálaður og sagði að ég/við skulduðum þeim fleiri drykki, kellan með sína vöðva (einmitt) reif sig burt og ætlaði að fara af stað niður stigann, lít upp og þá bara skvasssss kjellinn hellti yfir mig bjórnum, sem Elfa gaf honum btw....djöfull var ég fyrst pirruð en svo bara í sjokki og fór heim til hans Bjarna míns - já það er klikkað þetta lið og allt útaf einu fótboltaspili.... usssssssss
Annars verður restin af helginni bara róleg, enda verður sú næsta alveg súper æðisleg, ég fæ nefnilega heimsókn hingað til Silkeborgar JIBBÍ fyrsta gistiheimsóknin frá Íslandi, mamma og pabbi komu náttla en þau gistu á hóteli, en frænkur mínar þær Andrea og Rakel ætla að fara á vit ævintýranna og kíkja í heimsókn til frænku, við ætlum að hittast í köben, þar sem ég verð einmitt að knúsa Lísu og Ísey og eyða deginum þar og síðan brunum við til Silkeborgar og gerum eitthvað fullt skemmtilegt :)
Jiii en spennandi
Hafið það gott
luvBerglind
p.s valsstúlkur til hamingju með sigurinn á móti Stjörnunni og HK - komnar á beinu brautina keep up the good work

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæhæ!!
okkur hlakkar geðveikt mikið til að koma.
Andrea og Rakel

Nafnlaus sagði...

jeminn eini þessi gaur var nú alveg klikkaður
...og sóa bjórnum yfir þig sem elfa blæddi á hann ;)

en það verður gaman á föstudaginn í köben :)

kv
árný

Begga sagði...

Hæ sætu skvísur ég hlakka ofsa til að fá ykkur :) knúsBerglind

já þessi gaur var bilaður, og grenjandi yfir e-um bjór og svo bara henda honum yfir mig helv...
Það verður æði í köben, ég hlakka svo til :) Ég hringi á morgun líklega og þá getum við skipulagt þetta enn betur :) knúsBegga