Jebbbbbbbbsí ég kem heim á morgun en fer reyndar aftur á þriðjudagsmorgun til Hollands en ég næ 1 og 1/2 degi heima og hlakka ekkert smá til. Verð með gamla íslenska númerið mitt heima og væri nú voðalega gaman að heyra allavega í ykkur því ég efast um að ég nái að hitta alla sem mig langar að hitta...töpuðum á móti Randers áðan frekar fúlt þar sem við náðum að vinna upp 7 marka forskot þeirra en því miður náðum við ekki að landa stigum.
Benni og Jói eru mættir í hús, vorum að koma af Rib House þar sem Spareribs "all you can eat" pakki var tekinn. Metið er víst 3,5 kg, Heimir hefur nebbla farið með gestina sína þangað og metið hjá Baldvini er 3,5kg. Strákarnir voru held ég langt frá því, ég lagði nú ekki í þetta.
Ég veit ekki hvort ég bloggi eitthvað frá Hollandi efast um það því ég ætla mér að vera þar sem fjörið og sögurnar eru því hingað til hef ég verið með nefið ofan í bókum í þessum ferðum...EN nei ekki núna :)
Þangað til næst....Hafið það gott elskurnar mínar
luvBerglind
3 ummæli:
kemuru ekki svo við í Þrándheimi þegar þú ferð svo heim til Danmerkur, alveg í leiðinni heim sko :)
Væri alveg til í að hitta þig skvís og Kári væri líka til í að sjá þig, hann hefur aldrei séð þig !!!
Ups... missti alveg af þér.. kíkti ekki á bloggið í 3-4 daga og vissi ekki einu sinni að þú værir hérna sæta!
Well.. næ þér næst elskan!
Luv
Takk æðislega fyrir það Martha mín...við getum ekki beðið eftir að fá ykkur..ég þarf kvennmann í lið með mér gegn þessum strákum hérna :) Hafðu það ofsa gott og farðu nú vel með þig og bumbubúann :) knúsBegga
Hæ Anna mín, hehe já alveg í leiðinni að kíkja til þín, en hefði sko verið til í það langar mest að öllu að koma að knúsa ykkur :) luvBegga
Hæ Eva mín já þetta var svo stutt stopp að ég náði ekki að gera neitt rosalega mikið en við hittumst 100% næst þegar ég kem heim luvBerglind
Skrifa ummæli