11 desember 2006

Rolling, rolling....

Frábær helgi :) Julefrokostið á laugardaginn heppnaðist alveg hreint æðislega, fengum góðan mat - ekki samt jólamat en súper góður og svo var partý langt fram á nótt. Ég lærði fullt af nýjum skemmtilegum partýleikjum, við fórum í singstar og ég og Hrabba tókum liðið í "það var lagið" leikinn, sama og við gerðum úti í Rúmeníu. Þær voru ekkert spes góðar í honum, ég get nú reyndar ekki sagt neitt er hrikaleg þegar kemur að lögum, EN nú detta allar dauðar lýs af ykkur þær þekktu ekki Pixies og lagið Hey, þær héldu að við værum að búa þetta til eða að þetta væri e-r hljómsveit frá Íslandi. Ég og Hrabba misstum andlitið og byrjuðum að syngja lagið fyrir þær og vorum vissar að þá myndi nú kveikna í e-rum sellum hjá þeim, en nei nei þær horfðu bara á okkur eins og við værum e-d skrítnar. En þar hafið þið það Pixies er ekki inn í DK, Noregi, Sviss, Hollandi né Ungverjalandi :)

Hápunktur kvöldsins var hins vegar þegar ég og Hrabba Turner tókum dansinn við Proud Mary lagið hennar Tinu Turner"and were rolling, rolling, rolling on the river" já spurning hvort þær líti sömu augum á mig eftir þennan svaka dans okkar. Því miður náðist dansinn ekki á filmu, en hann var rosalegur lofa því :) Spurning hvort Sigga Jóna taki mig ekki næst með sér í grúppíu þegar hún syngur lagið fyrir okkur valspíur :)
Ég gisti síðan hjá Hröbbu og fékk dýrindis morgunmat að venju hjá henni Hröbbu minni, skonsur og eggjasalat ummmmm, takk fyrir mig Hrabba og Viktor.
en nú þýðir ekkert að hanga uppí sófa og horfa á Despó, já nú þarf kellan að fara að gera e-d af viti því það styttist óðum í Spánarför og heimferð til Íslandsins góða. nóg að gera, alveg merkilegt mér fannst ég hafa nægan tíma meðan ég væri ein hérna í Danaveldi en tíminn er gjörsamlega búin að fljúga frá mér og núna eru bara 4 dagar þangað til ég fer.
Hafið það gott öll sömul og gangi ykkur vel hvort sem það er í próflestri eða jólaundirbúningi.
Hlakka til að hitta ykkur
luvBegga a.k.a dansing queen

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku systir.
það hefur verið svaka stemming hjá ykkur!
Ég hló mikið þegar mamma og pabbi voru að gefa Bjarna leiðbeiningar um allt í sambandi við Spán, ég er viss um að Bjarni hafi verið langt fram á nótt því pabbi vildi alltaf fara yfir þetta aftur og aftur. Bjarni kemst aldrei í húsið því hann þarf að lesa heila ritgerð, hann verður alltaf að stoppa til að lesa og kemst ekkert áfram.
Annars er allg gott að frétta frá mér og mínum biðjum að heilsa ástar-og saknaðarkveðjur frá okkur öllum. Góða ferð og skemmtun á Spáni hlakka til að hitta þig luv stóra systir

Begga sagði...

hehe ég get alveg ímyndað mér mömmu og pabba að útskýra þetta, þau eru svo fyndin, alltaf að bæta við upplýsingum og byrja svo að tala við hvort annað um hvort þetta sé nú svona eða kannski hinsegin :) Þau eru æði þessar elskur. Bjarni ætti kannski bara að gista í bílnum uppá flugvelli í nótt og bíða eftir mér í stað þess að keyra í húsið :) :) hafið það best sakna ykkar alveg rosalega og hlakka endalaust til að eyða jólunum með ykkur lovja litla sys