13 desember 2006

Vandpolo, rafmagnslaus og ferðalag

fórum í Vandpolo í gær, fengum að hafa svona sundhúfur eins og alvöru pró, en vá hvað þetta er erfitt, halda sér uppi, grípa, kasta og einhver að ýta í mann allan tímann, púff. En þetta var stórskemmtilegt að prufa, þó ég ætli nú ekki að leggja þetta sport fyrir mig, enda er ég ferleg get ekki fengið smá vatn framan í mig án þess að þurfa að þurrka það burt með höndunum og það gengur nú ekki alveg nema ég mætti hafa sundgleraugu þá kannski hugsa ég mig um!!!
Dagurinn í dag er búinn að vera ferlegt vesen, bíllinn tók uppá því að verða rafmagnslaus og það í Århus. Ég dró ekki meira né minna en 7 manns með mér í vesenið, kæmi mér ekki á óvart ef skúladætur og makar þeirra sendi mér ekki jólakort í ár hehe :) Niii þau voru frábær hjálpuðu mér þvílíkt og eru held ég búin að fyrirgefa mér allt stússeríið. Þau vita þá allavega hvert þau eiga að hringja ef þeim vantar greiða :)
Svo bara Spain tomorrow eða á eftir legg af stað eldsnemma í fyrramálið í lest og get ekki beðið eftir að hitta Bjarna minn. Vonandi verðum við heppin með veður, veitir ekki af smá lit þó það væri ekki nema smá roði í kinnarnar er orðin eins og vofa !
Þetta verður ekki nema 11. utanlandsferðin mín í ár, já og ég á ennþá 2 eftir áður en árið líður hressandi :)
Ég bið ykkur vel að lifa, hafið það gott, góða lærustrauma til allra sem þess þurfa og Gleðileg jól ef ég skrifa ekki aftur fyrir jólin.
luvBerglind

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

góða ferð vinkona...vá hvað verður yndi hjá ykkur turtildúfunum!
sé þig svo þegar þú mætir til ísl, reyndar ekki 22, en bara fljótlega eftir það!
á meðan þú slakar á spain verður hvalurinn bara með bækurnar í smettinu, hress em fress!
njíttu þess yndið mmitt að vera ekki í prófum!
love tinna

Begga sagði...

hehe elsku Tinna mín þú ert svo mikið yndi...hvalur já já híhí...gangi þér rosa vel að læra elskan sendi þér fullt af orku knús og kossar